Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Að tapa er verra en besti sigur! (Bjólfur XVI.8)

Það voru 12 eðalbræður sem mættu á síðasta heimamótið í Bjólfur XVI, þegar Spaða Ásinn opnaði heimili sitt og bauð snemma í veigar og fyrirpartý — sem margir nýttu sér til hins ýtrasta.

Nóg var að bíta og brenna, glös fylltust reglulega (eða menn rötuðu í ísskápinn til að redda sér) og stemningin var eins og best verður á kosið. Menn skemmtu sér konunglega áður en stokkar fóru á loft og alvaran tók við.

Athygli vakti þó að engar bjórgjafir voru veittar og það kannski orðið til þess að engin bjórstig komu í kvöld — en menn eiga eitt kvöld inni til að gera upp sínar skuldir…og ná stigum…meira um það síðar… 🍺

Ég hef aldrei séð svona vitleysu 


Spilið

Kapteininn tók á sig hlutverk kvöldsins og var fyrstur frá borði — einhver þarf jú að byrja.

Mig langaði bara svo að vera með á 67

67 er það ekki búið? Ekki ef maður er kennari í grunnskóla!

Nágranninn, sem kom eins og oft áður um langan veg, náði ekki að fylgja eftir tveimur sigrum á tímabilinu og var næstur út. Hann fékk þó þann munað að leggja snemma af stað heim.

Við þurfum eiginlega áfallahjálp 

Hr. Huginn stimplaði sig inn í þriðju mótaröðina og virðist vera að hita upp fyrir komandi bústaðarævintýri.

Það er betra að tapa en vera chicken 

Hann er ekki vanur að spila

Þykkvabæjarbósi var mjög skemmtilegur 

Í mynningunni er þetta skemmtilegt…en ekki á meðan á því stóð 

Húnninn var fjórði maður út og með því sameinuðust leikmenn við lokaborð.

Þegar hinir er leiðinlegir þá er hann samt skemmtilegur 

Iðnaðarmaðurinn er aðeins að missa flugið — annað skiptið sem hann lendir í 13 stigum og annað sætið sem eitt sinn var í seilingarfjarlægð virðist nú fjarlægjast.

Þetta er ekki regnbogi…Æ þetta er bara svona næstum regnbogi

Stundum þarf maður að vera með pung til að ná árangri í þessu spili

Þýðir ekkert að vera með vatnspung

Það eru flottir strákar þar…í smörrebröd

Ég ætla að taka þetta til baka 

Það er kominn tími til að hægja aðeins niður 

Heimsi, sem kom heitur inn með sigur síðast (og hefði átt að fá þúsarann ef menn væru ekki svona gleyminir að muna að hann vann á síðasta móti…), náði ekki að fylgja því eftir. Hann heldur þó toppsætinu ásamt Lucky þegar farið er inn í síðustu mótaröðina.

Þú átt við ekki hvítan og getur ekki gert Finnboga

Heimsi er góður í bland 

Massinn er farinn að stilla sig af eftir rólega byrjun og stefnir á fullt hús í lokaátakinu.

Að tapa er verra en besti sigur 

Svona er nú bara lífið

Spaða Ásinn náði ekki að nýta heimavöllinn að þessu sinni og féll fyrr en margir höfðu búist við.

Hefur þú orðið Bjólfsmeistari?

Gummi skúrar bara 

Hei strákar ég skúra ekki sko 

Ömurlegt að spila við svona amatöra

Hefurðu heyrt mig vera höstler?

Bótarinn hafði greinilega lært af Hobbitanum — hangið á engu og breytt því í stafla. Það dugði þó ekki alveg til og hann þurfti að sætta sig við búbbluna.

Þú ert með kóng er það ekki…jú jú…annars hefði ég barið þig

Þá er ég bara allur fold 

Vera vitlaus og geta ekki bakkað út úr því…það er svo vitlaust 

Strákar ekki vera öfundsjúkir þó við höfum unnið stóran pott 

Hobbitinn byrjaði með látum og hvarf nánast á bakvið spilapeningana. En eins og oft áður jafnaðist það út — staflinn minnkaði, Hobbitinn varð sýnilegur á ný og landaði að lokum þriðja sætinu.

Ginbjössi er með skemmtilegri Bjössum sem ég þekki

Bjössi á bara að vera í gini alla daga

Ginbjössi og Rúmmetrinn

Ginbjössi er að gefa

Björn Hlynur? Mér fannst þú segja Björn Limur 

Það er ekkert slæmt að vera rúmmetri

Bjössi er eins og biblían það kemur alltaf nýr skilningur í hvert skipti sem maður les hann

Bjössi vert þú bara rólegur og drekktu ginið þitt

Svarti staflinn er næstum jafn stór og hann

Fyllibyttur eru líka fólk 

Lucky tók varla hönd fyrir hlé… en eftir hlé minnti hann á nákvæmlega hvers vegna hann ber þetta nafn.

Ertu bara með þrennu?…Nei…ÞÚ ERT MEÐ HÚS!

Það þarf að vakta kallinn

Það veit aldri á gott þegar Lucky er með cock

Illa þéttur þessi Lucky

Það er bara spurning um að fara út og lemja hann

Ég hata þennan mann!


Sigurvegarinn

Timbrið var kannski ekki á blaði hjá mörgum sem líklegur sigurvegari kvöldsins þegar hann átti nokkra spilapeninga á lokaborðinu — en það skipti engu máli. Hann tók lítið sem ekkert, breytti því í stafla og sigldi svo örugglega fram úr öllum.

Er þetta fyrsta pókerkvöldið þitt?

Með því landaði hann sannfærandi sigri, sínum fyrsta á tímabilinu — og loksins virðist hann vera að detta í gang, með fullkomna mætingu í farteskinu og til alls líklegur í bústaðnum? eða komandi tímabili?


🔥 Lokaspretturinn er hafinn og bara bústaðurinn eftir…þó að engin spenna sér lengur í Bjólfsmeistarakeppninni (spoiler: Lucky er 28 stigum á undan næsta manni) þá er mótaröðin æsispennandi þar sem Lucky og Heimsi eru jafnir með 34 stig…og ekki minni spenna er í Bjóðguðakepnninni þar sem Timbrið og Kapteininn eru efstir með 3 stig hvort og spurning hvor þeirra…eða báðir? landi fimmta titlinum eða hvort einhverjir sem eru á eftir nái að stiga þá af í bústaðnum?
🍺 Bjórskuldir eru enn óuppgerðar…meira um það síðar þegar dregur nær bústaði og við mynnum menn á að gera upp 😉
🃏 bara nokkrir vikur/dagar/klukkutímar þangað til að við klárum tímabilið með stæl í bústað!

Klukkan er að verða eitt…eitt er ekki neitt 

Skila eftir athugasemd

  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…