Bjólfskviða
Mottu-póker á föstudaginn
Annað kvöldið í síðustu mótaröðinni í ár er á föstudaginn hjá Lucky Luke. Skráningin er hafin og þegar hafa 2 mottur skráð sig til leiks…verður gaman að sjá hvort það verða fleiri sem mæta með mottur…
read moreAfmælisdagur Bjólfs…og Lommanns
Það er 4. ára afmæli klúbbsins í dag sem á einmitt sama afmælisdag og Stofnandinn…skemmtileg tilviljun 😉 Spurning hvort einhverjir mæti með mottu 21. mars í tilefni Mottumars? Þar sem við verðum heima hjá mér stefnum við á myndatöku, stilli upp vélinni…höfum ekki náð neinni góðri hópmynd af okkur…smá upphitun fyrir hópmyndatöku í bústaðnum eftir rúma 2 mánuði.
read moreGælunöfn
Góð tillaga koma frá Mikkalingnum að kalla mig Lukku Láka sem hefur verið samþykkt. Meðlimasíðan hefur verið uppfærð sem og uppfært símanúmer komið hjá Massanum þannig að nú er hægt að fletta því upp þar…og hringja í hann beint úr snjallsímum með að smella á númerin. Ef þið hafið einhverjar óskir um gælunöfn (eða aðrar breytingar sem þarf að gera á upplýsingum um ykkur) þá látiði vita.
read moreLucky Luke strikes again
Það er langt síðan við höfum spilað hjá Massanaum og sumir sem voru að stíga sín fyrstu skref um höllina sem er réttnefni fyrir einstaklega fallegar vistarverur Massans. Timbrið mætti með mat fyrir spil og var tekið gott spjall fyrir bjór, pizzu & gosi áður en restin af félögunum safnaðist í hús. Bjór & bjórstig Eitthvað eru menn að gleyma sér að gera upp bjórskuldirnar sínar, en skv. bókhaldinu (sjá Innkoma 2013 flipann í Bókhaldinu) eiga Mikkalingurinn, Massinn, Heimir og Hobbitinn allir eftir að gera upp… En þrátt fyrir að...
read moreVandamál við innskráningu
Ef þú lendir í því að fá “Blocked” við innskráningu skaltu prófa https://bjolfur.is/wp-login.php
read moreCasa de Mass á föstudaginn
Þriðja og síðasta mótaröðinn í tímabilinu hefst. Það er búið að opna aftur Casa de Mass eftir breytingar og verður gaman að fara aftur á “æskuslóðir” klúbbsins þó við höfum við uppfærðir í enn betra rými hjá gestgjafanum. Keppnin er enn æsispennandi og verður fróðlegt að sjá hvort að einhverjir fara að skáka Bjólfsmeisturunum tvemur sem eru búnir að vera að skiptast á forystunni…enda einu mennirnir með fulla mætingu á tímabilinu en Mikkalingurinn og Killerinn er ekki langt undan og þetta er fljótt að breytast. Skráningin er...
read moreMeð Robocop á Robocop
Þá er annar félaginn kominn kominn á hvíta tjaldið og ætlum við að fylgja honum á sýningu. Endurgerð á stórmyndinni frá 1987 sem margir muna eflaust eftir og verður ábyggilega nóg af ofbeldi til að halda í við þá fyrri. Stefnan er tekin á miðvikudaginn 19. febrúar kl. 20:00 í Smárabíó. Hverjir ætla að mæta? Er ekki málið að hittast aðeins fyrr og spjalla aðeins yfir mat?
read moreBjólsmenn í víking!
Ég set hér texta úr pósti frá nýskipuðum ferðaformanni. “Nú þurfum við að fara að horfa fram á við og koma Bjólfi á hærra plan. Við höfum rætt það í gegnum tíðina að fara í utanlandsferð saman (kannski aðallega ég) en ef við byrjum að safna núna er mjög raunhæft að fara í túr saman í September 2015.” MASSINN Þetta yrði gjörsamlega stórkostlega ferð og eins og Gísli segir fullkomlega raunhæf. Það kemur alla vega 5.000 kall frá mér næstu mánaðamót. Við getum kastað hugmyndum á milli hér og linkum á ferðir. Pant fá gluggasæti og...
read moreRunner runner
Undir lok síðasta árs kom út myndin Runner, runner sem mætti flokka sem pókermynd þar sem sögusviðið snýr að glamúrlífi netpókers. Það er nú reyndar mest lítið af póker í henni og meira dramaspenna um háar fjárhæðir, svip & pretti. Aðalsögupersónan er ungur upprennandi nemi sem borgar námið með að vísa mönnum á pókersíður eftir að hafa farið illa út úr bankakreppnunni og misst af góðri vinnu og fullt af peningum. Hann kemst að svikum í netpóker og kemst inní æðsta hring þeirra sem þar stjórna…en ekki er allt sem sýnist. Enginn...
read more
❤️😘