Nær einhver í skottið á Lucky?

Spennan er að magnast þegar fimmtánda tímabilið er að klárast! Með aðra höndina á bikarnum stendur Lucky á toppnum – en Kapteininn og Iðnaðarmaðurinn eru ekki tilbúnir að gefast upp þó þeir séu langt á eftir þá sjá þeir enn í skottið á honum og eru ekki af baki dottnir!
🥇 134 stig – Lucky
🥈 121 stig – Kapteininn
🥉 120 stig – Iðnaðarmaðurinn
Til þess að missa af áttunda titilinum þarf Lucky að vera meðal fyrstu manna út – en þetta er mótaröðin, og allt getur gerst. Við höfum séð kraftaverk áður… og það er engin miskunn í bústaðnum!
Verður Lucky krýndur óumdeilanlegur GOAT eða fáum við nýjan meistara í safnið?
Og ef það væri ekki nóg… með sæti í top 3 gæti Lucky slegið nýsetta met Mikkalingsins …og ef hann tekur sigur sigur verður hann fyrstur til að klára mótaröð með fullu húsi stiga og rita nafn sitt í sögubækurnar með gylltu letri. 📜👑
Lokaspretturinn að titlinum ræðst á lokamótinu í bústaðnum!
❤️😘