Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

BJÓLFUR OG FRAMTÍÐIN

Skrifað af þann 29. Jun 2012 in Fréttir | 1 ummæli

Takk fyrir gott heimboð, ég fékk allavega þær veitingar sem mig langaði í. Þetta var virkilega gaman. Maður náði að svala þorstanum bæði hvað varðar spilamennsku og að hitta félagana. Æ ok, svo var fínt að svala bjórþorstanum aðeins líka. mmmmmm (Homer style).

Við ræddum lauslega framtíðina í gær þó að marga hafi vantað. Allavega var það ákveðið og allir eru  sammála því að Lucky Logi verði formaður klúbbsins og að við munum halda áfram að efla klúbbinn og styrkja. Logi, hvenær hefurðu hugsað þér að starta season? Lok Ágúst?
Ég legg allavega til að við tökum fyrsta mót með stæl, helst að Iðnaðarmaðurinn get græjað húsnæðið hjá gamla og sláum upp flottu fyrsta móti. Fá okkur að éta saman áður og eins og Iðni segir stundum (yfirleitt) taka daginn soldið snemma. Hittast bara strax eftir vinnu.
Við fórum líka aðeins yfir mögulekandídata í klúbbinn. Er ekki bara ágætt að koma mönnum á blað, menn geta sent ábendingar á Loga, við setjum þá á blað og ræðum málið?
Commentið á þetta. Ef engir kandítatar koma þá ákveður Logi bara hvað verður gert.
Sumarkveðjur frá Massanum, helköttaður og tanaður í drasl
Lesa meira

Gokart 2012 – úrslit

Skrifað af þann 10. May 2012 in Fréttir | 5 athugasemdir

Það voru 8 Bjólfsmenn sem að hittust og klæddu sig í hjálma og stigu um borð í keppnisbílana í kvöld. Sem betur fer hafði Logi prófað þetta um daginn og komist að því að ekki var boðið uppá keppnisgalla þannig að allir voru undirbúnir í “drullugöllunum”.

Lesa meira

33 afmælispóker 9Q

Skrifað af þann 6. Dec 2011 in Fréttir | 7 athugasemdir

Bjólfsmeistarinn 2011 býður til afmælisveislu í tilefni góðs pókersaldurs 33 með pizzu og póker þann 9Q næstkomadi.

Lesa meira

Reglubreytingar

Skrifað af þann 15. Apr 2011 in Fréttir | 4 athugasemdir

Í ljósi uppákomu í kringum síðasta mót hafa verið gerðar nokkrar breytingar á reglum og refsingum.

Hugmyndin mín var aldrei að vera einhver einvaldur í klúbbnum en þar sem langflestir meðlimir hafa ekki mikla skoðun á umgjörð hans ákveð ég reglur og refsingar eftir mínu höfði en þó m.t.t. skoðannakanna og umræðna. Þeir sem eru ósáttir geta mætt á mót hjá Pókerklúbbnum Strandatindi 😉

  • Reglan um lágmark 8 meðlimi verður afnumin. Dagsetningar standa.
  • Þeir sem skrá sig eða breyta skráningu eftir miðnætti á fimmtudegi fyrir mót fá 1 refsistig
  • Þeir sem skrá sig ekki, hvort sem um er að ræða JÁ eða Nei, fá 1 refsistig.
  • Þeir sem skrá JÁ en mæta ekki eða breyta skráningu minna en þremur tímum fyrir mót fá 3 refsistig.
Lesa meira

Líkur á sigri: 100%

Skrifað af þann 29. Mar 2011 in Fréttir | 2 athugasemdir

Ég hef undirbúið mig svo gríðarlega fyrir komandi mót að ég er farinn að vorkenna ykkur nú þegar. Til að þið verðið ekki rasskelltir illilega og niðurlægðir hef ég verið að gefa ykkur grundvöll til ykkar eigin undirbúnings, t.d. með Bók mánaðarins. Nú hef ég bætt í búið og veitt ykkur aðgang að grundvelli allra veðmála í póker, hvenær skal kalla og hvenær pakka? Umfjöllunina um líkur er að finna undir hjálparhöndin á stikunni.

Ekki slá hendinni á móti þessari hjálparhönd, því hún mun hjálpa þér að hitta á nokkrar hendur en þú þarft sem fyrr að vara þig á þeim sem er laus höndin. Þeim sem gera allt með hangandi hendi er hins vegar ekki viðbjargandi. Sjálfs er höndin hollust!

Lesa meira

Ný skoðanakönnum og skráning

Skrifað af þann 29. Mar 2011 in Fréttir | Engar athugasemdir

Þar sem sú staða kom nú upp að möguleiki væri að mótinu yrði frestað voru meðlimir hvattir til að skrá sig sem fyrst af tillitssemi við aðra meðlimi sem vildu fá á hreint hvort mótið væri af eða á. Þetta gekk ekki snuðrulaust fyrir sig og virðist sem það séu yfirleitt þeir sömu sem trassa að svara eða svara yfir höfuð ekki.

Þess vegna er aftur tekin upp sú pæling að koma á einhvers konar refsikerfi til að gera skráningu skilvirkari. Þið hljótið að sjá óþægindin fyrir þann sem heldur mótið þegar hann veit ekki hvort um er að ræða eitt eða tvö borð og óþægindi fyrir alla um hvort þurfi að fresta móti. Það er því líka gott að fá vita hverjir koma ekki.

Annað hvort þurfa menn að taka sig á eða við þurfum að setja eitthvað kerfi á. Nýjasta skoðunakönnunin tekur á þessu máli og geta menn kosið fleiri en eitt já svar.

Lesa meira
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…