Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

6 dagar í lokamótið – hvað verður í matinn?

Skrifað af þann 7. May 2017 in Fréttir | Engar athugasemdir

Matseðill helgarinn:
Föstudagur: Hreindýraborgarar a la Bennsi
Laugardagur: Brunch of Kings, Nautalaund í kvöldmat

Bennsi er með borgarana og Bósi reddar kjötinu. Allt meðlæti verður verslað á leiðinni og Massinn og Heimi eru búnir að halda marga fundi og skipuleggja matinn, þannig að við ættum að vera í góðum höndum alla helgina.

Lesa meira

7 dagar í lokamótið – mótafyrirkomulagið

Skrifað af þann 6. May 2017 in Fréttir | Engar athugasemdir

Eins og við vitum þá breyttum við reglum hjá okkur í vetur þannig að nú er ekki takmark á fjölda endurinnkaupa fyrstu tvær umferðirnar og verður það fyrirkomulag í bústaðnum. Eini munurinn er að þessar tvær umferðir helmingi lengri heldur en vanalega og því er hægt að kaupa sig inn fyrstu tvo klukkutímana.

Bjórstigum er safnað fyrstu fjórar umferðirnar, þannig að tíminn sem að sjöa-tvistur er í gangi er einnig lengri.

Mótafyrirkomulagið er því í grunninn eins og allir þekkja frá öðrum kvöldum nema lengt hefur verið í tíma umferða til að gefa mönnum lengri tíma með litla blinda.

Þannig að allt sem þið þurfið að muna:

  1. Hægt að kaupa sig aftur inn fyrstu tvær umferðirnar
  2. Bjórstig í gangi fyrstu fjórar umferðirnar
    1. Lesa meira

8 dagar í lokamótið – Föstudagsspilið í ár

Skrifað af þann 5. May 2017 in Bústaður, Fréttir | Engar athugasemdir

Við höfum yfirleitt leikið okkur í einhverjum pókerleik á föstudagskvöldinu. Sælla minninga var High-Low (þar sem besta og versta hönd vann hverja hönd) þar sem Massinn féll út á fyrstu hönd með drottningar á hendi og var frekar foj yfir þessu öllu saman sem var hálf óskiljanlegt að halda reiður á enda breyttist allt mjög hratt.

Að þessu sinni munum við spila “Allir eru þúsari” þannig að hver sá sem tekur annan leikmann út fær þúsara (þúsundkall) að launum.

Annað verður svipað og við þekkjum, blindralotur hækka eins og ekkert verið að safna bjórstigum 😉 Allir fá 15þ chippa og þurfa ekki að kaupa sig inn, þetta er hluti af félagsgjöldunum.

Lesa meira

9 dagar í lokamótið – varningurinn í ár

Skrifað af þann 4. May 2017 in Bústaður, Fréttir | Engar athugasemdir

Það er búið að tryggja nýja boli fyrir sjöunda tímabilið. Þó svo að Formaðurinn hafi verið mjög seinn í að komast í undirbúning þá var nægur tími til að redda hönnun og prentun á bolina…þannig að við getum verið allir í stíl þegar við tökum hópmyndatökuna þarnæstu helgi 😉

Ég bind smá vonir við að Spaða Ásinn mæti í bústaðinn þar sem smá varningur sem var keyptur á síðasta ári þyrfti helst að vera afhentur af honum…sjáum hvort það verður ekki örugglega af því =)

Bjólfsmeistarinn mun fá smá-gripi einnig, þannig að eitthvað verður fyrir alla þó svo að aðrar hugmyndir hafi ekki náð í tíma fyrir framleiðslu og verða á bíða til næstu ára.

Lesa meira

10 dagar í endalokin á 2016-2017 tímabilinu

Skrifað af þann 3. May 2017 in Bústaður, Fréttir | Engar athugasemdir

Það er merkilega stutt síðan að 7. tímabilið byrjaði eins og alltaf hjá Iðnaðarmanninum í byrjun september fyrir 8 mánuðum. Nú eru aðeins 10 dagar þar til að við verðum allirflestir samankomnir til að fagna enn einu árinu…og eins og það hafi verið í gær sem við vorum síðast í bústað fyrir ári.

Fljótt að líða
Það er vel við hæfi að rifja upp þá fleygu setningu sem að Iðnaðarmaðurinn lét falla þegar við vorum nýkomnir í bústað eitt árið:
Viti strákar, það versta við að vera komnir í bústaðinn er að fyrr en varir verður helgin búin.
Orð að sönnu, tíminn flýgur og það styttist í mót með hverjum deginum.

Gúmmídúkurinn
Eftir bústaðinn í fyrra verslaði ég gúmmídúk sem hefur heldur betur sannað sig og ætla ég að sjá hvort við verðum okkur ekki út um annan svona og losum okkur við Lokaborðið (sem tekur bara pláss) og jafnvel þá líka Massaborðið 2.0 sem er í góðu yfirlæti hjá Iðanarmanninum.

Fjésbókin
Mætingar hafa verið færðar alfarið yfir á Facebook síðu klúbbsins og er það mikill kostur að menn hafa auðveldan aðgang að því jafnframt því að geta sjálfir stofnað viðburði eins og Robocop sýndi frammá nýlega og kom Formanninum verulega að óvart =)

Daglegar fréttir fram að bústað?
Eins og síðustu ár mun koma ný frétt hér á heimasíðunni á hverjum degi (líklega um hádegisbil), þannig að fylgist með og takið þátt í umræðunni í facebook…sjáumst eftir 9 daga (geri ráð fyrir að allir sem mæti komi uppí bústða á föstudeginum =)

Lesa meira

Bósi 1

Skrifað af þann 5. Mar 2017 in Fréttir, Mót | Engar athugasemdir


10 Bjólfsmenn lögðu leið sína upp til fjalla til Bósa en hittu þar fyrir vel upphitaðan Bósa sem var sjóðheitur yfir Leeds leik…sá leikur endaði með sigri og við það tvíelfdist húsráðandinn…meira að segja svo mikið að hann gekk berserksgang og tók út fína stofuljósið sitt sem hafði verið sérvalið og síðasta eintakið á landinu þegar það var verslað fyrir ekki löngu.

Bjórstig

Það var rakað inn bjórstigum og 4 sem komu í hús, Iðnaðarmaðurinn heldur enn öruggri forystu og er vel settur eins og staðan er þegar 3 kvöld eru eftir.

Kóngar og þristar
Það var mikið af kóngum og þristum í spilunum og hérna sjáum við dæmi um tvær hendur:

Pusi hélt að hann væri í góðum málum með 3 kónga og Robocop næstum henti frá sér fjörkunum þegar mönnum var síðan bent á að þeir mynduðu hús og tækju þannig kóngana.


Pusi var á ferðinni með K8 á móti K6 hjá Lucky þegar að sexa á river færði spilið yfir til Lucky…dæmigerður.

Barnastóllinn var ekki að gefa Robocop neina lukku:

Iðnaðarmaðurinn datt snemma út og gaf því öðrum kost á að nálgast sig á stigatöflunni og Mikkalingurinn nýtti sér það og jafnaði hann í Bjólfsmeistarakeppninni…þrátt fyrir að vera hafa ekki mætt á 2 mót tímabilsins…þannig að það er hörku spenna fyrir síðustu 3 kvöldin.

Enginn annar en Bósi stóð uppi sem sigurvegari…enda á heimavellinum og þurfti aðeins að safna í púkk fyrir nýju ljósi í stofuna 😉 Nágranninn tók annað sætið og er hægt að sjá tölfræði yfir stöðuna á stigatöflunni.

Takk fyrir heimboðið Bósi og það eru 2 heimamót eftir, 31. mars og 28. apríl…þið sem hafið ekki haldið mót endilega bjóðið ykkur fram og takið þátt í þessu með okkur.

Lesa meira
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…