Nýr aukabúnaður í töskunni
Það er kominn nýr aukabúnaður í töskuna. Það kom forlát gjöf til formannsins; karlmannsilmur sem lítur út eins og stafli af spilapeningum. Mun þetta henta mjög vel í neyðartilfellum þegar menn mæta illa lyktandi beint á mót og þurfa að hressa uppá sig.
Reyndar gerist það nú mjög sjaldan og minnist ég þess aðeins einu sinni þurfti að redda sokkum og svitalyktareyði til að koma manni í stand til að setjast við borðið 😉
Kannski verður þetta líka verðlaunailmurinn, þannig að sigurvegarinn fær eina gusu á sig eftir að landa sigri 😉
Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…