Bjólfskviða
Mottur 2011
Það var rætt á afmælismótinu að þeir sem væru að safna mottu myndu ekki raka þær fyrr en eftir næsta mót! Þannig að mottusafnarar passa uppá að leyfa vextinum að vera einum degi lengur 😉
read moreUpphafið að endinum
Þá er síðasta mótaröðin farin af stað með nýjum tækifærum, nýrri spennu, sláandi atvikum, nýjum vonbrigðum og nýrri von. Ákveðið var að setja tvist sjöu reglu í þessari mótaröð. Hún virkar þannig að sá sem hefur unnið oftast á 2♠7♠ (sama hvaða sort) þegar mótaröðinni líkur fær kippu af 500ml bjór frá öllum meðlimum. Það fer að vera hálf leiðinlegt að tilkynna Bósa sem sigurvegara auk þess sem hann tók þússarann fyrir að slá iðnaðarmanninn út en aldrei þessu vant spilaði ég eins og maður og náði öðru sætinu (hlýtur að vera aldurinn)....
read moreNýtt á síðunni
Mig langar að benda á nokkrar nýjungar eins og til að mynda skoðanakönnunina hér til hliðar. Á henni verður tekið fullt mark og niðurstaða hennar látin standa. Aðeins meðlimir geta kosið og því þurfa þeir er vera skráðir inn. Einnig bendi ég á textaborða sem hefur hafið göngu sína fyrir ofan efstu færsluna. Þar koma fram ýmsar staðreyndir um meðlimi jafnóðum og þær berast mér til eyrna. Hægt er að stöðva textann með því að setja bendilinn yfir hann.
read moreNæsta mót
Þá fer að styttast í fyrsta mótið í þriðju og síðust mótaröðinni (M3) á þessu pókerári. Ég hef beðið þess með óþreyju og ég veit að fleiri hafa gert það líka. Eins og menn ættu að vita ætla ég að bjóða meðlimum heim í mat fyrir mót og hafa þessir boðað komu sína í matinn: Mikkalingurinn, Bósi, Logi, Massinn, Robocop, Pusi, Andri the Ace, Heimsi, Bóndinn og Hobitinn. Gott væri að þeir sem hafa hugsað sér að koma í matinn skrái sig sem fyrst og láti vita í “Skilaboð” með matinn. P.S. Eins og þið sjáið hef ég bakað sérstaka...
read moreÁrgjald – útgjöld
Nú þegar u.þ.b. mánuður er liðinn síðan við greiddum árgjald er nánast búið að ráðstafa allri innkomunni (7.000 kall eftir sem ég geri ráð fyrir að fari í bústaðinn). Það er ákveðinn startkostnaður (límmiðar og aukakostnaður vegna heimasíðu fyrsta árið) og því er kannski ekkert óeðlilegt að fljótt gangi á sjóðinn. Hér eru yfirlit yfir innkomu og útgjöld: Innkoma Útgjöld Félagsgjöld 28.000 Límmiðar+tollur 16.000 Heimasvæði+hýsing 5.000 Bústaður? 7.000 Samtals 28.000 Þar sem það voru ákveðnar truflanir á servernum fyrir...
read moreFormannspistill
Mér finnst það hafa verið flott framtak hjá Gunnari Axel a.k.a. Robocop að taka af skarið og reynt að smala mönnum í bústað og hjá Mikkalingnum að boða menn í límingu og spil. Þegar við erum ekki fleiri en þetta í klúbbnum skiptir hvert innlegg máli og ekki síður viðbrögðin. Mér finnst viðbrögðin hafa verið frekar dræm og erfitt að átta sig á því hvort menn vilja ekki taka þátt í því sem við erum að gera eða þeir eru ekki að fylgjast með. Mér þætti vænt um að fá að vita hvað menn vilja, hvort sem það er af eða á. Að því sögðu spyr ég hverjir...
read moreÁrshátíð – Bústaður
Sælir, varðandi bústaðaferðina þá mun ég athuga með fyrstu helgina í júní þegar opnað verður fyrir úthlutun sumartímans. Mér skilst að lífeyrisþegar hafi forgang !!! en sjáum hvað setur … það eru víst einhverjar úthlutunarreglur! En annað sem mig grunar er að það er bara hægt að leigja bústað í viku í senn yfir sumartímann svo ef einhver annar veit um bústað sem hægt er að leigja í einn til tvo sólarhringa þá láta vita. b.kv.robocop
read moreCash game
Nú líða 5 vikur milla móta og þykir mönnum það aðeins of mikið, sérstaklega þegar merkinging á chippana er komin. Mikkalingurinn hefur hug á því að bjóða mönnum í skúrinn hjá sér miðvikudaginn kl. 20 til að líma á chippana og taka smá cash game á eftir. Ef meiri stemning er fyrir stuttu móti, er það líka hægt. Hverjir eru með? Skrá sig hér Hér til hægri er hægt að sjá nýjustu svörin, fylgst með umræðunni og taka þátt. Einnig er komið yfirlit yfir mótin undir “Næstu mót” þar sem meðlimir geta skráð sig í mótin. M3 stendur fyrir...
read moreMerkingin komin
Loksins eru límmiðarnir komnir og þetta lítur bara nokkuð vel út. Það er auðveldara og fljótlegra að setja þá á en ég bjóst við en mun samt taka smá tíma. Það er ánægjulegt að geta spilað með sérmerkta chippa á eins árs afmæli Bjólfs 🙂
read moreBolur 2011
Pöntun verður lögð inn á næstunni…þegar búið er að finna út úr hver er hagkvæmasta leiðin til að koma þeim til landsins, þannig að það gæti verið bið eftir þeim. Eftirfarandi er pöntunin: Mun uppfæra með commentum hér til að láta vita hver staðan er.
read more
❤️😘