Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Nýjustu fréttir

Ánægjulegt uppgjör

Birt af þann 6. Oct 2013 Í Blog | Engin ummæli

Ég verð að hrósa Iðnaðarmanninum sérstaklega fyrir bjóruppgjörið sitt. Blanda af bjórum sem samanstóð af Surti, Steðja og Einstök. Þetta sýnir hversu mikill greifi hans innri maður er 😉

Lesa meira

Bótarinn strikes again

Birt af þann 5. Oct 2013 Í Mót | 1 ummæli

Bósi bauð heim í annað kvöld í fyrstu mótaröðinni á tímabilinu og 9 félagar sem settur niður við borðið.

Þar á meðal var Gummi Magg (aka Ásinn) mættur aftur eftir ársleyfi í pókerbúðum í Eyjum. Hann fékk könnuna sína sem er búin að vera í geymslu á meðan og gat loksins klætt sit upp í 2011 bolinn og mætt á mót með okkur. Gaman að fá hann aftur og það er nokkuð víst að “ásinn er alltaf góður” … sérstaklega spaðaásinn 😉

Bjór
bjor
Fleiri gerðu upp bjórskuldirnar og verð ég nú að viðurkenna að það er ekkert leiðinlegt að fá bjór í hvert skipti sem maður mætir 😉

Spilið byrjað
IMG_2999
Eins og sjá má af myndinni var vel dimmt yfir okkur á Bósastöðum en það má einnig sjá á myndinni að Rafvirkinn er mjög hugsi yfir þessu og Bósi þarf klárlega að kalla hann út til að taka rafmagnið í gegn…sem virtist vera að stríða eitthvað ljósum & símum 😉

Ekki var mikið um endurinnkaup en hins vegar var mikið um það að sami maðurinn var að safna chippum. Robocop var að hitta mjög vel framan að og þegar kom að hléi var hann um þrefallt stærri en næsti maður. Með um 90þ chippa, næsti maður 30þ og síðan voru menn 20þ og niður í um 10þ. Þannig að það leit allt vel út fyrir hann á þeim tímapunkti.

Sjöa-tvistur
Bjórhendur sáust ekki oft. Ef ég man rétt gaf einhver þá hönd upp þegar hækkað var á móti. En 72 dúkkaði þó upp þegar að Timbrið sýndi 72 þegar að floppið hafði verið JJ8 og Ásinn & Pusi voru báðir inná móti. K á river & 9 voru ekki að gera neitt fyrir Timbrið sem reyndi að representa gosana en var séður af Ásnum með 89 en Pusi sýndi 8Á þannig að Gummi tók þá hönd með níuparinu og engir bjórstig skiluðu sér í hús. En Gummi var kampakátur enda búinn að taka nokkrar hendur með spaðaásnum líka 😉

Spilurum fækkaði
Einn af öðrum duttu menn út en engum tókst að ná þúsaranum af Bótaranum. Hann fór all-in með 14þ chippa og ég sá hann með um 12þ með kóng og lágspil á hendi á móti Ás og lágspili hjá Bótarnaum. 2 kóngar í borð gáfu mér sett en Bótarinn hitti á tvö spilin sem hann vantaði fyrir röðina og tók mig út…eftir það virtist sem að spilin færðust frá Robocop yfir á Bótarann sem hitti…litir, sett og jafnvel fleira sem hann þurfti ekki að sýna.

Endaleikurinn
Þegar hér var komið sögu var Bótarinn í vænlegri stöðu, Robocop átti eithvað enn eftir og Timbrið var þokkalega statt. En leikar héldu áfram sem áður og menn áttu lítið í Eika sem tók Timbrið út á húsi (minnir mig) og síðan var síðasta spilið dæmigert þar sem Gunni var allur inni með 1010 á móti 59 hjá Eika og í boðið kom 678 sem gaf Bótaranum röðina og annan sigurinn sem og þúsarann fyrir kvöldið.

Eiki er því í vænlegri stöðu eftir fyrstu tvö kvöldin og tvo sigra, það er klárt að hann ætlar að vera í toppbaráttunni í ár eftir að hafa ekki náð að halda í við gott gengi þarsíðasta ár.

test2

Gott kvöld að vanda 😉

Síðan var setið fram eftir nóttu og rætt um ýmsa góða menn og góð málefni. Pólitík bar jafnvel á góma og liggur við að það þurfi að setja reglu að ræða ekki hana á svona kvöldum þar sem það endar bara með ofhitnun hjá einhverjum á endanum 😉

Lesa meira

Mót hjá Bósa á föstudaginn

Birt af þann 29. Sep 2013 Í Mót | 2 Ummæli

Næsta mót er á föstudaginn hjá Bósa að Hlaðbrekku 21 í Kópavogi eins og einhverjir ættu að muna frá því fyrr í ár þegar við settumst niður hjá honum…byrjum kl. 20:30 ef einhver skyldi vera búinn að gleyma því.

Lesa meira

Áskorunin tekið

Birt af þann 14. Sep 2013 Í Blog | 5 Ummæli

( var annas ekki verið að skora á okkur hinna að koma með innleg á síðuna)

Mér finnst eins og ég hafi séð einhver staðar að það hafi verið að biðja okkur hinna að koma með innleg hérna á síðuna. Alla vegna þá verð ég bara skammaður fyrir að vera fokka í síðuni ef þetta er rangt hjá mér.

Lesa meira

Fullir kúrekar – (hljóð)bók “mánaðarins”

Birt af þann 9. Sep 2013 Í Bók mánaðarins | Engin ummæli

Bók mánaðarins (sem kemur ekki alveg reglulega mánaðarlega hér á síðuna 😉 er að þessu sinni Cowboys Full: The Story of Poker eftir James McManus, sjá á amazon.com.
Hér er á ferðinni skemmtileg innlit í uppruna pókers og sagt frá hvernig franska spilið poque þróðist í New Orleans og fluttist upp Mississippiánna með gufubátum áður en það náði rótgróinni tengingu við landið. Margt áhugavert og skemmtilegt á ferðinni hér og gefur skemmtilega innsýn inní uppruna leiksins og segir frá vel völdum persónum úr pókersögunni sem og að tengja leikinn við núlifandi aðila eins og forseta bandaríkjanna…sem er víst nokkuð lunkinn pókerspilari…bókasíðan.

Lesa meira
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…