Bjólfur XVII hefst – Mikkalingurinn las framtíðina

Það var komið að því. Sextánda tímabil Bjólfur var hafið og eins og lögmál Bjólfs gera ráð fyrir hófst ferðalagið hjá Iðnaðarmanninum, sem tók á móti bræðrum sínum eins og greifinn sem hann er alltaf. Veisla var framreidd, borðið tilbúið og allt til alls. Mætingin var þó í hóflegri kantinum – bara rjóminn af Bjólfi – og þeir sem mættu þurftu ekki að eyða löngum tíma í að komast að lokaborðinu. Menn settust einfaldlega niður og hófu leik á Lokaborðinu.
Bjórguðirnir blessuðu enga
Kall…kall…skítakall?
Það er ekki fyrir hvern sem er að treysta prumpinu

Sögur af bjór, fórnum og stigum voru frekar fáar og ekki eitt einasta bjórstig féll til þeirra sem sátu við borðið. Lucky fékk bjórhöndina tvisvar, en þrátt fyrir það fékk hann enga blessun frá Bjórguðinum. Það er einfaldlega ekki nóg að fá réttu höndina. Maður þarf að hafa staðið í skilum við guðina.
Call…eða bara all in
Reyndar var það aðeins Hr. Huginn sem gat setið við borðið með algjörlega hreina samvisku. Hann hafði gert upp sínar skuldir við Bjórguðinn og gat því horft rólega á þegar hinir reyndu að fá blessun án þess að hafa greitt aflagjaldið. Það gaf honum reyndar lítið því hann fekk engan sigur…bara hrein samviska eftir kvöldið og þann óefstirsótta heiður að vera fyrstur frá borði…enda ekki annað hægt þegar enginn var sigurhöndin.
Hvernig var þessi sáttafundur annars?
Spaða Ásinn mætti brattur eftir að búinn að drekka dagvinnufélagana undir borðið og tóks við að skáka kvöldfélögunum…en eftir nokkur spil fór að draga úr honum og eftir veitingar í hléi var hann orðið þreyttur og vildi fara heim…en það var ekki nóg fyrir hann að detta út, hann þurfti að bíða eftir einhverjum til að skutla sér þannig að hann tók bara leggjuna í sófanum þar til menn kláruðu sig af á borðinu.
Eitt graðasta móment sem ég hef séð
Iðnaðarmaðurinn var sannkallaður greifi heim að sækja…enda er hann með eignarétt á viðurnefninu Gestgjafinn (ásamt fleirum) og þrátt fyrir að vera í fantaformi í eldhúsinu, sál og líkama þá fékk hann ekki að fara lengra í kvöld. Kom reyndar með hugmynd sem á að leggja fyrir á næsta aðalfundi að þegar að gestgjafi dettur út þá er bara dregið um sæti hjá restinni af spilurum og leik lokið.
Auðvitað átti maður að kíkja…djöfull er maður vitlaus
Húnninn fékk ekki að njóta sín fyrir Lucky. Hann virtist einfaldlega ekki eiga roð í Lucky sem byrjaði að taka ásana hans út, síðan var það þrenna á móti tvennu og alveg sama hvað Húnninn reyndi – Lucky virtist alltaf hafa svarið. Að lokum komst Húnninn að þeirri niðurstöðu að það væri líklega skynsamlegra að hætta bara að reyna við Lucky og finna sér einhvern annan til að glíma við en endaði þó á því að hann var næstur út.
Spaðapar
Og Lucky átti ekki auðvelt kvöld. Hann fékk tvær bjórhendur, en fyrri var í handritinu hjá Mikkalingnum og síðari lenti á móti ásum og gafst upp. Kannski var vandamálið að Lucky hafði ekki enn gert upp fórnir sínar við Bjórguðinn og því þeir og Gyðja Gæfunnar kannski ekki eins hliðholl og oft áður. Mikkalingurinn hafði fengið sérstaka sýn hjá seiðkonunni á Lucky og þegar hann settist við borðið var eins og hann hefði fengið að lesa handrit kvöldsins fyrirfram. Hann las Lucky eins og opna bók, sá í gegnum hvert veðmál (svona eins vel og hann sá) og beið einfaldlega eftir rétta augnablikinu. Þó svo að Lucky hafi verið að styrkja sig á kostnað Húnsins þá átti hann engin svör við Mikkalingnum sem endaði á að taka hann út eins hann hefði fengið, lesið og stúderað handrit kvöldsins.

Hann er að elda og segja mönnum til…þetta er ótrúlegur leikmaður
Bensi mætti óvænt og rétt slapp við refsingu…og heppinn að það er löngu búið að afnema þær 😉 en gott að hann komst og fyllti Lokaborðið. Skyndiákvörðunin fór ekki lengra með hann en í búbbluna í þetta skiptið.
Er eitthvað að brenna í ofninum?
Að menn hafi hætt sér í að segja þetta
Kapteininn silgdi eins langt og hann gat, enda ekki sonur Palla Gústa fyrir ekki neitt. En það var ekkert hægt að ráða við galdurinn sem Mikkalingurinn var með handrit af kvöldinu og annað sætið rauninn ásamt ánægjan að sækja/skutla var það sem hann tók með sér eftir kvöldið… auk einnar bjórfórnar…og verðlaunafé fyrir annað sætið, ekki slæm byrjun.
Ég missti linsuna úr auganu ég hló svo mikið
En einn maður hafði undirbúið sig betur en aðrir:
Mikkalingurinn
Á meðan aðrir treysta á reynslu, innsæi og kannski smá hjálp frá Bjórguðinum hafði Mikkalingurinn farið allt aðra leið. Hann hafði leitað til seiðkerlingar fyrir tímabilið og fengið framtíðarspá með galdraseið og var tilbúinn að fórna nærri allri sjóninni til að fá að vita hvernig öll spil vetrarins myndu falla…og spákonan virðist hafa hjálpað honum með spilin, þó sjónin væri ekki uppá marga fiska…en það var allt í lagi því hann er ekki kominn til að róa.
Fold…hvað ætlarðu ekki að róa…nei ég er ekki sjómaður
Þegar leið á kvöldið kom í ljós að sýnin hjá spákonunni hafði ekki verið neitt grín. Mikkalingurinn fór mikinn, spilaði af öryggi manns sem vissi hvað beið handan næsta horns og hélt Lucky í algjörri spennitreyju. Að lokum kom stundin sem spákonan hafði greinilega séð fyrir.
Þar með var framtíðarsýnin staðfest. Það sem virtist fyrst vera einföld fórn á sjón hafði skilað sér í sigri – og sem betur fer voru gleraugun til staðar til að koma sjóninni aftur á réttan kjöl.
Nú fara vettlingarnir af!
Eftir að Mikkalingurinn hafði tekið út Lucky lokaði hann bara augunum og spilaði líkt og í transi þurfti ekkert að hafa fyrir því að losa sig við Bensa og Kapteininn og stóð uppi sem sigurvegari eins og nornin hafði spáð.
Ég spilaði aldrei leik nema skora

Mikkalingurinn byrjar því að krafti og spurning hver býður heim næst 9. október?
Fyrst kvöld XVII lokið
Þannig hófst Bjólfur XVI. Iðnaðarmaðurinn bauð til veislu eins og greifi, Mikkalingurinn kom með upplýsingar beint úr framtíðinni, Lucky fór í ásaveiðar á Húnninn áður en hann sjálfur féll fyrir sýn Mikkalingins og Bjórguðinn sat hjá og beið eftir því að menn myndu gera upp skuldir sínar. Keppnin um Bjólfsmeistarann 2027 er hafin.
Skynsamur…eða gunga?
En það er ekki bara Bjórguðinn sem gleymdir engu…það sama má segja um afgjaldið til klúbbsins. Ekki eru allir búnir að gera upp sín mál þar heldur og það gæti haft alvarlegar afleiðingar. Ef menn ætla ekki að standa í skilum gæti einfaldlega þurft að fækka í klúbbnum. Það er þó enn von fyrir þá sem eru í vanskilum.
Helvítis gungan
Formaðurinn getur stundum gefið mönnum séns.
Er DJ Gunga mætt
Það gæti því verið skynsamlegt fyrir menn að fara í smá smjaður og sýna að þeir hafi enn áhuga á að vera hluti af þessari virðulegu stofnun. Hvort Formaðurinn taki við afsökunum, loforðum og jafnvel smá smjaðri eða örðum mútum er svo allt annað mál.
Sautjánda tímabilið hafi, eitt kvöld búið…bjórguðirnir eru ekki vaknaðir en þeir gleyma engu og aldrei að vita hvað gerist á næsta móti og hvaða ráð menn finni til að eiga við spá Mikkalingsins…og hverjir borga árgjaldið?
Djöfulsins eldrimannaklúbbur er þetta orðinn

❤️😘