7. tímabilið byrjar á morgun
Fyrsta kvöldið í 7. tímabilinu byrjar á morgun og að vanda er það með afmælismóti hjá Iðnaðarmanninum sem mun eiga afmæli á miðnætti.
Skráningin er opin og endilega meldið ykkur þannig að hægt sé að gera ráðstafanir fyrir morgundaginn.
Fyrir þá sem eru ryðgaðir þá er gott að rifja upp hendurnar og siðareglurnar.
Allir eru nú á núlli og jafnir…allir geta unnið meistaratitilinn og allir geta unnið bjórinn.
Bjórinn
Nóg er að menn geri upp við einhvern af Bjórmeistunum ( Lucky, Bótarinn eða Timbrið ) og þeir sjá sjálfir um að deila sín á milli. Þannig að ef einhver þeirra er á móti þá geta menn látið þann fá kippu…nenni ekki að halda utan um hver er búinn að gera upp hvað á móti hverju eins og í fyrra þegar líka voru 3 Bjórmeistarar 😉
Þúsarinn er á Agli á morgun.
Lesa meiraVinningur í Euro Jackpot
Ég fór loksins með lottómiðana úr bústaðnum og lét renna þeim í gegn og vitir menn það var vinningur.
Reyndar voru það aðeins 960,- krónur =)
En þær verða nýttar í innkaup á öðrum miða, þannig að það er enn von á að landa nokkrum milljörðum…var reyndar of seinn í dag, búið að loka kaupum…þannig að hann fer vonandi ekkert fyrr en í næst viku þegar við tökum stóra vinninginn 😉
Lesa meiraBÚSTAÐUR !!!!
Það er komið að því…
Bílar eru nokkrun vegin…
1200 Massinn, Heimsi, Timbrið (sjá um innkaup líka)
1500 Gummi nágranni, Lucky Luke (koma með varninginn & borðið)
1800 Eiki Bót, Mikkalingurinn (koma með Lommann 😉
XXXX Kári Killer (kemur með Hobbitann um kvöldið)
???? Bósi (bílar með fjölskyldunni, kemur með kjötið)
???? Iðnaðarmaðurinn kemur líklega sjálfur…
LAUG
???? Robocop (eða komiinn í bíl með öðrum í dag?)
Hvað þarf með?
Matarplan
-Föstudagskvöld
–Borgarar
-Laugardagur
–Morgunmatur/Brunch og hádegismatur skellt saman (beikon, egg og meðlæti)
–Nautalund um kvöldið
-Sunnudagsmorgun
–Það verða samlokur á sunnudagsmorgni áður en við förum, þannig að það þarf ekki að gera ráð fyrir neinu þá.
Fyrir maul milli mála þá erum við með góðar gjafir sem ég lofaði að við myndum mynda okkur með 😉
…sjáumst í dag =)
Lesa meira1 dagur í bústað – #bjolfur
Einn dagur í bústað og nú fara menn að taka allt sem þarf og gera sig klára. Fyrir þá sem eru duglegir að mynda þá notið endilega #bjolfur til að merkja. Ef þið póstið á instagram þá fara þær myndir sjálkrafa hérna hægra megin á síðuna…ekki erum við enn að lesa upp frá öðrum miðlum en þeir dreifast á milli þeirrra sem fylgjast með þar.
Þannig að: merkið allar færslur sem fara frá ykkur með #bjolfur
Lesa meira2 dagar í bústað – Sjötta tímabilið senn á enda
Það er við hæfi að taka smá yfirferð á tímabilinu, en það virðist alltaf vera jafn stutt síðan tímabilið byrjaði og nýjir menn voru teknir inn. Annar þeirra byrjaði með látum þrátt fyrir að síðan hafi ekki sést mikið af þeim 😉
Búnaður uppfærður
Pókerstaðir
Það voru ekki bara nýjungar í búnaði heldur voru líka nýjir heimavellir.
og hann kallar yfirleitt amk í eitt annað mót hjá sér og er hann löngu búinn að festa sér nafnbótina Besti Gestgjafinn.
Bjólfur OPEN
OPEN mótið í ár var styrktarmót og gekk vel og gaman að geta nýtt klúbbinn til góðs. Bóndinn og fjölskylda fá enn og aftur kveðjur og þökkum við fyrir að fá að geta hjálpað.
Reglur
Reglur varðandi 7-2 voru aðeins skýraðar eftir “vafamál”…ef það skyldi hafa farið framhjá einhverjum, þá er þetta nokkuð skýrt fyrir bústaðinn (þar sem oftar en ekki koma nokkur stig).
Afmæli
Lomminn mætti á afmælismótið sitt og klúbbsins sem lenti einmitt á afmælisdegi beggja og átti hann gott mót.
3 dagar í bústað – 5 merki þessi að þú sért sannur Bjólfsmaður
1. Í hvert skipti sem þú sérð bílnúmer hugsarðu um hversu góð pókerhönd stafirnir mynda.
2. Þegar þú ert að telja og dettur í 7,8,9,10,Gosi,Drotting,Kóngur…
2. Þegar þú biður um launahækkun og færð mótboð þá endurhækkarðu til að reyna að fá hann til að gefast upp.
3. Þegar talað er um Hvali, bændur timbur eða Hobbita þá hugsarðu um félagana.
4. Þegar þú ert að spila annars staðar og færð 7-2 og ferð allur inn til að ná í bjórstig.
❤️😘