Ég kom ekki til að vera áhorfandi (Bjólfur XVI.7)

Þrátt fyrir leiðindaveður létu menn það ekki stoppa sig og 13 félagar lögðu leið sína í Vesturbæinn þar sem Mikkalingurinn( eða Veiðimaðurinn eins og hann er stundum kallaður) bauð heim í sjötta skiptið frá upphafi Bjólfs og er í fimmta sæti yfir þá sem oftast hafa boðið heim á þessum sextán árum.
Bjór
Bennsi gerði upp við Bjórguðinn og ekki leiddist mönnum að þar leyndust Lommsa bjórar sem skemmtu mönnum mikið með sláanlega líku nafni og okkar kæri Lommi…þannig að Kapteininn saup Lommann í kvöld 😉
Gyðja gæfunnar var líka ferli í kvöld og 3 bjórstig sem komu í hús…Heimsi með 2 og Kapteininn 1.
Kapteininn jafnar þannig Timbrið í á toppnum og Heimsi er í öðru sætinu þegar tvö kvöld eru eftir.
Hverjar eru líkurnar á því…50/50

Spilið
Stemningin var góð frá fyrstu mínútu og stokkar fljótlega komnir á loft þegar sest var við borðið og kvöldið sett í gang. Ýmsilegt gekk á fyrir hlé…en skipti engu máli fyrr en eftir hlé þegar menn fóru að detta út.
Bóndinn var fyrstu frá borði…tók á sig að sýna mönnum hvernig ætti að yfirgefa leikinn svo aðrir gætu náð lengra.
Ég er ekki einu sinni að drekka
Massinn var næstur og náði ekki að fylgja eftir góðu gengi frá síðasta móti.
Bara svo þið vitið það…þá blöffa ég ekki
Timbrið var þriðji maður frá út og þrátt fyrir að vera með toppmætingu þá eru kvöldin/spilin bara ekki að lenda hjá honum á þessu tímabili.
Bótarinn fylgi á eftir og fór ekki lengra að sinni og aðeins að detta niður eftir gott gengi undanfarið.
Það er bara hægt að gera einn hlut í einu
Spaða Ásinn fór ekki lengra í þetta skiptið…þó svo að hafa pakkað ásum nokkru sinnum…líklega því hvorugur þeirra voru spaða ásinn 😉
Þegar hér var komið sögu var sameinað á Lokaborðið.
Iðnaðarmaðurinn var næstur út…en að ná áttum eftir að hafa misst af síðasta móti og gefið Lucky lausan tauminn í Meistarabaráttunni.
Þú mátt alveg segja það!
Hobbitinn hékk ekki lengra en sjöunda sætið.
Þú mátt spyrja hvort þú mátt segja eitthvað 😉
Lucky var að játa sig sigraðan með hús á móti fernu hjá Bensa.
Ertu með? Já ég þarf fyrst að fá tvö spil!
Húnninn tók búbbluna.
Það er það góða við bananann…helvíti þægilegur


Kapteininn landaði fyrsta verðlaunasætinu.
Stjórnin að spila
Mikkalingurinn stóð sig vel á heimavella og fékk 3ja sætið.
Má ég segja eitthvað? Ég er enn með í spilinu!
Bensi náði ekki að gera mikið á móti Heimsa…frekar en nokkrir aðrir í kvöld.
Ég kom ekki til að vera áhorfandi
Heimsi var heitari en aðrir þetta kvöld. Kom öllum að óvörum þ.s. hann gleymdi að skrá sig…og enginn gat lesið hann. Hann mætti í miklu stuði, spilaði af öryggi og nældi sér í tvö bjórstig á leið sinni að sigrinum. Hann einfaldlega rúllaði upp kvöldinu og skildi aðra eftir í eltingarleik og að vissu leiti var þetta bara spurning hverjir aðrir myndu hirða afgangana.
Ég er edrú…þetta er náttúrulega svindl

Á toppnum í heildarkeppninni heldur Lucky þó áfram velli. Hann er enn með stuttu stiga forystu, og þegar aðeins styttist í lok tímabilsins er meistaratitillinn í raun hans til að tapa.
Getur ekki alltaf klikkað
Það verður því spennandi að sjá hvort einhver nái að ógna honum í lokasprettinum — eða hvort Lucky siglir einfaldlega titlinum heim…síðan er allt opið í síðustu mótaröðinni þar sem Heimsi leiðir og keppnin um Bjórguðinn er æsispennandi…
Eru ekki allir hinsegin?






❤️😘