Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Bústaðurinn 2019

Skrifað af þann 21. Aug 2019 in Bústaður, Mót, Myndir | Engar athugasemdir

Margt gott gerðist í bústaðnum eins og alltaf…fæst ratar hérna inn en nokkrir punktar og niðurstöður úr keppnum fylgja hér.

Næsti bústaður

Hugsanlega fá menn verkefni fyrir næsta bústað eins og Hreinlætismeistari (sjá um að kaupa allt fyrir þrif 😉 og Pup Quiz stjórnandi sem Spaða Ásinn byrjaði á í ár og heppnaðist með eindæmum vel…kom í ljós að jafnvel formenn Bjólfs vissu nú ekki allt um klúbbinn 😉

Mannabreytingar

“það er bara allt kallt…on norður” – misstum 2 menn norður og 1 á leið erlendis þannig að það hefur aðeins fækkað. Kapteininn var formlega tekinn inn eftir að hafa staðið sig með príði á reynslutímabilinu og einnig var ákveðið að nýliðar væru sérstakir aðstoðarmenn formanns til að koma nýjum mönnum inní starfið og leyfa þeim að spreyta sig =)

Önnur mál frá Aðalfundi

  • Viðburðarstjórn fyrir 10 ára afmælisferð á næsta ári verða – Massinn, Bóndinn & Heimsi
  • Félagsgjöld verða áfram 12.000 og hækka uppí 20.000 1. janúar
  • Óbreytt regla að menn aðeins skráð stig eftir mót ef þeir hafa borgað félagsgjöldin
  • Hugmynd að vera með fastan varningur sem menn fá við inngöngu
  • Bústaður næst eða bara ferð var rætt (og hefur síðan þá verið ákveðið að sleppa bústaðnum fyrir ferð)
  • Pottnum / pottinn þarf að skýra (setjum inn upplýsingar um það hér, en í stuttu máli pottnum er með vatni, potturinn er með spilapeningum 😉
  • Útdeila verkum meira…

Bjór

Kapteininn byrjaði fyrsta árið sitt með því að landa Bjórmeistaratitlinum. Með titlinum fylgir sú kvöð að minna menn á að gera upp skuldir sínar og við höldum utan um hverjir hafa gert upp á bókhaldssíðunni.

Af öðrum fréttum að bjór var aðeins rætt um bjórinn Bóndinn og síðan í framhaldinu að það þyrfti að brugga Formanninn sem væri 9.12% 😉

Bjórmeistarinn

Formanni tókst að láta slá sig út af laginu og hélt að Lucky væri búinn að tryggja sér sigurinn. Þegar að hann var svo að slá inn síðustu menn inní stigatöfluna kom í ljós að Bótarinn hafði alltaf möguleikann á sigri sem og hann tók síðan með fræknum sigri í bústaðnum á Lommanum sem nældi sér í annað sætið.

Bótarinn fékk því rauða bolinn (aðeins búið að máta hann til af Lucky) og einnig Bústaðarmeistaratitilinn.

Sjá nánar í stigatöflunni fyrir Bjólfsmeistarann 2019.

Síðan eru hérna nokkrar myndir frá Bústaðarferðinni 2019 fyrir menn til að rifja glefsur upp.

Lesa meira

Áttunda kvöldi 9. tímabils lokið

Skrifað af þann 13. Apr 2019 in Mót | Engar athugasemdir

Jæja, þá eru heimamótin öll á 9. tímabilinu eftir að 8 fræknir Bjólfsbræður hittust hjá Lucky í gærkvöldi.

Spilið byrjað

Einhverjir höfðu nú meldað sig að mæta en létu ekki sjá sig…er það talið vera spenningur fyrir bústaðnum og menn hafi ruglast eitthvað í skráningunni 😉

Bjórmeistarinn uppsker sitt

Timbrið fékk uppgjör frá Bótaranum og Mikkalingnum og hafa því 4 gert upp bjórinn sinn…þannig að það stefnir í að Timbrið gæti setið á góðum stafla í bústaðnum þegar menn klára að gera upp.

Kampakátir með bjórstigin sín

Lomminn og Kapteinninn nældu sér í bjórst og þar með er Kapteinninn kominn með forystu í Bjórkeppnninni, hægt að skoða stöðuna á stigatöflunni.

Sigurvegarar kvöldsins

Kapteinninn átti gott kvöld auk þess að ná sér í bjórstig tók han Lucky út og nældi sér í þúsarann og náði svo uppí annað sætið og fékk verðlaunafé.

Bennsi tók sigurinn eftir að hafa verið fjarverandi frá Bjólfskvöldum um nokkurt skeið…líklega hefur hann verið í æfingabúðum.

…næsta verkefni er bústaðamótið þar sem ræðst hver tekur Bjólfsmeistaratitilinn 2019, Bjórmeistarann, sigur í síðustu mótaröðinni, bústaðpottinn…hægt að glöggva sig á því á stigatöflunni… allt útlit fyrir að bústaðurinn verði ein stór veisla og skemmtun =)

Lesa meira

Sjöunda kvöldi 9. tímabils lokið

Skrifað af þann 23. Mar 2019 in Mót | 1 ummæli

Það var föngulegur hópur sem settist niður hjá Iðnaðarmanninum í blíðviðrinu í gærkvöld.

Kvöldið byrjaði á því að Timbrið fékk fyrstu tvær kippurnar sínar sem ríkjandi Bjórmeistari. Lucky og Iðnaðarmaðurinn gerðu upp við kappann og aðrar hafa næstu tvö mót til að skila af sér.

Nágranninn var heldur betur sjóðheitur og gerði sér lítið fyrir og landaði 2 bjórstigum og jafnaði þar með Bótarann, Mikkalinginn og Kapteininn í keppninni um bjórstigin.

Lucky nældi sér í annað sætið og leiðir Bjólfsmeistarkeppnina. Nágranninn tók þar með þriðja sigurinn í röð á síðustu þremur kvöldum sem hann hefur mætt á og augljóst að hann er í banastuði og hægt að skoða alls konar tölfræði á stigatöflunni…vel við hæfi að hann tók sigurinn þar sem hann var eini sem mætti í Bjólfsbol 😉

3 vikur í næsta mót, verðum hjá Lucky og þar verður bjór í boði 😉

Lesa meira

Sjötta kvöld 9. tímabils lokið

Skrifað af þann 2. Mar 2019 in Fréttir, Mót | Engar athugasemdir

Við settums beint við lokaborðið hjá Kapteininum í gærkvöldi þar sem aðeins sjö Bjólfsbræður komust. Nágranninn var með afgerandi forystu í mótaröðinni en þar sem hann komst ekki var ljóst að næstu menn áttu hörku keppni fyrir höndum þar sem fá stig skildu menn að.

Heimavöllurinn var að gera góða hluti fyrir Kapteininn sem byrjaði mjög stöðugt að stækka staflann sinn. Sjöur voru að gera góða hluti og dæmigerð hönd var þegar að Q♣Q♦ hjá Bótaranum fóru á móti 7♣7♠ hjá Kapteininum og borðið var 8♠3♥2♥ með 5♠ á turn og Kapteininn kallaði og fékk 7♥ á river.

Fleiri voru að hitta á river og Mikkalingurinn náði því nokkrum sinnum á móti Lucky. Gott dæmi var J♣J♥ hjá Mikkalingnum sem litu ekkert allt of vel út á móti 7♣9♣ hjá Lucky þegar að borðið var 6♣8♣9♥ og með 7♥ komin í borð á turn…en J♦ á river bjargaði gosunum. Það er spurning hvort að heppnin hjá Lucky sé eitthvað að smitast yfir á aðra 😉

Mikkalingurinn náði að byggja sig vel upp á kostnað Lucky og tók forystuna á lokaspettinum. Iðnaðarmaðurinn tók bubble og Kapteininn endaði á að taka annað sætið og Mikkalingurinn átti góðan endasprett sem tryggði honum sigur á kvöldinu og í mótaröðinni.

Stigin

Stigataflan hefur verið uppfærð og takið eftir að röðunin miðast við mótin án OPEN en það er hægt að raða eftir stöðunni með OPEN mótinu með að raða eftir “M.OPEN” dálknum. Stigin hjá Eika og Lucky eru því hærri eins og er í þeim dálki þar sem þeir hafa mætt á öll móti og OPEN og allt talið saman í þeim dálk.

Engin bjórstig komu í hús þó menn hafi verið í góðu bjór-yfirlæti hjá Kapteininum sem bauð vel í tilefni dagsins. Timbrið datt út á síðustu stundu þannig að enginn gat gert upp bjórinn við hann og hafa því enn engir gert upp bjórskuldirnar sínar.

Takk fyrir heimboðið Kapteinn og allar veitingar og veigar =)

Næsta mót er 22. mars og þá byrjum við síðastu mótaröðina í 2018-2019 tímabilinu.

Lesa meira

Fimmta kvöldi 9. tímabils lokið

Skrifað af þann 9. Feb 2019 in Mót | Engar athugasemdir

Það var sest beint við lokaborðið hjá Bóndanum þegar sex Bjólfsbræður hittust í gærkvöldi.

Lesa meira

Fjórða kvöldi 9. tímabils lokið

Skrifað af þann 1. Dec 2018 in Mót | Engar athugasemdir

10 fræknir Bjólfsbræður mættu til Lucky í gær og hjálpuðu honum við að klára bjórinn hans 😉 Einhverjar breytingar urðu á hverjir kæmust…Bósi datt út á síðustu stundu og Nágranninn náði að mæta…og sér ekki eftir því =)

Engin bjórstig rötuðu í hús og standa því leikar þar óbreyttir með Kapteininn og Bótarann efsta með 2 stig.

Nágranninn stóð uppi sem sigurvegari yfir Mikkalingnum og Lucky sem náðu sér í verðlaun. Nágranninn leiðir því aðra mótaröðina en Lucky heldur enn toppsætinu í Bjólfsmeistaratiltlinum. Bótarinn lagaði stöðuna sína þar móti Kapteininum en þessir þrír hafa mætt á öll kvöld og telur það enn sem komið er…en ef stigataflan er skoðuð eftir meðtali á kvöldi þá er Mikkalingurinn með besta skorið.

Næsta mót er OPEN mótið og stigin þar (milli Bjólfsmanna) telja inn ef menn hafa misst af móti eða til hækkunnar ef menn eiga lægri stig af örðu móti. Þá verða engin bjórstig í boði…en kostur að menn geta unnið upp ef menn hafa misst af móti eða náð að hækka slæmt mót.

Við sjáumst því næst á Bjólfsmóti í byrjun janúar og einhverjir kíkja jafnvel til mín næstu helgi 😉

Lesa meira
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…