Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Fimmti í Bjólfi

Birt af þann 8. Jan 2022 Í Fréttir | Engin ummæli

Bjólfur á rafmóti í janúar 2022

Til að bregðast við öllu þessu ómírkóni þá sleppum við OPEN í upphafi árs (eins og hefur verið venjan síðustu 10+ árin) og tökum rafmót í staðin. Sjáum síðan hvort við náum ekki að halda OPEN mótið á afmælisdaginn 4. mars 🙂

En það voru 11 bræður sem mættu til leiks…9 þeirra sem létu sjá sig á spjallið og auðvitað voru þeir sem voru ekki í spjallinu bara í ruglinu 😉

Bjór

  • Bjórstig hjá Kapteininum þegar hann mældi sér í góðan sigur með húsi 2-2-10-10 í borði og jafnar þar með Lucky með 4 stig á toppnum í bjórstigakepnninni
  • Vafaatriði þegar 7-2 tekur hliðarpott…??? (ákveðið að hliðarpottar telja ekki)
  • Nágranninn nældi sér í bjórstig og þá kominn með eitt
  • Bennsi náði sér bjórstig og þá kominn með eitt

Fleygar setningar kvöldsins

  • “Djöfull er langt síðan ég hef spilað póker”
  • “…ertu til í að taka þvottaklemmuna af þér…það heyrist svo illa í þér”
  • “Þegar að Lucky kemur og hoppar ofan í pottinn og öskar “COVID TEST” 😀
  • “Það er hart skotið í kvöld”…”Já, það er enginn Iðnaðarmaður”
  • “Var það svo Hobbitinn sem tók mig út?”…”ohhh…ég féll á eigin bragði” (Hr. Huginn þegar hann var búinn að vera að hanga á engu eins og Hobbitinn er þekktur fyrir)
  • “Takk fyrir kvöldið strákar”…”Bósi segir bæ líka”
  • Hvað er að frétta úr vinnunni? “…bara reykspóla og hlusta eftir símanum”
  • “Það er best að fá röð í röð”
  • “Það er bara allt of mikið af röðum í þessu forriti” (Lomminn þegar hann tók bubble sætið og Mikkalingurinn var með röð á móti honum)
  • “Ég var að bíða eftir röðinni…”…”ég var að bíða eftir Ný Dönsk”
  • “Ég held að ég sé bara mesti músíkkallinn af okkur öllum” (Mikkalingurinn þegar var verið að giska á gítarspilið)
  • “Bósi hjálpaðu mér…koma svo Bósi…”
  • “Ég var að biðja til Bósa….það þarf yfirleitt eitt til tvö spil…”
  • “Það er nú orðið slæmt ef Bósi getur ekki einu sinni hjálpað”
  • “Þú bara hvarfst…ég hélt þú hefðir orðið batterýslaus” (Kapteinninn þegar Mikkalingurinn hvarft í lokarimmunni og var farinn að tapa nokkrar hendur í röð)
  • “Maður bara vinnur og vinnur og vinnur….og sonur Palla Gústa bara tapar og tapar!”
  • “Ef þú ert með lit þá máttu vinna þetta…því ég er með röð” (lokaspilið þegar Mikkalingurinn var með röð…en tapaði á móti hærri röð)

“Maður bara vinnur og vinnur og vinnur….og sonur Palla Gústa bara tapar og tapar!”

“Ég var að bíða eftir röðinni…”…”ég var að bíða eftir Ný Dönsk”

“Var það svo Hobbitinn sem tók mig út?”…”ohhh…ég féll á eigin bragði” (Hr. Huginn þegar hann var búinn að vera að hanga á engu eins og Hobbitinn er þekktur fyrir)

“Það er hart skotið í kvöld”…”Já, það er enginn Iðnaðarmaður”

Spilið

  • Bótarinn yfirgaf svæðið fyrstur…náði rétt yfir klukkutímann…líklega lélegt netsamband í bústaðnum
  • Bóndinn datt út fyrir Mikkalingnum og þá vorum við komnnir á lokaborð
  • Hr. Huginn var næstur…tíupar hjá Hobbitanum tók hann út
  • Robocop lenti næstur út í baráttu á milli formanna
  • Nágranninn var næstu út…AJ og AJ í borði en 6 líka í borði og 66 hjá Kapteininum sem tók hann út
  • Hobbitinn næstur út í næsta spili…
  • Bennsi næstur út…444-22 í borði…Mikkalingurinn var með 45 og fjóra eins…þvílík hönd…þvílíka höndin!
  • Staðan núna að Mikkalingurinn er 13þ, Kapteininn 11þ , Lucky 2.5þ, Lommin 2… L & L eru báðir all in og skipta með sér pottinum…staðan breytist ekkert…
  • Lomminn næstur út…þrátt fyrir að hafa oft vakið athygli á því að hann væri efsti maður þá náði hann ekki lengra en bubble sætið í kvöld
  • Mikkalingurinn með 15þ, Kapteinninn 10.5 og Lucky 2.5….á brattann að sækja hjá L
  • Lucky næstur út…var með tvö pör á móti Kapteininum sem hititi á hærri tvö pör með river og sendi Lucky heim
  • Kapteinninn er núna kominn í 15.5 á móti 12.5…svakalega spenna þegar 2 eru enn að spila og 2 aðrir enn að horfa…
  • Klukkan nálgast miðnætti og Mikkalingurinn er nú 17.5 móti 10.5 hjá Kapteininum…
  • Staðan heldur áfram að færast í vil fyrir Mikkalinginn…21 vs. 8
  • Það er verið að spila uppá 1 stig…og 4þ kall…munurinn á milli fyrsta og annars sætis…rætt að það þyrfti að vera fleiri stig fyrir fyrsta sætið (eins og í formúlunni)…en gæti verið erfið sala með Formanninn í forystunni og aldrei landað sigri á tímabilinu 🙂
  • Miðnætti…staðan hefur snúist…Mikkalingurinn er nú 11þ móti 17þ hjá Kapteininum…
  • 5m seinna…staðan er hnífjöfn…13.8 vs. 13.8
  • 00:15 og staðan er 4 vs 24
  • …eitthvað virðist hafa týnst af þessum pósti…en Kapteininn tók þetta eftir svakalega baráttu

Nú er bara að halda í sér andanum og vonast til að geta hist aftur sem fyrst…en jafnvel spurning um að vera undirbúnir undir fleiri rafmót og gott að Lomminn er með yfirumsjón yfir þeim og búinn að læra hvernig hann getur hent meðlimum út úr rafræna klúbbnum þ.s. margir eru með margar skráningar þar 😉…4 vikur í næsta mót…Hr. Hugrinn er búinn að bjóða heim…

Lesa meira

Fjórði í Bjólfi

Birt af þann 6. Dec 2021 Í Fréttir | Engin ummæli

Einstaklega fallegir Bjólfsbræður

Þeir voru einstaklega fallegir bræðurnir sem hittust frá Kapteininum á föstudagskvöldið í góðu yfirlæti þar sem passað var vel uppá alla…þó svo að allir hefði ekki skellt sér í hraðpróf þá voru allir sáttir.

Bjór & bjórstig

Kapteininn fékk svakalega flotta bjórgjöf frá Bótaranum…ekki nóg með að hann mætti með bjór af óskalistanum heldur bfylgdi líka gjafaaskja ásamt glasi og klárlega með veglegri uppgjörum sem sést hefur lengi. Heimavöllurinn gaf eina bjórstig kvöldsins og saxaði þar með á forskot Lucky sem er með 4, Kapteininn 3 og Bótarinn 1.

Spilið

  • Spaða Ásinn átti nokkra góða spretti (sérstaklega ef spaða ásinn lét sjá sig 😉 en ákvað samt að taka það á sig að verða fyrsti maður frá borðinu.
  • Eiki Bót fylgdi næstur og þurfti að tékka sig snemma út til að jafna aðeins stöðuna og fara ekkert of langt á undan Mikkalingnum sem gaf upp forystuna með að mæta ekki.
  • Lucky fylgdi næstur en yfirgaf spilið með litaröð á móti hærri litaröð…bara eitt spil sem gat unnið hann og stundum eru menn heppnir á móti Lucky.
  • Kapteininn náði ekki lengra á heimavellinum en samt saxaði á forskot efstu manna.
  • Hr. Huginn tók bubble sætið.
  • Hobbitinn var búinn að hanga eins og honum einum var lagið en varð að láta annað sætið duga.
  • Timbrið var líka búinn að hanga allt spilið…en aðallega á chippum og eins og hann sagði sjálfur “Ég spila bara á chippana”…þar sem það virtist ekki skipta miklu máli hvaða hendur hann fékk…borðið aðlagaði sig bara að honum…svakalega spilamennska og langt síðan svona yfirburðir hafa sést og Timbrið tekur forystuna í annari mótaröðinni.

Bjólfsmeistarakeppnin

Bótarinn (69 stig) hefur nú eins stigs forystu á Lucky og Kapteininn (68 stig) og þeir einu sem hafa mætt á öll mótin og verða nánast að missa úr móti til að aðrir eigi möguleika. En vonandi helst þetta bara áfram spennandi allt til síðasta móts 🙂

Nokkrar vel valdar myndir frá kvöldinu

Lesa meira

Annar í Bjólfi

Birt af þann 2. Oct 2021 Í Fréttir, Mót | Engin ummæli

Föngulegur hópur sem byrjaði kvöldið á Fjörukránni áður en haldið var á nýjan völl þegar spilað var í fyrsta skiptið hjá Massanum í nýja Aðsetrinu hans þar sem fór einstaklega vel um alla. Klárlega staðsetning sem menn vilja heimsækja oftar og helst útvíkka á næstu bil 😉

Bjór

Það eru vel upp aldir menn sem hlýddu Bjórmeistara síðasta árs og gera upp við hann í þeim bjór sem honum þykir vænt um eins og sjá má af myndunum af þeim sem gerðu upp.

Það voru þrjú bjórstig sem skiluðu sér í hús í Bjórmeistarakeppninni og Kapteininn, Bótarinn og Lucky þar með einir komnir á blað eftir tvö kvöld.

Spilið

Spilið hófst og eftir gott hlé byrjuðu menn að detta og tók Timbrið fyrstur pokann sinn og á eftir fylgdu; Iðnaðarmaðurinn, Nágranninn og Hobbitinn og var þá sameinað á lokaborðið.

Þar var Hr. Huginn fyrstur út á sama tíma og Heimsi. Heimavöllurinn dugði ekki lengra fyrir Massann og Mikkalingurinn náði ekki að fara alla leið eins og síðast.

Lucky tók bubble sætið og Kapteininn nældi sér í þriðja sætið og kom út á sléttu eftir að hafa keypt sig þrisvar aftur inn. Mögulega var það Kapteinn sem yfirgaf borðið með ÁÁ á móti 55 þegar að floppið kom J210 og 66 endaði með lit á móti ásaparinu.

Lokarimman var því a milli Bótarans og Killersins en sá síðarnefndi hafði mætt síðastur á mótið og byrjaði af krafti þegar hann settist niður…á tímabili var hann dottinn niður í tvo svarta en vann sig svo aftur upp og kominn í úrslit og var mun lægri á tímabili og stutt frá því að verða undir.

Killerinn náði að vinna sig vel inní spilið og á tímapunkti enduðu þeir báður all inn, Killerinn með 89 á móti 66 hjá Bótaranum…fyrsta spil í floppinu var 6 og Bótarinn kominn með þrennuna og leit vel út…89 gáfu Killernum von með að fá húsið…6 gerði út um spilið þegar Bótarinn tók fernuna og kom sér aftur í vænlega stöðu.

Stuttu seinna var Killerinn með KJ og með 910Q var hann með röðina. Bótarinn með Á7 fékk Á á river til að gefa möguleika á að fá hærri röð…en enginn kóngur á river (heldur 6) og Killerinn nældi sér í sigur.

Staðan

Staðan hefur verið uppfærð á Bjólfsmeistarinn 2022 og Mikkalingurinn og Bótarinn eru með 2 stiga forystu í toppsætinu á Kapteininn sem er líka með 2ja stiga forskot á Lucky og Heimsa. Massinn 3 stigum á eftir þeim og Nágranninn og Iðnaðarmaðurinn aðeins neðar en aðrir hafa bara mætt á eitt mót og þurfa að spila svakalega til að ná að blanda sér í toppbaráttuna.

Sigurvegarar kvöldins í góðum félagsskap
Lesa meira

Fyrsti í Bjólfi

Birt af þann 4. Sep 2021 Í Fréttir, Mót | 3 Ummæli

Það var svaðalegur hópur sem mætti og fagnaði “Fyrsta í Bjólfi” á nýju tímabili. Að vanda vorum við hjá Iðnaðarmanninum (aka Gestgjafanum) sem passaði að vanda vel uppá alla sem létu sjá sig.

Uppsafnaður spenningur og langt síðan menn höfðu spjallað töfðu aðeins byrjunina á mótinu…en það var allt í góðu og henta fínt fyrir Robocop sem meldaði sig óvænt inn rétt fyrir mót.

Bjór

Bjórmeistari síðasta árs (Kapteininn) fékk uppgjör frá tvemur í kvöld og eins og sjá má af myndunum vissi hann ekkert hvernig hann ætti að taka svona góðum gjöfum =)

Engin bjórstig komu í hús þrátt fyrir að Nágranninn fékk nóg af tækifærum. Hann fékk 7-2 þrisvar sinnum fyrsta klukkutímann…en náði aldrei að gera sér mat úr því og þegar hann varaði menn við að spila á þessa hönd voru einhverjir fróðir menn sem bentu nú á að þetta væri versta höndin 😀

Spilið

Það voru margir á því að þetta yrði þeirra kvöld…og jafnvel þeirra tímabil…en fáir sem voru jafn graðir og Kapteininn sem byrjaði af krafti á bláa borðinu og lét aldrei minna en regnboga sjást þegar veðjað var. Hann stoppaði allar tilraunir Nágrannans að fá bjórstig og safnaði sér góðum stafla fyrir hlé.

Robocop mætti seint til leiks og lét það ekki stoppa sig og spýtta bara í lófana og hóf að hafa spilapeningana af hinum við rauða borðið eins og enginn væri morgundagurinn og var einnig með vænlega stöðu í hléi.

Eftir hlé

Iðnaðarmaðurinn var fyrstur til að stíga upp frá borðinu…en var hann búinn að vera sveittur að undirbúa og elda fyrir kvöldið og heimavöllurinn að gera neitt fyrir hann í kvöld.

Eftir að hafa margkeypt sig inn, eftir að elta bjórstig, var Nágranninn næstur út. Hann réð illa við Kapteininn og þrátt fyrir að geta fagnað því að sigra hann einu sinni (og hvatt menn til að mynda þann atburð) þá dugði það ekki til því Kapteininn mætti fljótt aftur með sigur og þá var ekki jafn spennandi að mynda það sem gerst hafði 😉

Þá voru aðeins 8 eftir og sameinað á lokaborðið.

Bóndinn var næstur til að taka pokann sinn…enda styttist í næsta túr og þegar ljóst að hann missir af næsta móti 🙁

Þá var komið að Massanum sem var búinn að vera að safna í smá hobbita og hanga á 3 spilapeningum ansi lengi en þegar hann endaði allur inn á móti Kapteininum kom upp að Mikkalingurinn, sem var að gefa, skellti öllum fold spilunum ofan á spilabunkann. Þetta sáu menn og voru spilin bara talin ofan af bunkanum, spilið gefið og Massinn dottinn út. Þá var nú minn maður ekki alveg sammála og ætlaði eitthvað að fara að malda í móinn…en þar sem hann var á móti Formanninum þá reyndist það erfitt. Einhverjir höfðu nú orð á því að þetta væri líklega bara refurinn í Mikkalingnum að ná svona stórlaxi út…enda væri svona lagað ekki tekið gilt í Halifax.

Hér er kannski gott að minna menn á að vera ekki of duglegir að taka til á spilaborðinu fyrr en spili er lokið.

Lucky var orðinn lítill og fór allur inn með þrjá tígla í borði á móti Robocop sem hélt á tíupari…sá síðarnefndi var nýbúinn að segja að það þyrfti bara að fara á móti Lucky til að vinna sem hann og gerði og slapp við tígul og sendi Lucky heim.

Eftir að hafa verið á siglingu fyrir hlé fór jafn og þétt að minnka staflinn og endaði svo að Kafteinn var svo illa særður eftir að vera með fullt hús 444QQ en Robocop 444KK og Robocop þá kominn með chip lead. Stuttu seinna horfir Kapteininn á kónga og hækkar en er séður af Robocop…gjafari átti í smá vandræðum í floppi og ás sýndur sem var brendur…Kapteininn fer all inn og Robocop í smá vanda með tvo ása á hendi og veit að einn er brenddur…en sér samt og tekur Kapteininn út.

Bótarinn dugði þá ekki lengur…búinn að vera allt of lengi að spila og löngu kominn háttatími.

Heimsi tók bubble sætið eftir að vera búinn að svellkaldur allt kvöldið og lét ekkert stoppa sig…en var að játa sig sigraðan með 23 á móti Á4 hjá Mikkalingnum þegar að hvorugur þeirra hitti neitt og high card hjá refnum bætti borðið og tók sigurinn og þúsarann…enda er Á alltaf (yfirleitt) góður 😉

Robocop var búinn að vera á fullu síðan hann kom…en varð að játa sig sigraðan á endanum…enda var refurinn ill viðráðanlegur og líklega ekki hættulaust styggja hann of mikið.

Mikkalingurinn tók því fyrsta sigurinn og byrjar af jafn miklu öryggi og eins í fyrra.

Frábært kvöld eins og alltaf…helstu uppýsingar um stöðuna hægt að sjá á Bjólfsmeistarinn 2022 (eða stöðusíðunni) og næsta mót verður í Athvarfinu og verður spennandi að hittast á nýjum stað 🙂

Lesa meira

4 lita spilastokkar

Birt af þann 17. Aug 2021 Í Búnaður, Fréttir | Engin ummæli

Fjárfest hefur verið í 2 spilastokkum sem eru í 4 litum og verða prufukeyrðir á komandi tímabili. Hér eru nú allir búnir að læra að “litur” er í raun sort en þessi litasamsetning á spilum ætti að vera staðalbúnaður í öllum stokkum til að fyrirbyggja misskling á orðinu “litur” þegar öll spilin eru af sömu sort og óreyndir spilarar telja sig vera í góðum málum með 5 rauð spil =)

Lesa meira

Bústaðurinn 2021

Birt af þann 4. Jul 2021 Í Bústaður, Fréttir | Engin ummæli

Bjólfsbræður í bústað 2021

Það var nokkuð ljóst að það var komin mjög mikil bústaðargredda í menn og sumir gátu ekki einu sinni beðið eftir föstudeginum og þurftu að taka út mesta spenninginn á fimmtudeginum…og þurftu jafnvel virkilega á því að halda 😉

En það var næstum fullt hús sem mætti til leiks í 2021 bústaðinn…bara einn Bjólfsbróðir fjarverandi í þetta skiptið og var hans sárt saknað.

Sögustund

Það sást vel á mönnum á föstudeginum að það var mikið uppsöfnuð spenna eftir að hafa misst af 10 ára ferðalaginu til Prag sem átti að vera bústaðurinn í fyrra…held að enginn hafi drekkt sorgum sínum en mennn fögnuðu því að geta hist á ný í bústað. Sögur segja að það hafi ekki verið jafn mikil drykkja síðan á Flúðum 2014 og sumir sem slógu jafnvel ný met í þessari ferð =). Hér mætti taka dæmi eins og Sjúgum Rass Prinsessan, leiktækin og litlu börnin…en það eru sögur sem við leyfum bara þeim sem voru á staðnum að eiga =) En menn eiga að bara við sig hvernig þeir nýta þennan tíma og hvað þeir gera til að skemmta sér og um að gera að allir hjálpist að við að gera það sem best þarna eins og öll önnur kvöld sem við hittumst.

Spilið

Lucky plataði einhverja sem kunnu ekki reglurnar og fór með rangt mál og ekki voru allir á eitt sáttir. Lucky fletti upp reglunum í hléi og leiðrétti sig og menn urðu bara að taka því…það geta allir flett upp reglunum og uppfært sjálfa sig hvenær sem þeir vilja 😉

Tímaþröng og drama settu aðeins strik í reikninginn þegar menn þurftu að fara að gera upp einhver atriði sem tengdust spilinu ekki neitt og eitt borðið var í háflgerðum lamasessi um stund og settu stjórn í smá bobba í sínum fyrsta bústað…en á endanum náðu allir að setjast niður og klára spilið.

Fyrstu menn út voru: Lomminn, Pusi, Iðnaðarmaðurinn, Timbrið og á eftir þeim yfirgaf Mikkalingurinn spilið og því nokkuð ljóst að hann væri ekki að fara að taka meistaratitilinn þar sem Lukcy var bara einu stigi á eftir og engin merki á þessum tímapunkti að hann væri að fara og þurfti bara að lifa af nokkur sæti í viðbót til að vera öryggur frá Kapteininum sem var 9 stigum á eftir.

Hobbitin var næstur út og þrátt fyrir að ná ekki langt í bústaðnum þá var hann í góðri stöðu í síðustu mótaröðinni eftir gott gengi í fyrstu tvemur mótunum og endaði í 2. í síðustu mótaröðinni.

Robocop, Nágranninn, Killerinn, Bensi, Bótarinn fylgdu á eftir og næstur var Kapteininn sem náði ekki að stela Meistaratitilinum en náði að smella sér uppí 3. sætið í mótaröðinni sem og að næla sér í Bjórmeistarann 2021 með 5 stigum.

Hr. Huginn tók bubble sætið og rétt missti af verðlaunasæti í fyrsta bústaðnum sínum og 4 eftir.

Verðlaunahafar

Massinn tók 4. sætið og ekki hægt að segja annað en það fór rosalega vel um hann í þessu sæti og sló enn eitt nýtt met:…”fyrstur til að sofna í miðju spili og vinna samt til verðlauna” 😀

Spaða Ásinn nældi sér í 3. sætið annað mótið í röð og skildi Heimsa og Lucky eftir í lokarimmunni.

Heimsi endaði á að landa Bústaðameistaratitlinum 2021 og Lukcy tók Bjólfsmeistarann og sigur í síðustu mótaröðinni.

Pottnum

Pottnum

Það var pínu þema í ár: EKKI SVETTA POTTNUM og það má með sanni segja að það hafi átt við…eða ekki…þar sem stærsti skandallinn var pottnum! Það var skvett aðeins í honum á föstudeginum þannig að hann var varla nothæfur eftir það þar sem þetta var upphitaður og ekkert hægt að bæta í hann eða eiga við hann…þó að sumir hafi látið sig hafa það 😉

Stjórnin

Varningur kynntur

Stjórnin stóð sig með príði á tímabilinu og í bústaðnum og ánægjulegt að fá ferska menn inn og verður gaman að sjá hvernig þetta þróast hjá okkur komandi tímabili/árum.

Margt sem menn gætu viljað ræða og spá í eftir bústaðinn. Dagskrá á bústaðahelgi og aðrir hittingar eru bara eitthvað sem að allir geta komið með uppástungur til stjórnar og aðstoðað hana við að halda utan um klúbbinn.

“Heilt yfir, geggjaður hópur og geggjaður tími…”

Nokkrar myndir

Lesa meira
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…