10…
…dagar í bústaðinn og rifjum upp bústaðinn fyrir 10 árum og tímabilið 2012-2013.
- Stórar breytingar voru í klubbnum þegar að Stofnandinn flutta burt og Lucky tók við formennskunni og menn hugsuðu um framtíðina og kvöddu Lommann formlega á síðunni.
- Skipulagið fyrir tímabilið var sett upp myndrænt…og meira að segja prentað út og plastað ;D
- Nýjir meðlimir bættust í hópinn þegar að Killerinn og “Nágranninn” gengu til liðs við Bjólf.
- 1000 athugasemdir á síðunni, en á þessum tíma vorum við ekki með netspjallið á neinum öðrum stað og samtölin fóru meira fram í athugasemdum á síðunni…og við vorum virkir í athugasemdum þarna í 2000 náðist áður en tímabilið kláraðist <3
- Menn hugsuðu vel um klúbbinn og sendu inn það sem vantaði til að allt væri til staðar í töskunni góðu 😀
- Sumir hugsuðu lengra og byrjuðu að setja fram hugmyndir um utanlandsferð…sem hefur ekki enn orðið að veruleika 🙂
- Skelltum okkur á Hobbitann með Hobbitanum <3
En þegar kom að bústaðnum þá var það 3 ára bið á enda þegar Robocop tók fyrsta sigurinn sinn og kom sér jafnfram á blað með Bústaðameistari. Lucky náði sér í fyrsta Bjórmeistaratitilinn sinn og annan Bjólfsmeistaratitilinn. Nokkrar myndir á færslunni en virðumst hafa klikkað á hópmynd þarna eins og árið áður :). Gott ef þetta var ekki líka þegar “veiðferðin” fræga þegar að nokkrir voru vel útbúnir í veiðgalla og með allar græjur þegar Heimsi mætti með barnastöng (og líklega bara á peysunni við hliðina á þeim í hafgolunni) og veiddi alla fiskana 😀
Var þetta jafnframt í fyrsta skiptið sem við fórum á Apavatn og höfum gert oft eftir það…og eins og við gerum núna eftir 10 daga 🙂
Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…