Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Síðasta kvöldið fyrir bústað eftir 2 daga

Skrifað af þann 15. Apr 2015 in Fréttir | 1 ummæli

Það er að skella á síðasta “heimapókerinn” fyrir bústaðinn…2 dagar til stefnu og 4 efstu menn í Bjólfsmeistarakeppninni hafa þegar skráð sig til leiks.

Lesa meira

Hamingjuóskir til Spaða Ássins & vika í mót

Skrifað af þann 9. Apr 2015 in Fréttir | Engar athugasemdir

Bjólfur á góðum degi

Bjólfur á góðum degi


Spaða Ásinn fagnaði stórafmæli í gær og þessi mynd af “Bjólfi á góðum degi” er tileinkuðu honum (vonandi var dagurinn sérstaklega góður 😉

Nú er vika í næsta mót, að öllu óbreyttu munum við hittast hjá mér nema að einhver annar bjóði sig fram?

Skráningin er opin og erum við að tala um síðasta kvöldið fyrir bústað þannig að það er heldur betur farið að styttast í lok 2014-2015 mótaraðarinnar þar sem Bjólfsmeistarakeppnin er spennandi sem aldrei fyrr og hægt að glöggva sig nánar á því og fleiru í stöðunni.

Lesa meira

Vika í næsta mót

Skrifað af þann 20. Mar 2015 in Fréttir | 4 athugasemdir

Það eru væntanlega allir tilbúnir í kvöld nr. 2 í þriðju mótaröðinni sem er eftir viku. Ekki er kominn neinn gestgjafi þannig að óbreyttu verðum við hjá mér í Hafnarfirðinum UPPFÆRT: verðum hjá Iðnaðarmanninum.

Lesa meira

Bóndinn býður heim á föstudaginn

Skrifað af þann 1. Feb 2015 in Fréttir | 4 athugasemdir

Það er komið heimboð til Bóndans á næsta föstudag þar sem úrslitin í annari mótaröðinni á tímabilinu munu ráðast. Mikkalingurinn er efstur með 16 stig og Timbrið í öðru sæti með 15 stig. Hobbitinn og Killerinn eru svo saman í þriðja sæti með 12 stig…aðrir koma svo í halarófu á eftir. Hægt að sjá það með að skoða stigatöfluna og raða eftir “Mótaröð 2” (Smellið efst á dálkinn “Mótaröð 2” til að raða eftir honum).

Spurning hvort einhverjar 7-2 skila sér í hús og menn líka minntir á að gera upp bjórinn & árgjaldið (enn eiga 7 eftir að gera upp árgjaldið og fleiri bjórinn), sjá árgjaldið – flipinn Innkoma 2015.

Heilmikil spenna er einnig í Bjólfsmeistarakeppninni og þetta hefur sjaldan verið meira spennandi 😉

P.s. takið þátt í könnuninnin hérna hægra megin ->

Lesa meira

Meistarakeppnin 2015 hálfnuð

Skrifað af þann 18. Jan 2015 in Fréttir | Engar athugasemdir

Þó svo að Lukku Láki hafi byrjað af krafti er klárt hver er að vinna jafnt og þétt á og hefur það skilað Timbrinu í efsta sæti.

Hægt er að fara með músina yfir línurnar til að sjá hver á hvaða línu og staðan er á hringjunum.

Lesa meira

Bjólfur í fréttum

Skrifað af þann 12. Jan 2015 in Fréttir | 1 ummæli

Bjólfur OPEN komst í fréttirnar hjá Seyðisfjarðarpóstinum sem er fréttasíða sem segir frá öllu milli himins og jarðar sem gerist eða tengist Seyðisfirði eða Seyðfirðingum.
Það er síða sem enginn á að láta framhjá sér fara sem vill fylgjast með hvað er í gangi á Seyðisfirði og enginn annar en Stofnandi Bjólfs sem að heldur úti Seyðisfjarðarpóstinum.

Lesa meira
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…