Lokamót – strúktúr
Líkt og Massinn er ég svo spenntur fyrir bústaðnum að ég er strax farinn að plana strúktúrinn. Ég verð að játa að þrátt fyrir sigur á síðasta lokamóti er mótið ekkert í fersku minni en ég held að mótafyrirkomulagið hafa verið ágætt og reikna ég með svipuðu fyrirkomulagi í ár.
Lesa meiraBústaðir staðfestir
Massinn hringdi inn góðum fréttum á fréttavef Bjólfs í gær. Bókaðir hafa verið tveir bústaðir fyrir lokamótið (staðfest). Það á reyndar eftir að athuga hvort ekki sé hægt að kaupa þrif…
Kjötsúpumótið
Eftir að hafa skolað matarmikilli kjötsúpu niður með tékkneskum Budweiser var gefið í spil. En áður en spilið hófst var gestgjafa, formanninum og afmælisbarninu færð vegleg afmælisgjöf, takk kærlega fyrir mig.
Lesa meiraM2 lokið
Þá er annarri mótaröð á þessu pókerári lokið. Það var Mikkalingurinn sem sigraði þessa mótaröð en Logi var sigurvegari kvöldsins og jafnaði þar með Mikkalinginn í keppninni um Bjólfsmeistarann 2012 auk þess að landa einum 7-2 sigri og sækir hart að Pusa í þeim leik (ekki alveg á það bætandi að mínu mati). Hægt er að kynna sér stöðuna á þar til gerðri síðu ef menn hafa einhvern áhuga á því.
Hvað mig persónulega varðar var þetta versta pókerkvöld sem ég hef átt og var þar um að kenna helvítis cash game-inu eftir mótið…en líklega mest áfenginu!
En framundan er ný mótaröð og nóg af stigum í pottinum og spilum í stokknum, það er bara spurning hvort það verði nóg að aurum í buddunni.
Loksins eru allir meðlimir bolaðir upp þegar Timbrið fékk sinn bol í hendur.


































Mót á föstudaginn
Ég áttaði mig allt í einu á því að það er mót á föstudaginn. Þetta kom alveg aftan að mér og nú gefst mér ekki tími til að setja saman stradegiu og gameplan. Auk þess á eftir að finna mótshaldara fyrir þetta mót. Ég ætla að halda næsta mót en er einhver sem býður sig fram fyrir föstudaginn?
Lesa meiraNýtt fyrirkomulag í næstu mótaröð
Það verður örlítið breytt fyrirkomulag í næstu mótaröð (M3). Það er eitt mót eftir í þessari mótaröð (M2) og því tekur þetta fyrirkomulag ekki gildi fyrr en eftir næsta mót.
Fyrirkomulagið ER skjalfest á síðunni og því gott og gilt fyrir næstu mótaröð 😉 Þetta er afbrigði sem við spiluðum í afmælismótinu hans Loga með örlítið lagfærðum upphæðum. Nú kaupa allir sig inn fyrir hámarksupphæð og ráða hvenær þeir taka hluta af staflanum sínum.
Lesa meira
❤️😘