Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Iðnaðarmaðurinn lætur ekkert stoppa sig

Lokaboðrðið (vantar Loga)
Það var tylft Bjólfsmanna sem hittist hjá Spaða Ásnum á lokakvöldi fyrstu mótaraðarinnar 2013-2014.
Ásinn veitti vel og fór vel um okkur á nýjum stað…þó svo að við hefðum þurft að hafa upphækkun fyrir annað borðið…en það var bara notaleg lágmenning þar á borði 😉

Bjór
jolabjorTimbrið kom með bjórgjöf sem var ekki að verri endanum þar sem um jólabjór var að ræða og sú vara þykir nú merkileg þar sem hún er ekki komin í almenna sölu hér á landi fyrr en í næstu viku. Þá eru 5 enn eftir að gera upp sín mál og ýmislegt spennandi víst á leiðinni?

Sjöa-tvistur
bjorhondÞað bættist aðeins í bjórstigasafnið. Fyrsta stigið var tvöfallt þegar ég fór allur inn í fyrstu hönd eftir að hafa keypt mig aftur inn og með 72…Pusi sá það og Massinn líka. Massinn var með 72 og með sjöu í borð hitti Pusi ekki á neitt og tvö bjórstig bættust í sarpinn.
Mikkalingurinn nældi sér svo í bjórstig þegar hann hækkaði vel pre-flop…ég gat ekki séð hann með 84 og því þurfti hann ekki mikið að svitna yfir því stigi.

Afmælishöndin
Mikkalingurinn hefur nú oftar en ekki fengið afmælisdaginn sinn 35 og hann var einmitt með þá hönd á móti Pusi sem var allur inni með K4. Þó svo að Pusi hafi náð sér í fullt hús með 33K og Á3 þá dugði það skammt á móti fjórum þristum sem tóku húsið.

Bósi hætti fyrstur…óskiljanlegt að hans sögn hvernig besti leikmaðurinn getur dottið út og mætir væntanlega dýrvitlaus í næstu mótaröð;)

Lokaborðið
Killerinn, Mikkalingurinn, Bóndinn, Iðnaðarmaðurinn, Massinn, Gummi gosi & Logi settust niður í lokaslaginn. Ég og Kári vorum lang neðstir og varð ég fyrri til að detta út með gosapar móti ÁQ hjá Massanum. Kári fór út í næsta spili og Gummi stuttu eftir það.
Bóndinn tók bubble og missti af verðlaunasæti

MASSINN
…var ekkert að tvínóna við og kom sterkur inn á fyrsta móti tímabilsins en chippar fóru ósjaldan til hans. Undir lokin vann hann þokkalegan pott með Á2 móti Á3 þar sem 2 í borði reddaði honum. En nokkru síðar var hann með AK móti AQ hjá Iðnaðarmanninum sem hitti á Q og tók Massann út.
En Massin landaði 3ja sætinu og er með stórkostlegt meðaltal uppá 10 (enda bara mætt á eitt mót)…sjáum hvort hann haldi áfram sterkur á tímabilinu…vonandi batnar mætingin hans 😉

Endalokin
Iðnaðarmaðurinn endaði á að standa uppi sem sigurvegari kvöldsins og ná að stela 3. sætinu í lokapottinum. Góður pottur var í gær og náði hann að komast uppí 2. sætið í verðlaunafé…þó aðeins hálfdrættingur á við Bótarann sem enginn komst nálægt þá hann hafi verið fyrr út núna en undanfarin mót. Þannig að staðan í Bjólfsmeistarakeppninni er spennandi…menn sækja á Bótarann sem enn hefur 4 stiga forystu. Mikkalingurinn er líka að byrja vel með 18 stig eftir aðeins 2 kvöld í 4 sæti með 9 í meðtal…þannig að hann er til alls líklegur þó hann hafi ekki mætt á öll kvöldin.

Frábært kvöld eins og alltaf…sjáumast hjá Robocop eftir 3 vikur.

3mot2013
P.s. í hléi var add-on breytt í fill-up eftir að ég hafði reiknað út og skipt öllum verðlaunum, þannig að sá fimmhundruðkall var færður til bókar sem “önnur innkoma” í klúbbinn og er ég búinn að millifæra hann á reikninginn.

Ein athugasemd

  1. Frábærar veitingar hjá Gumma, ég sá að Andri nötraði af reiði þegar hann sá Gumma taka út eplapæ úr ofninum. Hörð keppni um gestgjafann.

Skilja eftir ummæli

Your email address will not be published. Required fields are marked *

  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…