Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Rúllaðu þér í gang fyrir bústaðinn með Bjólfsslögurunum 🎶🔥

Bústaðurinn er handan við hornið og fyrir þá sem vilja mæta rétt stilltir á bylgjuna er lausnin einföld:
👉 setja Bjólfsslagarana í botn og leyfa stemningunni að taka yfir.

Það eru orðnir fjórir opinberir Bjólfsslagarar sem hafa fylgt klúbbnum í gegnum kvöld, mót og ferðalög — lög sem hafa séð allt, frá fyrstu höndum kvöldsins til síðustu blöffa. Þetta eru ekki bara lög… þetta er upphitun, hefð og hálfgerð trúarathöfn áður en sest er við borðið.

Það er líka ljóst að einhverjir ætla ekki að taka neina sénsa og byrja upphitunina snemma — jafnvel strax í dag! Sumir eru búnir að pakka og í startholunum…snöppin fara að detta inn…og slagararnir botnaðir. Því eins og við vitum: það er ekki nóg að mæta… það þarf að mæta í réttu ástandi og sumir þurfa að hita upp 😉

Hvort sem þú ert að keyra, pakka, græja eða bara að koma þér í gírinn og bíða eftir föstudeginum — þá er þetta leiðin. Settu slagarana í botn, syngdu með og leyfðu kvöldinu að byrja áður en það byrjar.

Spurningin er ekki hvort þú hlustar…
👉 heldur hvaða lag kemur þér í réttan gír 😏🎶🍺🃏

Skila eftir athugasemd

  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…