Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Aðalfundur

Skrifað af þann 3. May 2012 in Blog, Mót | 3 athugasemdir

Nú líður senn að lokamóti ársins og að vanda verður útkljáð um allar keppnir og hliðarkeppnir í bústað úti á landi. Þá er ekki úr vegi að líta yfir farinn veg og skoða hvað var vel gert og hvað má betur gera hvað varðar mótafyrirkomulagið. Ég held að meðlimir séu að mestu sáttir með flesta þætti en þessa þætti tel ég þó að við ættum að skoða nánar:

  1. Innkaupsupphæð.
  2. Á að leyfa rebuy og add on aftur?
  3. Refsistig

Skoða mótafyrirkomulag og reglur yfir refsistig.

Lesa meira

Ljónsmót

Skrifað af þann 28. Apr 2012 in Mót, Myndir | 2 athugasemdir

Með Massann í casino í Berlín var enginn til að bjóða sig fram til að halda mótið og var því haldið á Rauða ljónið. Þó svo að skúrinn hjá Gísla sé alltaf góður er alltaf stemning að mæta á Ljónið í flotta aðstöðu en það hefur auðvitað svolítil áhrif á budduna að þurfa að versla á barnum og ekki sama umhyggja og gestrisni og þegar meðlimir eru sóttir heim (það má t.d. ekki vænta þess að breytt sé yfir þá sem komast ekki heim).

Lesa meira

Mót á Rauða Ljóninu

Skrifað af þann 26. Apr 2012 in Mót | 1 ummæli

Mótið á morgun (föstudag) verður á

Rauða Ljóninu kl. 20

Pizza og bjór kl. 19.

Vinir og velunnarar velkomnir.

3.000 buy in.

Lesa meira

Mót á föstudaginn

Skrifað af þann 23. Apr 2012 in Mót | 4 athugasemdir

Nú líður undir lok tímabilsins á þessu pókerári. Baráttan er hörð á öllum vígstöðvum en einungis munar 4 stigum á Eika og Loga í Bjólfsmeistaranum. Bósi og Eiki eru jafnir í M3 með 15 stig og Hobbitinn fylgir fast á eftir með 14 stig. Næst síðasta mót verður á föstudaginn og er síðasta tækifærið að bjóða heim fyrir bústaðinn. Allmargir fengu refsistig fyrir vankanta á skráningu á síðasta móti og ættu menn að passa betur upp á þetta þar sem hvert stig hefur gildi.

Lesa meira

Kex og ostar

Skrifað af þann 31. Mar 2012 in Mót | 3 athugasemdir

Það er að ekki að spyrja að því frekar en fyrri daginn þegar Iðnaðarmaðurinn er sóttur heim, veitir hann vel. Það er alveg spurning um að festa honum verðlaunasæti þegar hann heldur mót til að hann hafa upp í kostnað. Hann var með ostaþema að þessu sinni og gátu menn gætt sér á djúpsteiktum ostafingrum og osti í spraybrúsa ofan á kexið. Snakkið og hneturnar voru á kantinum og boðið var upp á klassískan GT auk bjórs fyrir þá sem gleymdu bjórnum sínum í frystunum heima.

Lesa meira

Mót á föstud.

Skrifað af þann 25. Mar 2012 in Mót | 18 athugasemdir

Jæja félagar, senn líður að næsta móti sem verður næst komandi föstudag (30. mars). Hver býður sig fram að halda það?

Við þurfum ekki að hafa áhyggjur af Massanum á þessu móti en Bósi virðist vera að ná sínu gamla formi, Eiki spilar alltaf sinn solid game og Logi mætir örugglega banhungraður eftir að tekið brúðkuapsferð með konunni fram yfir Bjólfsmót. Svo er auðvitað keppnin um 72 bjóra sem Pusi leiðir með mikilli sæmd.

Skoða stöðuna Skrá í mót

BÓSI ER BESTUR!!!!!!!!!

Lesa meira
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…