Verður lokaborðið svona í bústaðnum?
Ólíklegt…þar sem við erum ekki stelpur…en það gæti nú alveg einhver farið allur inn á sjö-tvist í fyrstu hönd…ég ætti að þekkja það (fyrsti maður út í bústaðnum 2012 með sjöu-tvist 😉
Lesa meiraFagnað of snemma
Í fyrra voru Bjólfsmennt minntir á að fagna ekki of snemma og er það alltaf gott að muna…menn geta sagst vera sáttir og misst sig svo aðeins eða jafnvel fagnað og misst sig svo þegar fagnað var of snemma…
…eins og Massinn um árið…
..alltaf gaman að rifja þetta upp 😉
Lesa meiraMæta allir í bústaðinn?
2 vikur til stefnu í bústaðinn 2015…skráningin er opin og látið endilega vita í tíma ef þið komist ekki og hvort þið komið á laugardeginum eða föstudeginum. Matarinnkaup miðast við að allir mæti og gott að vita í tíma ef einhver þykist ekki ætla að láta sjá sig!
Lesa meiraVerðum við allir millar í ár?
Þar sem útlit er fyrir að það verði afgangur af rekstrinum í ár þá er upplagt að nota það til að versla EuroJackpot miða eins og í fyrra.
Í ár munu auk okkar þeir gestir sem borguðu í lokapottinn á Bjólfur OPEN eiga sinn hlut í verðlaunaféinu…þannig að ef við lendum milljónunum eru þeir að fá góða ávöxtun á sínum hlut í lokapottunum 😉
Lucky Luke verslar miðann…væntanlega á leiðinni í bústaðinn 8. maí…ég er búinn að vera að spara heppnina í pókernum og ætla að taka hana alla út þegar miðinn verður keyptur 😉
Lesa meiraVerðlaun fyrir Bjólfsmeistarann
Formaðurinn hefur ákveðið að fráfarandi Bjólfsmeistari skuli kaupa verðlaun fyrir verðandi Bjólfsmeistara og er heimilt að fá fjárstyrk fyrir þeim kaupum úr bústaðapottinum að höfðu samráði við Formann.
Þar sem Formaður í ár er “fráfarandi” núverandi Bjólfsmeistari þá hefur hann einhliða vald til þess að ákveða þessa gjöf en er henni þó haldið innan skynsamlegra marka. Kaup á henni hafa verið sammþykkt 😉 og eru “innblásin” af vissu leiti af öðrum íþróttagreinum…nánar um í bústaðnum eftir “nokkra daga” =)
❤️😘