Nýjustu fréttir
1 dagur í bústað – #bjolfur
Einn dagur í bústað og nú fara menn að taka allt sem þarf og gera sig klára. Fyrir þá sem eru duglegir að mynda þá notið endilega #bjolfur til að merkja. Ef þið póstið á instagram þá fara þær myndir sjálkrafa hérna hægra megin á síðuna…ekki erum við enn að lesa upp frá öðrum miðlum en þeir dreifast á milli þeirrra sem fylgjast með þar.
Þannig að: merkið allar færslur sem fara frá ykkur með #bjolfur
Lesa meira2 dagar í bústað – Sjötta tímabilið senn á enda
Það er við hæfi að taka smá yfirferð á tímabilinu, en það virðist alltaf vera jafn stutt síðan tímabilið byrjaði og nýjir menn voru teknir inn. Annar þeirra byrjaði með látum þrátt fyrir að síðan hafi ekki sést mikið af þeim 😉
Búnaður uppfærður
Pókerstaðir
Það voru ekki bara nýjungar í búnaði heldur voru líka nýjir heimavellir.
og hann kallar yfirleitt amk í eitt annað mót hjá sér og er hann löngu búinn að festa sér nafnbótina Besti Gestgjafinn.
Bjólfur OPEN
OPEN mótið í ár var styrktarmót og gekk vel og gaman að geta nýtt klúbbinn til góðs. Bóndinn og fjölskylda fá enn og aftur kveðjur og þökkum við fyrir að fá að geta hjálpað.
Reglur
Reglur varðandi 7-2 voru aðeins skýraðar eftir “vafamál”…ef það skyldi hafa farið framhjá einhverjum, þá er þetta nokkuð skýrt fyrir bústaðinn (þar sem oftar en ekki koma nokkur stig).
Afmæli
Lomminn mætti á afmælismótið sitt og klúbbsins sem lenti einmitt á afmælisdegi beggja og átti hann gott mót.
3 dagar í bústað – 5 merki þessi að þú sért sannur Bjólfsmaður
1. Í hvert skipti sem þú sérð bílnúmer hugsarðu um hversu góð pókerhönd stafirnir mynda.
2. Þegar þú ert að telja og dettur í 7,8,9,10,Gosi,Drotting,Kóngur…
2. Þegar þú biður um launahækkun og færð mótboð þá endurhækkarðu til að reyna að fá hann til að gefast upp.
3. Þegar talað er um Hvali, bændur timbur eða Hobbita þá hugsarðu um félagana.
4. Þegar þú ert að spila annars staðar og færð 7-2 og ferð allur inn til að ná í bjórstig.
4 dagar í bústað – Hvernig varð Bjólfsmerkið til?
Logo Bjólfs varð til sumarið 2010 þegar að Lomminn bað Loga Helgu að koma með hugmynd að logo og hann hripaði niður þessa hugmynd á blað sem var grunnurinn að logo-inu:
Eftir nokkrar ítranir á því var komin niðurstað sem þeir voru sáttir við.
Síðan þá hefur það lítið breyst þó að litirnir (gulu&rauðu) hafa fengið að víkja til að einfalda það fyrir framleiðslur á ýmsum varning og í fyrra var “Poker Club” tekið út af heimasíðunni og merkingum svona ef ske kynni að menn gerðu einhverntíman eitthvað meira en bara spila póker 😉
Undirritaður hefur sérstaklega gaman að hafa útlínurnar á fjallinu “eina” þarna í bakgrunni alltaf þegar maður horfir á spilapeningana, heimasíðuna, húfuna, bolina, bjórkönnuna…
Lesa meira5 dagar í bústað – Pókerinn…
…bindur (Seyðfirðinga) saman…alltaf gaman að rifja upp gamla tíma, hérna er mynd úr greininni sem kom í Séð og Heyrt 2011…skemmtilegt að minnast þess að við vorum ekki 15 ára félagar að spila póker eins og ljósmyndarinn hélt 😉
Menn hafa nú sumir fullorðnast síðan þetta var og fleiri nick komin á menn heldur en voru í gangi þarna 😉
Lesa meira
Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…