Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Friday the 13th

Skrifað af þann 14. Jan 2012 in Mót, Myndir | 4 athugasemdir

Það var gríðargóð mæting á síðasta mót og vantaði aðeins Bóndann þar sem hann var upptekinn við að bjarga efnahag þjóðarinnar úti á ballarhafi. Við vorum því þrettán meðlimir á föstudaginn þrettánda og spiluðum þar með á tveimur borðum.

Lesa meira

Fyrsta mót ársins á föstudaginn

Skrifað af þann 10. Jan 2012 in Mót | 4 athugasemdir

Eftir fjölskyldufrestun er komið að fyrsta móti almanaksársins föstudaginn 13. Að þessu sinni býður Massinn okkur í sinn rómaða skúr á nýjan leik og heyrst hefur að vegna ófærðar í sumarbústaðinn er Heimir að hugsa um að heiðra okkur með nærveru sinni. Það þarf að taka þann dreng ærlega í gegn og lesa honum pistilinn þar sem hann hefur ekki enn greitt árgjaldið né mætt á eitt einasta mót á þessu pókerári. Iðnaðarmaðurinn er búinn að skrá sig í mótið og lofar betrun í mætingu með betri forgangsröðun.

Skráningar eru farnar að detta inn og verður rauði penninn dreginn upp á miðnætti á fimmtudag!

Skrá í mótið

Lesa meira

ÚRSLIT – Bjólfur OPEN 2011

Skrifað af þann 31. Dec 2011 in Boðsmót, Mót | Engar athugasemdir

Alls tóku 36 spilarar þátt í Bjólfur OPEN á Öldunni þetta árið og var góð stemning á mönnum en í ár tók engin kvennmaður þátt, sem fyrr var haft á orði að þær þyrftu að vera til staðar til að gefa og bauð einn bæjarbúi sína snót til verksins á næsta ári.

Adólf Guðmundsson var sá eftirsótti (bounty) og stóð sig með stakri prýði þrátt fyrir örlitla hnökra en þetta rifjaðist upp fyrir honum eftir sem leið á mótið. Manna tókst þó á endanum að slá Adda út og hreppti fyrir það 10 KÍLÓ af fiski.

Lesa meira

Bjólfur invitational

Skrifað af þann 3. Dec 2011 in Mót | 7 athugasemdir

Þá er jólahlaðborði Bjólfs lokið með fínnri þátttöku og góðri stemningu. Eftir að hafa skolað pizzum og borgurum niður með jólabjór var gefið í spil og fengu Bjólfsmenn ekki eins slæma útreið og á mótinu í fyrra á Rauða ljóninu en þó voru tveir boðsspilarar sem stóðu sig aðeins of vel.

Lesa meira

Bjólfur OPEN

Skrifað af þann 10. Nov 2011 in Boðsmót, Mót | 7 athugasemdir

Bjólfur á bókaðan pókersalinn á Rauða ljóninu Eiðistorgi fyrir næsta mót, föstudaginn 2. desember. Eins og í fyrra verður mótið opið fyrir vini og vandamenn meðlima og gott væri að skrá þá um leið og meðlimir skrá sig eða í það minnsta láta mig vita með öðrum hætti hversu mörgum þeir ætla að bjóða.

Við hittumst kl. 19:núllnúll í pizzu og bjór og til að stilla saman strengi en mótið byrjar kl. 20:núllnúll

Mótafyrirkomulag verður nánast óbreytt en bætt hefur við loturnar og rebuy hækkað í 1.500 kr. Þá hefur þússarinn verið færður yfir á næsta mót. Fyrir þá sem ekki hafa spilað áður með klúbbnum verður fyrirkomulagið eftirfarandi:

Lesa meira

M1 lokið

Skrifað af þann 5. Nov 2011 in Mót | 8 athugasemdir

Þá er stórskemmtilegri mótaröð lokið þar sem Eiki Bót, son of Bjössi í Bót, sigraði með jafnri og þéttri spilamennsku. Sem fyrr er þéttur pakki á toppnum og munar aðeins 3 stigum á fjórum efstu spilurunum – sjá stöðuna í heild.

Lesa meira
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…