Nýtt á síðunni
Mig langar að benda á nokkrar nýjungar eins og til að mynda skoðanakönnunina hér til hliðar. Á henni verður tekið fullt mark og niðurstaða hennar látin standa. Aðeins meðlimir geta kosið og því þurfa þeir er vera skráðir inn.
Einnig bendi ég á textaborða sem hefur hafið göngu sína fyrir ofan efstu færsluna. Þar koma fram ýmsar staðreyndir um meðlimi jafnóðum og þær berast mér til eyrna. Hægt er að stöðva textann með því að setja bendilinn yfir hann.
Lesa meiraNæsta mót
Þá fer að styttast í fyrsta mótið í þriðju og síðust mótaröðinni (M3) á þessu pókerári. Ég hef beðið þess með óþreyju og ég veit að fleiri hafa gert það líka. Eins og menn ættu að vita ætla ég að bjóða meðlimum heim í mat fyrir mót og hafa þessir boðað komu sína í matinn:
Mikkalingurinn, Bósi, Logi, Massinn, Robocop, Pusi, Andri the Ace, Heimsi, Bóndinn og Hobitinn.
Gott væri að þeir sem hafa hugsað sér að koma í matinn skrái sig sem fyrst og láti vita í “Skilaboð” með matinn.
P.S. Eins og þið sjáið hef ég bakað sérstaka afmælisköku fyrir afmæli klúbbsins 🙂
Lomminn
Lesa meiraÁrgjald – útgjöld
Nú þegar u.þ.b. mánuður er liðinn síðan við greiddum árgjald er nánast búið að ráðstafa allri innkomunni (7.000 kall eftir sem ég geri ráð fyrir að fari í bústaðinn). Það er ákveðinn startkostnaður (límmiðar og aukakostnaður vegna heimasíðu fyrsta árið) og því er kannski ekkert óeðlilegt að fljótt gangi á sjóðinn. Hér eru yfirlit yfir innkomu og útgjöld:
| Innkoma | Útgjöld | |
| Félagsgjöld | 28.000 | |
| Límmiðar+tollur | 16.000 | |
| Heimasvæði+hýsing | 5.000 | |
| Bústaður? | 7.000 | |
| Samtals | 28.000 |
Þar sem það voru ákveðnar truflanir á servernum fyrir heimasvæðið fyrstu dagana ákvað ég að kvarta smá yfir því og fékk hálft ár í inneign. Því þurfum við ekki að greiða nema ca. 2.000 kr. fyrir næsta ár. Þrátt fyrir ákveðinn startkostnað finnst mér allt í lagi að hækka árgjaldið næst upp í 3.000 kr. Einnig tel ég að við ættum að byrja aftur að greiða árgjald í upphafi næsta tímabils.
Lesa meiraFormannspistill
Mér finnst það hafa verið flott framtak hjá Gunnari Axel a.k.a. Robocop að taka af skarið og reynt að smala mönnum í bústað og hjá Mikkalingnum að boða menn í límingu og spil. Þegar við erum ekki fleiri en þetta í klúbbnum skiptir hvert innlegg máli og ekki síður viðbrögðin. Mér finnst viðbrögðin hafa verið frekar dræm og erfitt að átta sig á því hvort menn vilja ekki taka þátt í því sem við erum að gera eða þeir eru ekki að fylgjast með. Mér þætti vænt um að fá að vita hvað menn vilja, hvort sem það er af eða á.
Að því sögðu spyr ég hverjir eru tilbúnir að fara eina nótt í bústað föstudaginn 20. maí laugardaginn 21. maí?
Lesa meiraCash game
Nú líða 5 vikur milla móta og þykir mönnum það aðeins of mikið, sérstaklega þegar merkinging á chippana er komin. Mikkalingurinn hefur hug á því að bjóða mönnum í skúrinn hjá sér miðvikudaginn kl. 20 til að líma á chippana og taka smá cash game á eftir. Ef meiri stemning er fyrir stuttu móti, er það líka hægt.
Hverjir eru með? Skrá sig hér
Hér til hægri er hægt að sjá nýjustu svörin, fylgst með umræðunni og taka þátt. Einnig er komið yfirlit yfir mótin undir “Næstu mót” þar sem meðlimir geta skráð sig í mótin. M3 stendur fyrir mótaröð 3. Efst er staða lokapotts.
Lesa meira
❤️😘