Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Prinsessupóker

Skrifað af þann 8. Oct 2011 in Mót | 4 athugasemdir

Lokamótið í þessari mótaröð verður spennandi þar sem einungis munar 3 stigum á fjórum efstu sætunum og eru í raun mun fleiri sem geta hreppt M1 pottinn.

Það verður að segjast eins og er að síðasta mót var frekar laust við spennuþrungin augnablik og fóru menn ekki í mikið ferðalag á tilfinningaskalanum, fyrir utan reiðina sem kraumaði innan í Robocop á tímabili, enda vantaði dramadrottninguna Andra “The Ace” ;-).

Mótið byrjaði vel þegar Eiki vann pott fljótlega í mótinu með 7♠2♥ þar sem hann hitti á tvistaþrennu og náði þar sínu fyrsta priki í þeim leik en svo gerðist lítið markvert það sem eftir lifði móts.

Þetta e´bbara stundum svona í póker

Það er alltaf jafn gaman að hittast og fá sér nokkra kalda og að mínu mati er ekki hægt að verja þessum 1.500 kr. betur en það er spurning hvort við þurfum ekki að fara að krydda þetta aðeins með einhverju eins og prinsessupóker 😉

Lesa meira

Líður að móti…

Skrifað af þann 3. Oct 2011 in Mót | 13 athugasemdir

Senn líður að öðru móti í fyrstu mótaröðinni og eru skráningar farnar að detta inn. Ný og betrumbætt síða yfir stöðuna hefur litið dagsins ljós og er einnig hægt að fylgjast með stöðunni í öllum hliðarkeppnum á hægri spássíu á öllum undirsíðum.

Lesa meira

Pókerárið 2011-2012 farið af stað

Skrifað af þann 10. Sep 2011 in Mót | 14 athugasemdir

Þá er biðin langa á enda og ekki laust við að það hafi verið smá spennufall að móti loknu. Að vanda var mótið og hittingurinn gríðarlega skemmtilegur þar sem mörg spennuþrungin augnablik litu dagsins ljós þar á meðal tveir 7♠2♥ sigrar og ótrúleg riverspil. Mótið var óvenju langt og tel ég að það stafi helst af því hve lengi menn reyna að hanga inni til að ná í sem flest stig og er það bara hið besta mál.

Lesa meira

Áminning

Skrifað af þann 3. Sep 2011 in Mót | 5 athugasemdir

Ég minni spilara á skráningaskylduna. Það þarf að skrá sig í mót fyrir kl. 24 fyrir mótsdag (fimmtudag) til að fá engin refsistig. Ef skráningu er breytt (eða spilarar gera upphaflegu skráningu) innan við þrem tímum fyrir mót verða veitt 3 refsistig.

Skráningareglur má skoða hér.

Lesa meira

M3 mót 3

Skrifað af þann 30. Apr 2011 in Mót | 12 athugasemdir

Það var notarleg og þægileg stemning hjá Loga þar sem við vorum búnir að koma okkur þægilega fyrir í stofunni hjá honum og þakka ég honum fyrir móthaldið og meðlætið. Það var eitthvað um það að meðlimir fengu refsistig fyrir vankanta á skráningu og var Bóndinn sá eini sem slapp við refsingu af þeim sem mættu ekki.

Mótið gekk vel fyrir sig og fáar stórar uppákomur litu dagsins ljós þó menn hafi mátt þola slæma útreið stöku sinnum. Ég held þó að ekki hafi hallað á neinn hvað það varðar.

Fram að þessu hafði enginn Iðnaðarmaðurinn einungis fengið 7♠2♥ (vann ekki) en menn fengu þessa hönd 5 eða 6 sinnum á þessu móti þó svo engum hafi tekist að vinna á hana og því standa enn allir jafnar um 72 bjóra fyrir lokamótið sem verður eftir þrjár vikur (21. maí).

Lomminn er kominn á kunnuglegar slóðir í keppninni um lokapottinn í mótaröð 3.

Meðfylgjandi mynd sýnir eitt af nokkrum skiptum sem Eiríkur bjargaði sér frjá því að vera sleginn út. Hann er allur inn með Á♦9♥ á móti Bósa sem hafði K♣J♥. Floppið og turn-ið er:

5♥ J♦ 5♦ 5♣ og Bósi er kominn með fullt hús

River-ið er hins vegar Á♣ og Eiki bjargar sér á hærra húsi.

Lesa meira

M3 – mót 2

Skrifað af þann 2. Apr 2011 in Mót | 5 athugasemdir

Lokamótaröðin er nú hálfnuð og standa leikar nokkuð þétt á toppnum. Það var frekar fámennt á síðasta móti en 8 meðlimir höfðu skráð sig og þar sem Heimir skrópaði fengust einungis 7 stig fyrir að vera efsti meðlimurinn. Þetta rennir stoðum undir að setja refsingu á menn í tengslum við skráningu. Þarna sést að menn geta skráð sig á mót til að fylla upp í lágmarks þátttöku og mæta svo ekki án neinna afleiðinga.

Enn og aftur eru meðlimir Bjólfs að gera í buxurnar þegar utanaðkomandi spilarar mæta á svæðið. Valli mætti aftur og er svona hægt og rólega að ná tökum á spilinu. Því miður gleymdi ég að setja hann inn í töfluna þar sem ég er ekki með tölvuna en ég held að hann hafi lennt í 5. sæti (milli Loga og Andra). Ég gleymdi einnig Alexander líka sem stóð sig ágætlega en það voru þeir Helgi og Rúnar sem gerðu lítið úr atvinnumönnunum.

Staðan er komin inn og geta menn grátið yfir henni hver í sínu horni.

Mótið einkenndist af fjölda ofurhanda. Fjölmörg full hús litu dagsins ljós og yfirleitt voru þau samhliða sort eða söð. Þannig fengu margir á baukinn og urðu illa úti samanber meðfylgjandi mynd sem er útlistuð hér fyrir neðan.

Borðið var

7♥ 7♠ Á♠  3♠  5♣

Gunni Bóndi var með

Q♠ 9♠

Alexander sló sort Bóndans út með

K♠ 5♠

Rúnar bætti um betur og gerði lítið úr þeim báðum með fullu húsi

Á♣ 7♣

Þetta gerðist tvíveigis um kvöldið, þ.e. tveir aðilar með sort og sá þriðji með fullt hús.

Einnig er búið að uppfæra stöðuna um Bjólfsmeistarann 2011

Lesa meira
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…