Bjólfskviða
Siðareglurnar uppfærðar
Bjólfsmönnum er bent á að renna yfir siðareglurnar áður en tímabilið hefst. Þetta eru 13 atriði sem allir eiga að vita og menn geta alltaf vísað í reglurnar og fengið þeim framgengt, þannig að best er að spila eftir þeim til að lenda ekki röngu megin við þær 😉 Til að koma fyrir ágreining um hvort all-in leikmenn eigi að sýna spil er nú 13. reglan okkar að leikmaður verður að sýna höndina sína þegar hann er all-in og engir fleiri sem geta veðjað meira. Það hafa komið upp stöku tilfelli þar sem menn hafa viljað forðast það, en nú er búið að...
read moreÞúsarinn
Þúsarinn verður alltaf spilaður á komandi tímabili. Þúsarinn er bounty á þeim sem að vann síðasta mót. Ef að síðasti sigurvegari mætir ekki til leiks flyst þúsarinn yfir á þann sem var í 2. sæti á síðasta móti og þannig áfram á næsta sæti ef viðkomandi vantar líka. Einnig verður útbúinn sérstakur spilapeningur fyrir þúsarann og vel við hæfi að hafa Stofnandann þar á eins og sjá má á myndinni sem fylgir hér með.
read moreBreyting á blindralotum
Athygli er vakin á því að blindralotur verða með smá breyttu fyrirkomulagi á komandi tímabili. Helsta breytingin er að mótið er aðeins rólegra í fram yfir annað hlé og fyrstu 4 loturnar eru allar 30 mínútur en það eru loturnarnar sem að bjórstigin telja. Einnig verður peningategundum skipt út reglulega. Í fyrsta hléi verður hvítum skipt út uppí rauða, í 3ja hléi rauðum uppí græna og í 4ja hléi grænum skipt út í svarta. Þetta ætti að einfalda hver skipti þannig að ekki er verið að skipta jafn miklu í einu. Einnig verður breytt fyrirkomulag á...
read moreChip-up
Chip-up er þegar við hættum að nota ákveðna tegund af spilapeningum og skiptum þeim upp fyrir næstu tegund fyrir ofan. Við þekkjum það að ef við eigum ekki uppí næsta spilapening missum við alla sem ekki ná (t.d. ef leikamaður er með 4 hvíta sem duga ekki uppí rauðann þá missti hann þessa 4 og fékk ekkert) en nú verður því breytt þannig að “spilað” verður uppá. Tökum dæmi þar sem verið er að skipta út hvítum. Bósi er með 3 hvíta og Eiki Bót 2. Saman eru þeir sem einn rauðan og “spila” uppá hann þannig að fyrir hvern...
read moreBJÓLFUR OPEN á föstudaginn
Smá upphitun fyrir komandi tímabili með BJÓLFUR OPEN móti fyrir meðlimi klúbbsins og gesti. Meðlimir hafa leyfi til að bjóða gestum og við munum hittast á Rauða Ljóninu um 19:00 í mat á föstudaginn og byrja að spila 20:30. Stefnum á 3þ kall inn og færð tvo 15þ bunka og getur tekið þá báða strax eða átt hinn inni (færð hann sjálfkrafa eftir klukkutíma) og verðlaun verða samkvæmt fyrirkomulaginu. Nú er spurning hvort menn séu ryðgaðir eftir sumarið og við höldum uppteknum hætti og látum gestina fara glaða heim...
read moreBjólfur 2013-2014 drög að tímabilinu
Komin eru drög að 2013-2014 tímabilinu og ættu allir meðlimir að vera komnir með upplýsingar um það. Ef einhverjir hafa ekki fengið þær upplýsingar skulu þeir láta vita hérna og við kippum því liðinn. Það verður einum fleira í hópnum næsta vetur með endurkomu Ásins og búið að staðfesta að Timbrið verður á landinu amk eitt ár til viðbótar. Þannig að það er útlit fyrir skemmtilegan pókervetur hjá Bjólfsmönnum.
read moreGamla síðan
Fyrir þá sem vilja rifja upp gamla tíma og muna ekki eftir fyrstu heimasíðunni sem að Elli setti upp fyrir klúbbinn þá er hún nú aðgengileg hér, góðar mynningar sem fylgja henni 😉
read moreÁsinn snýr aftur
Fyrrum félagi kemur aftur frá Eyjum í byrjun næstu leiktíðar og hefur formaðurinn þegar samþykkt að hann gangi inní klúbbinn eins og aðrir sem hafa komið aftur. Gamlir félagar eru alltaf velkomnir og ættum við að ráða vel við að fjölga um einn ef enginn yfirgefur okkur…en við bíðum staðfestingu frá Timbrinu eftir 10 daga hvort hann sé nokkuð að yfirgefa klakann 😉
read morePóker á SEY
Ég er mættur í fjörðinn og einhverjir fleiri jafnvel líka? Þónokkrir væntanlegir fyrir lok mánaðar þannig að það væri gaman að vita hverjir eru í bænum eða hvenær menn mæta uppá að ná spili við einhverja heimamenn á staðnum.
read moreUppskerumót föstudaginn 31. maí
Formaðurinn býður í uppskerumóti fyrir sumar föstudaginn 31. maí í Hafnarfirðinum. Það verður enginn aðalfundur þar sem ég er alráður og ætla ekki að stunda hefðbundin fundarstörf en mönnum er velkomið að koma með tillögur að breytingum fyrir næsta ár á meðan spilað er 😉 Held að fyrirkomulagið verði að mestu óbreytt. Helsta spurning hvort að við höldum fleiri opin mót og hvort þau eigi nokkuð að vera formleg Bjólfsmót…er að láta það malla og megið endilega koma með comment. En þúsaranum verður breytt a.m.k. þannig að ef þúsarinn vinnur...
read more
❤️😘