Bjólfur XVII.3 – Öll púslin eru að hrynja

Þriðja kvöld Bjólfur XVII er að baki eftir sjöttu heimsóknina til Spaða Ássins þar sem menn voru velkomnir vel fyrir mót og létu fara vel um sig með aðgang að ísskápnum. Mikill spenningur var fyrir hálfsleikskökunni og gátu menn ekki einu sinni setið á sér fram að hléi að byrja á þeim (þar sem alltaf þegar hún klárðist kom ný í hennar stað úr eldhúsinu).
Djöfull er ég svangur…er enginn brauðréttur?…ég fékk mér bara eina puslu áður en ég kom
Bjórguðinn fær sínar fórnir
Spaða Ásinn og Gummi nágranni gengu frá bjórgjöfum sínum við Bjórmeistarann. Það er alltaf gott að hafa gert upp sín mál við æðri máttarvöld áður en næsta mót hefst. Bjórguðinn er þolinmóður, en það er ekki þar með sagt að hann sé gleyminn. En eftir þessar fórnir var hann gjöfll og glaður og á því græddi Bótarinn sem hlaut eina bjórstig kvöldsins og stendur nú efstur með tvö stig. Massinn fylgir honum fast á eftir með eitt stig og eftir 3 kvöld eru þrjú bjórstig komin í hús og allt getur ennþá gerst í Bjórmeistarakeppninni.



Spaða Ásinn flassaði
Bústaðarvarningur loksins kominn í réttar hendur
Kári Killer og Timbrið fengu einnig afhentan varning frá síðasta bústað. Þeir voru að mæta í fyrsta skipti á tímabilinu og misstu því af bústaðarferðinni sjálfri. Betra er þó seint en aldrei og nú hafa þeir að minnsta kosti fengið sinn skerf af bústaðarminningunum. Það er kannski ekki alveg það sama og að vera með í ferðinni, en varningurinn ætti að minna þá á hvað þeir misstu af – og vonandi hvetja þá til að láta næstu ferð ekki fram hjá sér fara.


Ég væri hræðilegur yfirmaður í stóru fyrirtæki
Spilið
Bóndinn mætti brattur á fyrsta mótið sitt og var allur inn frá upphafi, bæði í spili og sögum…enda mikið að rifja upp síðan síðast og sögurnar tók yfir spilamennskunni og hann var fyrstur frá borði.
Af hverju er johnny Cash að syngja um sænska vin sinn “my sweedish friends”
Hobbitinn fékk ekkert gin og náði því ekki að kalla fram sinn innri Ginbjössa sem hafði gert góða hluti í síðustu heimsókn…þannig að það var stutt ferð við borðið í þetta skiptið.
Strákar þið verðið að baða ykkur…
Lucky var pakkað saman af Massanum, tvær hendur í röð og hann þriðji maður frá borði.
Það er ábyggilega einn hommi hérna
Bótarinn var næstur, náði ekki að fylgja eftir sigrinum frá síðasta móti og lág í valnum fyrir Massanum…en var einu sæti ofar en Lucky eins og síðast.
Það væri gaman að vera með opinberan homma í hópnum
Þá var komið að því að færa Ásinn milli borða til að jafna borðin en hann endaði allur inn og datt út þannig heimavöllurinn fór ekki með hann lengra. Með því var komið að sameinigu á lokaborð og þar með var einnig þriðji meistarinn í röð sem datt út og bara einn “gamall” meistari eftir við lokaborðið.
Það þýðir ekkert að vera með 10 tegundir af kexi…maður bara étur þetta
Massinn tók nokkur dýrkeypt högg og endaði næstur út…en fékk þúsarann fyrir að taka Bótarann út.
Ég er að passa mig að það gangi illa fyrir hlé
Timbrið var að koma “beint” á fyrsta mót frá æfingabúðum í Vegas en náði ekki að beisla það lengra en í 7. sætið.
Það versta við Svíþjóð eru Svíarnir
Killerinn kom seint og ætlaði að reyna að nýta það að koma óvænt inn og riðla öllu…en fór ekki lengra en 6. sætið.
Fullur…og svoldið reiður
Kapteininn náði ekki að fylgja eftir síðustu mótum og aðeins og gefa eftir, en með góðan árangur og vel staðsettur í titilbaráttunni.
Menn eiga að haga sér eins og fullorðnir menn…ég er einn af þeim
Iðnaðarmaðurinn tók búbbluna af einskærri góðmennsku. Er að bæta sig með hverju mótinu og bara spurning hvort hann heldur áfram uppávið á næsta móti?
Óþarfi að líkamssmána köttinn
Húnninn heldur einnig áfram að sýna að hann er enginn aukaleikari í þessari keppni, hann var orðinn frekar lítill á tímabili en náði að magfalda sig upp og skila sér í verðlaunasæti.
Botnahliðin móti Breiðholtinu
Nágranninn þyrfti að taka á honum stóra sínum, eða Mikkalingnum 😉 og það var ekkert auðvelt verk þar sem sá síðarnefndi hafði verið harður í horn að taka í kvöld. Í lokarimmunni náði Nágranninn samt yfirhöndinni um tíma…en allt kom fyrir ekki…en annað sætið og verðlaun. Það var enginn vafi á því hver átti kvöldið…og fyrstu mótaröðina.
Öll púslin eru að hrynja
Mikkalingurinn mætti til leiks með góða stöðu eftir fyrstu tvö mótin og bætti enn einum sigrinum við safnið þegar hann vann þriðja mótið. Það er ekki hægt að segja annað en að maðurinn hafi byrjað tímabilið af krafti. Spurning hvort hinir séu þegar farnir að hafa áhyggjur eða hvort þeir séu enn að bíða eftir að Mikkalingurinn detti niður á jörðina…amk eru púslin hans ekki að hrynja!
Enginn lítill blindur…við erum með einn blindann á okkar borði
Fyrsta mótaröðin / Meistarabaraáttan
Alltaf gaman að hitta hann…myndi ekki nenna að hanga lengi með honum
Þar með lauk Mikkalingurinn fyrstu mótaröðinni með 56 stig og trónir einn á toppnum. Kapteinn fylgdi fast á eftir með 53 stig og tryggði sér annað sætið. Í þriðja sæti urðu síðan tveir menn jafnir, Lucky Luke og Iðnaðarmaðurinn, báðir með 46 stig. Það þýddi að fjórir menn fengu verðlaun fyrir mótaröðina í stað þriggja. Lucky hefur greinilega ekki ætlað að gefa neitt eftir og Iðnaðarmaðurinn sýndi enn og aftur að hann kann fleira en að halda veislu fyrir gestina.
Hann hefur aldrei verið kærður fyrir ölvun á almannafæri
Nú er bara að byrja að undirbúa næstu mótaröð, dusta rykið af pókerfeisinu og mæta tilbúinn til leiks. Það er enginn meistari krýndur eftir þrjú kvöld og sagan hefur sýnt að staðan getur breyst hratt þegar spilin fara að falla með öðrum hætti.
Hann vildi ekki ráða mig í vinnu…en réð bankaræningja og hórumangara
Bjólfur XVII er rétt að byrja – og það verður fróðlegt að sjá hvort Mikkalingurinn haldi toppsætinu eða hvort einhverjir hinna ákveði að gera honum lífið aðeins erfiðara. 🍺🃏










Toppmaður…tottmaður?
…mikið búið að ræða samkynhneigð


❤️😘