Breytingar á síðunni
Smá tiltekt á síðunni og upplistun á hvað hefur breyst:
- Tekið úr leiðakerfinu
- Austurlandshluti af síðunni hefur ekki verið uppfærður í meira en 4 ár og er því ekki lengur til staðar í leiðakerfinu
- Bók mánaðarins er einnig meira en 4 ára gamalt og því tekið forsíðunni
- “Skrá á mót” tekið út þar sem við meldum okkur ekki lengur hér á síðunni
- “Video” tekið út í efstu línu, en er aðgengilegt undir “Myndir” (nokkur gömul og góða á þessari síðu líka) og tek betur til í þessu seinna.
- Facebook login aftengt
- Þar sem það var að valda smá vandræðum (hver sem er gat skráð sig inn) og auk þess er spjallið meira komið á annan stað. Enn er hægt að Skrá sig inná síðuna ef menn vilja setja inn efni hér á síðunni.
Sjötta kvöld 9. tímabils lokið
Við settums beint við lokaborðið hjá Kapteininum í gærkvöldi þar sem aðeins sjö Bjólfsbræður komust. Nágranninn var með afgerandi forystu í mótaröðinni en þar sem hann komst ekki var ljóst að næstu menn áttu hörku keppni fyrir höndum þar sem fá stig skildu menn að.
Heimavöllurinn var að gera góða hluti fyrir Kapteininn sem byrjaði mjög stöðugt að stækka staflann sinn. Sjöur voru að gera góða hluti og dæmigerð hönd var þegar að Q♣Q♦ hjá Bótaranum fóru á móti 7♣7♠ hjá Kapteininum og borðið var 8♠3♥2♥ með 5♠ á turn og Kapteininn kallaði og fékk 7♥ á river.
Fleiri voru að hitta á river og Mikkalingurinn náði því nokkrum sinnum á móti Lucky. Gott dæmi var J♣J♥ hjá Mikkalingnum sem litu ekkert allt of vel út á móti 7♣9♣ hjá Lucky þegar að borðið var 6♣8♣9♥ og með 7♥ komin í borð á turn…en J♦ á river bjargaði gosunum. Það er spurning hvort að heppnin hjá Lucky sé eitthvað að smitast yfir á aðra 😉
Mikkalingurinn náði að byggja sig vel upp á kostnað Lucky og tók forystuna á lokaspettinum. Iðnaðarmaðurinn tók bubble og Kapteininn endaði á að taka annað sætið og Mikkalingurinn átti góðan endasprett sem tryggði honum sigur á kvöldinu og í mótaröðinni.
Stigin
Stigataflan hefur verið uppfærð og takið eftir að röðunin miðast við mótin án OPEN en það er hægt að raða eftir stöðunni með OPEN mótinu með að raða eftir “M.OPEN” dálknum. Stigin hjá Eika og Lucky eru því hærri eins og er í þeim dálki þar sem þeir hafa mætt á öll móti og OPEN og allt talið saman í þeim dálk.
Engin bjórstig komu í hús þó menn hafi verið í góðu bjór-yfirlæti hjá Kapteininum sem bauð vel í tilefni dagsins. Timbrið datt út á síðustu stundu þannig að enginn gat gert upp bjórinn við hann og hafa því enn engir gert upp bjórskuldirnar sínar.
Takk fyrir heimboðið Kapteinn og allar veitingar og veigar =)
Næsta mót er 22. mars og þá byrjum við síðastu mótaröðina í 2018-2019 tímabilinu.
Lesa meiraBústaðurinn 2017
Það var flottur hópur af Bjólfsmönnum sem hittist í maí í fyrsta skiptið í stóra bústaðnum og óhætt að segja að það er eindregin ósk að héðan í frá verðum við þar (eða amk í einu stóru húsi).
Lesa meira0 dagar í lokamótið – nokkrir klukkutímar í spil
Skál bræður, þetta hefur verið skemmtilegt tímabil eins og alltaf…eftir nokkra tíma kemur í ljós hver hampar tiltlinum…
Lesa meira1 dagur í lokamótið – Bústaðurinn í dag
…upphafið nálgast, einn fjögurra kónga reis upp og sagði “Rísið upp menn, það er verið að safna í spil”
Þegar Bjólfsmenn grípa í spil
Heyrið kallið komið allir
Kvöldið það er okkar svallið
Félagsskapur kenndur við Seyðisfjarðarfjallið
Allir hlæja, allir skála
Sumir rísa sumir falla
Það eru kongunar við borðið hér í kvöld
Spilin fljúga gegnum loftið
Hækka eða folda það er erfitt valið
Spilin fljúga gegnum loftið
Það er erfitt að sætta sig við tapið

❤️😘