Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Fyrsta kvöld í mótaröð 2 verður á föstudaginn

Skrifað af þann 1. Dec 2014 in Mót | 3 athugasemdir

Þar sem að Lucky Luke var að ekki að höndla að Bósinn væri að mæta aftur þá fór hann gjörsamlega á tugum og var ekki í ástandi (að hans sögn) til að bjóða heim síðasta föstudag. En það verður póker næsta föstudag: 5. desember hjá Lucky. Stefnum á að byrja að vanda 20:30 en jafnvel náum við aðeins að seinka því fyrir Bósa.

Skráning er hafin

Lesa meira

Næsta mót hefst eftir viku

Skrifað af þann 20. Nov 2014 in Mót | 1 ummæli

Önnur mótaröðin hefst eftir viku og er fyrsta kvöldið 28. nóvember. Skráning er hafin og verðum við hjá mér í Hafnarfirðinum.

Minni menn á gera upp árgjaldið bankaupplýsingar eru efst á síðunni. Þarna á flipanum “Innkoma 2015” er hægt að sjá hverjir eru búnir að gera upp árgjaldið …og líka bjórinn, ég minni menn auðvitað á að gera upp bjórinn við mig líka í leiðinni þegar menn mæta 😉

Lesa meira

Robocop ætlaði sér sigur allan tímann

Skrifað af þann 1. Nov 2014 in Mót, Myndir | 1 ummæli

Það endaði í 2 borðum hjá Bótaranum þegar að 11 Bjólfsmenn mættu á svæðið í lokakvöldið í fyrstu mótaröðinni.

Lesa meira

Fyrsta ★ á tímabilinu fer út í kvöld

Skrifað af þann 31. Oct 2014 in Mót | Engar athugasemdir

Við hittumst hjá Bótaranum, áætlað að byrja 20:30. Staðan er enn óbreytt og ekkert hefur verið ákveðið hvort breyta eigi stigagjöfinni…

Lesa meira

Timbrið á ferðinni

Skrifað af þann 4. Oct 2014 in Blog, Mót, Myndir | 1 ummæli

Það var fámennasta Bjólfsmót frá upphafi í gær hjá Iðnaðarmanninum þegar að 6 félaga hittust og spiluðu.

Lesa meira

Bjólfsmeistarar samir við sig

Skrifað af þann 14. Sep 2014 in Fréttir, Mót | 1 ummæli

20142015byrjar

Það er alltaf gott að byrja tímabilið á á afmælismótinu hjá Iðnaðarmanninum að vanda. Við vorum nokkuð lengi í gang, enda tók tíma að ræsa allt og menn þurftu að ræða mikið…enda nokkrir mánuðir frá síðasta spili.

Bjóruppgjörið
bjorinnIðnaðarmaðurinn & Bótarinn gerðu upp og við höldum óbreyttu fyrirkomulagi með bjóruppgjörið. Engin bjórstig komu inn í kvöld, enda sátum við 11 við borðið og erfitt fyrir menn að gera mikið með svo marga í kringum sig.

Spilið
Það voru vissulega karlmannleg knús og spennandi póker sem fór fram. Allt fór nú nokkuð rólega af stað og ekki fyrr en undir lok innkaupatímabils (fyrsta klukkutímans) sem menn fóru að taka áhættur og endaði þannig að Hobbitinn náði stórum stafla af svörtum chippum fyrir hlé.

Í hléi var það Gestgjafinn sem bauð uppá humarsúpu sem var notið yfir góðu spjalli 😉

Ásinn yfirgaf borðið fyrstur stuttu eftir hlé. Síðan leið nokkur stund þar til Robocop og Iðanaðarmaðurinn fygldu og enn leið góð stund þangað til að næstu menn fór út.

Bubble
Þegar komið var í 10. lotu voru ekki 4 í spilinu og einhver þurfti að gefa upp að fá verðlaunasæti. Hobbitinn hafði misst stóra staflan af svörtu chippunum en endaði að taka bubble sætið en hafði þó náð Þúsaranum svona í smá sárabót.

Bóndinn féll næstur út og Lucky Luke stóð undir nafni og þegar Bótarinn var allur inn var hann séður með 33 hjá LL en með tvö hærri spil á hendi og þurfti bara að hitta eitthvað…fyrsta spil í borð var 3 og ekkert sem stoppaði heppnina hjá Lucky.

Komin er ný staða á töfluna fyrir tímabilið og er þetta svipað og var upp á teningnum fyrir ári síðan þegar Bjólfsmeistararnir tveir voru einnig efstir eftir fyrsta kvöld. Spurning hvort menn ætli að láta þá komast upp með að vera að berjast um tiltilinn aftur eða fari að láta til sín taka eftir 3 vikur.

2015m1k1

Það er ekki komin staðsetning á næsta/u mót þannig að bjóðið fram eins og hentar ykkur.

Lesa meira
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…