Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Boðsmót Bjólfs 2022

Þá er loks komið að því aftur að við bjóðum gestum að spila með okkur. Við náðum mótinu 2020 saman (eins og myndin fyrir ofan ber vitni um) en í fyrra vorum við á netinu vegna Covid…en getum nú hist aftur miðað við núverandi reglur.

Eins og alltaf verðum við á Ljóninu og fyrirkomulagið einfalt, 4þ kall inn, engin endurkaup. Hver spilari fær 2×15þ chippa og getur haldið eftir öðrum (15þ. kr. staflanum) og átt inni ef hinn klárast eða sótt hann hvenær sem er fyrsta klukkutímann…þá fá allir hann sem ekki hafa sótt og spilað þar til sigurvegri situr eftir.

Mótið hefur nú fengið rétt nafngift sem Boðsmót og leggjum við þar með OPEN nafninu sem notast hefur verið hingað til. Bæði er það fallegra á okkar ylhýra sem og meira lýsandi um að mótið er aðeins aðgengilegt með boði frá Bjólfsmanni en ekki opið hverjum sem er.

Í ár munum við eins og oft áður hafa frjáls framlög til styrktar Minningarsjóð Jennýjar Lilju og þið sem viljið kynna ykkur það nánar bendum við á https://minningjennyjarlilju.is/ <3

Sjáumst á fyrsta Boðsmóti Bjólfs (og jafnfram því 12. 😉

Talaðu við þinn Bjólfsmann ef þig langar að vera með 😉

Fyrir þá sem vilja skoða hvernig fyrri mót hafa verið þá er hægt að fletta í gegnum fréttir af fyrri boðsmótum.

Ein athugasemd

  1. Boðsmót Bjólfs verður haldið föstudaginn 13. janúar á Rauða Ljóninu. Spilið mun hefjast klukkan 19:30 en spilarar eru hvattir til að mæta fyrr og fá sér að borða fyrir spil til að skapa gleði og stemmningu fyrir kvöldið.
    Buy in verður 4.000kr fyrir kvöldið, það er ekki rebuy en menn fá 2×15.000 chippa. Hægt er að byrja með 30.000 chippa eða hafa þann möguleika á að eiga annan stafla inni sem hægt er að sækja hvenær sem er fyrsta klukkutímann. Spilarar fá seinni staflann sinn afhentan eftir klukkutíma ef þeir hafa ekki sótt hann.
    Í ár eins og undanfarin ár munum við hafa frjáls framlög til styrktar Minningarsjóð Jennýjar Lilju en þið sem viljið kynna ykkur það nánar þá er vefslóðin hérna https://minningjennyjarlilju.is/ See less

Skilja eftir ummæli

Your email address will not be published. Required fields are marked *

  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…