Bjórstig í uppnámi – endurskoðun fyrir bústað 🍺

Rétt fyrir bústaðinn var ráðist í ítarlega endurskoðun á ljósmyndum og gögnum um bjórstig tímabilsins — og það kom fljótt í ljós að ekki var allt með felldu.
Við nánari skoðun kom í ljós að á fyrsta móti tímabilsins fékk Bensi bjórstig… en það rataði óvart í bókhaldinu til Timbrsins. Enginn gerði athugasemd á þeim tímapunkti og því lifði sú skráning góðu lífi lengur en ella.
Á móti tvö voru engin bjórstig gefin, en á þriðja móti fór fréttaflutningur að byggja á rangri stöðu — þar sem Timbrið var með skráð sig stig sem það átti í raun aldrei inni og hefði átt að vera skráð á Bensa.
Eftir ítarlega yfirferð á sönnunargögnum (ljósmyndum af bjórstigum frá XVI) hefur þetta nú verið leiðrétt. Það þýðir í raun að allar fréttir af bjórstigum tímabilsins hafa verið örlítið skakkar — og staðan er ekki alveg sú sem menn héldu.
👉 Raunin er sú að Timbrið er einu stigi á eftir Kapteininum, en ekki jafnt eða yfir eins og áður var talið.
👑 Bjórguðinn – hver stendur uppi?
Þetta setur nýtt krydd í lokasprettinn.
👉 Mun Kapteininn tryggja sér sína fimmtu Bjórguðanafnbót og verja titilinn frá síðasta tímabili?
👉 Eða mun einhver rísa upp á síðustu stundu og stela titlinum?
Eitt er víst:
👉 Þetta verður ekki afgert fyrr en á síðasta kvöldinu…eftir viku!
🍺 Staðan fyrir lokakvöldið
- 3 stig – Kapteininn
- 2 stig – Timbrið & Heimsi
- 1 stig – Bensi, Bóndinn, Massinn, Robocop & Lucky
Þegar allt er tekið saman sýnir þetta eitt:
Í Bjólfi er ekki nóg að drekka — það þarf líka að halda bókhaldið í lagi 😄
Og eins og alltaf…
👉 ekkert er öruggt fyrr en síðasti bjórinn er skráður. 🍺🃏
❤️😘