Bjólfur XV.9 – Bústaður og fimmtánda tímabilinu lokið 🎉

Ótrúleg helgi að baki með snillingunum þar sem við fögnuðum 15 ára starfsafmæli okkar með stæl! 🔥
Heitir pottar voru vel nýttir, heimsins vandamál rædd og jafnvel leyst – sum þeirra oftar en einu sinni 😄
Maturinn í toppklassa, með aðalréttinum færðum yfir á föstudagskvöld og stemmingin í hæstu hæðum alveg frá fyrsta degi 🍖🍻…og sumir tóku líka fyrsta dag á undan öðrum og hituðu vel upp fyrir bústaðinn 😉
Aðalatriði frá bústaðnum og XV. tímabilinu
💥 Kapteinninn tryggði sér bjórstig og þar með titilinn BJÓRGUÐ 2025
💥 Lomminn átti kvöldið og sigraði Bústaðinn með stæl og annað skiptið sem hann tekur bústaðinn
💥 Lucky kláraði tímabilið með að landa sínum áttunda BJÓLFSMEISTARATITLI! og sló einnig mótsmetið sem Mikkalingurinn var að setja og færði það uppí 59 stig, þannig að það á enn einhver eftir að ná því í fullum 60 stigum.
BJÓR- gjafir, stig & guðir
Menn gerðu upp bjórgjafirnar sínar til bjórguðanna til að halda bókhaldinu réttu. Aðeins komu tvö bjórstig: Robocop nældi sér í fyrsta stigið sitt en það hafði lítið að segja því Kapteininn stal bjórnum með stigi og þar með 4 stig og skildi Lucky og Mikkalinginn eftir tómhenta…þannig að hann fékk eitthvað fyrir erfiðið og öll ítrekuðu endurinnkaupin á fyrstu höndum kvöldsins 😉

FLEYGAR
PUBQUIZ-ið
Það var svakalegt tvist á pub-quiz-inu í ár þegar að síðasta “spurningin” var kareoke og þar mætti bara nýr listaður á sviðið og það átti enginn roð í Iðnaðarmanninn sem gæti þurft að fara að láta að sér kveða á kareoke börum heimsins?
SPILIÐ
Við spiluðum á þremur borðum og helstu punktar frá spilinu:
💥 Robocop var fyrstur frá borði en á þann “titil” að hafa keypt sig inn oftast um kvöldið með 6 endurinnkaup
💥 Heimsi hafði ýmsielgt að segja um spilamennsku annara
Ákveðinn skortur á hugsunarleysi
💥 Iðnaðarmaðurinn var duglegur að kaupa sig inn en var einum innkaupum á eftir Robocop
Its now or later
💥 Massinn var vakandi og allsgáður…þangað til hann datt út 😉
Hver er að hringja í þig? Eru ekki allir vinir þínir hérna?
💥 Killerinn mætti…ekki í sínu besta formi eins og í fyrra.
💥 Spaða Ásinn gæti hafa dottið út með Spaða eða Ás á hendi
💥 Nágranninn hætti í spilinu og fór að selja hárvörur
💥 Bótarinn sneri sér að bjórnum
Enginn er bót í annars böli
💥 Kapteininn keypti sig aftur inn eftir fyrstu þrjár hendurnar og náði bjórstigi og er núverandi bjórguð
Þá var sameinað á lokaborðið:
💥 Bensi var fyrsti maður frá lokaborðinu
MR sexy five…þú ert fimma en samt sexy
💥 Húnninn fór í inniskóna sína
💥 Hobbitinn hélt ekki lengur út
💥 Timbrið tók búbbluna og síðasta sætið fyrir utan verðlaun.
💥 Mikkalingurinn landaði 4. sætinu
💥 Pusi kom um langan veg og tók 3ja sætið
💥 Lucky tók annað sætið, sigraði mótaröðin og 8. titilinn
Af þeim 15 árum sem við höfum spilað þá er Lucky ábyggilega búinn að vera atvinnulaus í 10
🏆 Lomminn kom um enn lengri veg en áður og fór alla leið í kvöld…spurning hvort hann toppar þetta einhverntíman 😉
Nánari tölfræðiupplýsingar um tímabilið á Bjólfsmeistarinn 2025.
SIGURVEGARAR



Takk fyrir ógleymanlega helgi, bros og brölt – nú byrjum við að hlakka til sextánda tímabilsins eftir sumarið og styttist í næsta bústað að ári 💪❤️
❤️😘