Euro jackpot fyrir bústaðinn?
Bústaðarferðin í ár er helgina eftir Eurovision (einhver hafði sagt að við værum á sama tíma og Eurovision keppnin)…en það er bara pláss fyrir eina stórkeppni um hverja helgi 😉
En fyrst við erum ekki að fara að horfa á Euro-vision er þá ekki spurning um að við skellum saman í einn feitann kerfismiða í Euro-jackpot og sjáum hvort heppnin sé ekki með okkur og við vinnum inn fyrir Mónakó/Halifax póker heimsreisu 😉
líst vel á það
Þá verður Lucky Luke að velja tölurnar
Hahahahahaah…djöfull væri nú sweet að landa einum feitum saman. Þyrfti samt helst að vera þannig að allir tæku þátt, væri helv. sárt að skilja einhverja útundan 😉
Líst hrikalega vel á þessa hugmynd
ég er til.
Góð hugmynd
Ég legg til að við tökum 7 tölur…það gefur okkur 1 á móti c.a. 32000 og ekki nema þúsundkall á haus sem við tökum af “reikningnum” þ.s. við eigum smá $ þar 😉 Nema við skellum okkur í 8 tölurnar eins og Massinn lagði til?
En það er spurning með framkvæmdina…við verðum klárlega að kaupa miðann á leiðinni…og ég verð að vera í Lucky Luke bolnum 😉