Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Bjólfskviða

Mótaröð 2 lokið

Skrifað af þann 30. Jan 2011 in Mót | 10 athugasemdir

Nú er annarri mótaröð af þremur á þessu pókerári lokið og var það hinn heiðarlegi Bósi sem vann hana. Massinn hafnaði í öðru sæti og Iðnaðarmaðurinn náði því þriðja. Það voru þrír jafnir að stigum í þriðja sæti og var sú regla því sett á, að þátttaka í færri mótum skilar meðlimur ofar í sæti. Þetta er í vissri mótsögn við markmið klúbbsins um að sem “flestir meðlimir hittist einu sinni í mánuði” þar sem mönnum er hampað fyrir að mæta sjaldnar í tilvikum sem þessum en það gefur auga leið það er ekki vænleg hernaðaráætlun að stíla...

read more

Þétt setið á El Grillo mótinu

Skrifað af þann 28. Dec 2010 in Austurland | Engar athugasemdir

Þá er jólamóti Bjólfs lokið og eins og alkunna er var það kennt við El Grillo í ár. Mætingin var vonum framar og voru þátttakendur 41 að meðtöldum tveimur boðsgestum og komust færri að en vildu. Heildarpotturinn var 112.000, tvær rútur af El Grillo, pizzuveisla fyrir tvo, vindill og síðast en ekki síst El Grillo meistaraderhúfa. Hér má sjá alla sem hlutu vinninga.   1.    Ómar                 48.000 (húfa og vindill) 2.   ...

read more

Árlegt jólamót

Skrifað af þann 9. Dec 2010 in Austurland | Engar athugasemdir

Nú fara jólamótin á Seyðisfirði að teljast til árlegs viðburðar og stækka mótin með hverju árinu. Mótið í ár verður það stærsta til þessa og hef ég fengið El Grillo bjór til að styrkja mótið með eigin framleiðslu auk þess sem það verður haldið á Hótel Öldunni þar sem verða tilboð á barnum. Einnig hef ég fengið Óla bæjó og Guðna í sjoppunni í lið með mér til að setja bounty á þá og kýs ég að kalla það “þeir eftirsóttu”. Þetta verður feikilega skemmtilegt mót sem enginn ætti að missa af. Aukaverðlaun í boði El Grillo auk SÉRMERKT BJÓLFS/EL...

read more

Sérmerktir chippar

Skrifað af þann 3. Dec 2010 in Fréttir | Engar athugasemdir

Það væri gaman að láta merkja chippana okkar. Ég held að það myndi gefa þessu skemmtilegan blæ og aukin fíling. Það er reyndar grátlega dýrt hér á landi, sérstaklega þegar um er að ræða límmiða en ekki þrykkingu beint á chipsin en ef við myndum láta merkja öll 1.000 chipsin myndi það kosta 27.000 kr. Það væri möguleiki að láta lokapottsféð fara í þetta en það tæki okkur ca. sex skipti.

read more

Úthlutun peningaverðlaun

Skrifað af þann 10. Oct 2010 in Mót | Engar athugasemdir

Þar sem hvert tímabil eru einungis þrjú mót er ekki ólíklegt að einhverjir verði jafnir að stigum í kapphlaupinu að lokapottinum. Fyrsta sæti gefur 50%, annað sæti 30% og þriðja sæti 20%. Ef tveir verða jafnir í 1. sæti og því skipt í tvennt yrðu hlutföllin 25% fyrir 1. sæti (x2) og 30% fyrir 2. sæti og því gæfi 2. sæti meira en 1. sæti. Því er reglan þessi: Ef fleiri en einn verða jafnir dettur 3. sæti út og bætist við það sæti sem skiptist milli manna. Dæmi 1: Ef tveir eru jafnir í 1. sæti dettur 3. sæti út og bætast 20%  við 1. sæti og...

read more

Klúbburinn festir rætur

Skrifað af þann 18. Jul 2010 in Fréttir | 2 athugasemdir

 Nú hefur Logi hannað og búið til logo fyrir klúbbinn. Alvöru klúbbur eins og við þurfum að hafa okkar eigið logo. Þetta eru alvöru útlínur af Bjólfi á Seyðisfirði sem hann tók af  ljósmynd og mér finnst þetta koma virkilega vel út. Við þurfum að hafa logo þegar við höldum opin pókermót og látum búa til chips handa okkur 😉 Vel gert Logi!

read more
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…