Síðasta kvöldið fyrir bústað eftir 2 daga
Það er að skella á síðasta “heimapókerinn” fyrir bústaðinn…2 dagar til stefnu og 4 efstu menn í Bjólfsmeistarakeppninni hafa þegar skráð sig til leiks.
Í síðustu mótaröðinni er Pusi í forystu með eitt stig á Bótarann og Timbrið og Mikkalingurinn eru 3 stigum á eftir. Þannig að það er barist á öllum vígstöðum að ógleymdum Bjórkeppninnni þar sem Timbrið heldur enn forystunni með 3 stig og Bótarinn hefur 2…þar á eftir koma 8 Bjólfsmenn með eitt stig þannig að það gæti enn allt gerst þarna líka.
Eintómir hákarlar sem verða við borðið á morgun, útlit fyrir fámennt mót…en sérstaklega góðmennt 😉