Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Bjólfskviða

Bók mánaðarins

Skrifað af þann 15. Apr 2011 in Blog, Bók mánaðarins | 2 athugasemdir

Nú eru tvær vikur í næsta mót. Viltu vita hvenær Logi er að blöffa? Vilta vita hvenær Gummi er mað ás? Eða þegar Iðnaðarmaðurinn hittir flush á floppinu? Þá skaltu lesa bók mánaðarins Caro´s book of poker tells. Mike Caro hefur hjálpað casino-um í Bandaríkjunum við að reikna út líkur, ásamt að aðstoða við fyrsta tölvuforritið sem greinir stöðuna við pókerborðið. Árið 1990 var hann einn af fáum sem höfðu trú á að það myndi ganga upp að spila með alvöru peninga á netinu auk þess sem hann stofnaði fyrsta varanlega pókerskólann. Hlaða niður...

read more

M3 – mót 2

Skrifað af þann 2. Apr 2011 in Mót | 5 athugasemdir

Lokamótaröðin er nú hálfnuð og standa leikar nokkuð þétt á toppnum. Það var frekar fámennt á síðasta móti en 8 meðlimir höfðu skráð sig og þar sem Heimir skrópaði fengust einungis 7 stig fyrir að vera efsti meðlimurinn. Þetta rennir stoðum undir að setja refsingu á menn í tengslum við skráningu. Þarna sést að menn geta skráð sig á mót til að fylla upp í lágmarks þátttöku og mæta svo ekki án neinna afleiðinga. Enn og aftur eru meðlimir Bjólfs að gera í buxurnar þegar utanaðkomandi spilarar mæta á svæðið. Valli mætti aftur og er svona hægt og...

read more

Líkur á sigri: 100%

Skrifað af þann 29. Mar 2011 in Fréttir | 2 athugasemdir

Ég hef undirbúið mig svo gríðarlega fyrir komandi mót að ég er farinn að vorkenna ykkur nú þegar. Til að þið verðið ekki rasskelltir illilega og niðurlægðir hef ég verið að gefa ykkur grundvöll til ykkar eigin undirbúnings, t.d. með Bók mánaðarins. Nú hef ég bætt í búið og veitt ykkur aðgang að grundvelli allra veðmála í póker, hvenær skal kalla og hvenær pakka? Umfjöllunina um líkur er að finna undir hjálparhöndin á stikunni. Ekki slá hendinni á móti þessari hjálparhönd, því hún mun hjálpa þér að hitta á nokkrar hendur en þú þarft sem fyrr...

read more

Ný skoðanakönnum og skráning

Skrifað af þann 29. Mar 2011 in Fréttir | Engar athugasemdir

Þar sem sú staða kom nú upp að möguleiki væri að mótinu yrði frestað voru meðlimir hvattir til að skrá sig sem fyrst af tillitssemi við aðra meðlimi sem vildu fá á hreint hvort mótið væri af eða á. Þetta gekk ekki snuðrulaust fyrir sig og virðist sem það séu yfirleitt þeir sömu sem trassa að svara eða svara yfir höfuð ekki. Þess vegna er aftur tekin upp sú pæling að koma á einhvers konar refsikerfi til að gera skráningu skilvirkari. Þið hljótið að sjá óþægindin fyrir þann sem heldur mótið þegar hann veit ekki hvort um er að ræða eitt eða tvö...

read more

Bók mánaðarins

Skrifað af þann 27. Mar 2011 in Bók mánaðarins | 3 athugasemdir

Hafinn er nýr liður hér á bjolfur.is sem nefnist Bók mánaðarins. Fyrsta bókin er eftir reynsuboltann Dan Harrington og nefnist Harrington on Hold´em vol 1: Strategic play. Harrington hefur tvívegis unnið World series of poker, 1995 (main event) og 2003. Harrington on Hold´em er af mörgum talin vera ein af bestu pókerbókum sem komið hafa út um hvernig skuli spila póker á mótum. Í bókinni er fjallað um grunninn í póker, leikstíla o.fl. Verðug lestning fyrir þá sem sækjast eftir titlinum Bjólfsmeistarinn 2011. Bókina má kaupa á Amazon eða hlaða...

read more

Næsta mót

Skrifað af þann 24. Mar 2011 in Mót | 18 athugasemdir

Af gefnu tilefni bið ég meðlimi að skrá sig sem fyrst í næsta mót. Eins mega þeir sem geta haldið mótið láta vita í commentum.

read more

Bjólfsmeistari

Skrifað af þann 22. Mar 2011 in Mót | 6 athugasemdir

Þá er það ákveðið. Það verður gerð Bjólfshúfa handa Bjólfsmeistaranum 2011. Til að finna meistarann verður einfaldlega lögð saman öll stig sem meðlimur hefur hlotið yfir pókerárið. Eins og gefur að skilja verður efsta sætinu ekki deilt milli manna og verður tekið heads up (eða milli allra jafnra) ef menn verða jafnir. Tekið verður úr sameiginlega sjóðnum fyrir húfunni og verður hún afhent eftir tímabilið með nafni meistarans. Ég set hönnun meistahúfunnar í hendur yfirhönnuðs klúbbsins, Loga Helgu. Þið getið smellt á töfluna til stækka hana....

read more

Páskamót

Skrifað af þann 19. Mar 2011 in Austurland | 2 athugasemdir

Könnunin um heimasíðuna hefur runnið sitt skeið á enda. Hún var meira gerð í gamni en alvöru og þar sem ekki voru margir neikvæðir möguleikar komu niðurstöður vel út 😉 Skipulagning er hafin að Páskamóti Bjólfs á Seyðisfirði 2011. Unnið er að því að hafa samband við viðkomandi aðila og hönnun vinningshúfunnar fyrir Seyðisfjarðarmeistann 2011. Meira um málið síðar.

read more

Ný könnun

Skrifað af þann 11. Mar 2011 in Fréttir | Engar athugasemdir

Þrátt fyrir slæmt veður og ófærð undanfarið náðum við 50% kjörsókn í skoðanak0nnuninni okkar og vildu allir kjósendur hækka árgjaldið. Flest atkvæði fékk hækkun upp í 3.000 kr. eða 5 talsins. Þar með verður árgjaldið 3.000 kr. og greiðist við upphaf næsta tímabils (sept. 2011). Ný könnun hefur litið dagsins ljós og nú er kannað viðhorf til nýju síðunnar. A.T.H. – HÆGT ER AÐ VELJA FLEIRI EN EITT SVAR.

read more

7-2 reglan (bjórhöndin)

Skrifað af þann 7. Mar 2011 in Bjór, Fréttir | 10 athugasemdir

7-2 reglan (bjórhöndin)

7♠2♥ reglun er sú að í hvert skipti sem að unnið er á bjórhöndina (sjöu-tvist) fær viðkomandi eitt prik innan þess tímaramma sem reglan er í gildi (sem er yfirleitt fyrstu 4 loturnar, eða um 2 tímar). Sá sem hlýtur flest prik á tímibli á inni 72 bjóra frá hinum meðlinunum (kippa á mann) sem gerast skal upp á Uppskerumóti eða fyrsta móti þar á eftir.

read more
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…