Bótarinn bítur frá sér
10 Bjólfsmenn settur niður við spil í hæstu hæðum hjá Bóndanum á föstudaginn og var spilað á tvemur borðum þar sem Formaðurinn harðneitar að setja 10 manns við eitt borð…þá nást bara of fáar hendur fyrir hlé 😉
Killerinn gerði út af við alla
12 Bjólfsmenn og 17 gestir mættu til leiks á Ljónið í gærkvöldi. Heldur meiri þáttaka en gerð hafi verið ráð fyrir þar sem skráningar virtust ekki allar hafa skilað sér tímanlega. En þetta slapp allt til og var þétt setið á 3 borðum.
Pistill frá kvöldinu
Gestir voru eins og áður flokkaðir eins og Bjólfsmenn og borguðu sig inn eins og þeir þó svo að þeir eigi ekki möguleika á að ná í lokapottinn. Einhverjir höfðu ekki lesið þetta áður en þeir mættu og þurftu því að fá þetta skýrt sérstaklega nokkrum sinnum yfir kvöldið.
Lucky Luke var fyrsti maðurinn til að kaupa sig aftur inn eftir rétt um 20 mínútna spil og síðan voru spilarar að kaupa sig inn reglulega en reyndar endurinnkaup en nema um helmingur á við buy-in. Gylfi var fyrstur til að detta út og fljótlega á eftir honum komu Bótarinn og Lucky Luke þannig að það var ljóst að Bjólfsmeistararnir voru ekki að standa undir nafni í kvöld. Killerinn & Slátrarinn voru hins vegar í góðum málum á Skjáborðinu sem ég sat við og sá mest af og reyndust þeir ná langt.
Lokaborðið Spilarar voru sendir milli borða og síðan var sameinað í 2 borð og á endanum á lokaborðið þar sem 9 spilarar settur niður í baráttunni um að ná í verðlaunasæti:
- Killerinn
- Bjarni
- Davíð / Slátrarinn
- Gummi (nágranni)
- Hobbitinn
- Guffi
- Ari Páll
- Brynjar
- Hildur Karen
6 gestir og 3 Bjólfsmenn. Spilarar duttu út með um 7 mínútna millibili þangað til að fjórir efstu á listanum sátu eftir og spurning hver myndi missa af verðlaunasæti þegar að Gummi var allur inn með kóngapar á móti Killernum með stakan ás. Killerinn hafði frá upphafi kvölds verið að hitta á hvað sem var og það var engin undantekning þarna…ás á river setti Gumma í bubble sætið. Slátrarinn tók 3ja sætið þar sem hann átti lítinn stafla eftir. Killerinn hélt uppteknum hætti og hitti á hvað sem er…skipti engu þó það var átta og fimma á hönd hjá honum, þá fékk hann bara tvær áttur í borð. Lokahöndin kom þegar að Bjarni fór allur inn með Á♠5♥ með 70þ chippa. Killerinn sá hann með K♣4♥ enda átti hann þá um 570þ chippa og með nóg af chippum til að brenna. Floppið kom 2♥J♥6d]…ekkert óvenjulegt að sjá gosa í borði en þeir höfðu verið ríkjandi gegnum kvöldið á Skjáborðinu…og á turn kom J♠ og þrátt fyrir að ásinn liti vel út hjá Bjarna þá kom river með 4♣ sem færði Killernum sigurinn.
Um Bjólfskeppnirnar & stöðuna
Önnur stjarnan Keppnin í annari mótaröðinni er líka æsispennandi þar sem Mikkalingurinn er á toppnum með 16 stig og Timbrið einu stigi á eftir. Hottibinn og Killerinn eru síðan stutt á eftir þannig að síðasta kvöldið í mótaröðinni verður spennandi uppá hver sigrar og hverjir ná í hluta af lokapottinum.
Verðlaunafé Killerinn er kominn á toppinn í sigurfé enda landaði hann stórum sigri í gær 😉
Meðtalsskorið Gummi (nágranni) er með feiknar gott meðaltalsskor eftir þessi tvö kvöld sem hann hefur mætt…spurning hvort hann væri í toppslagnum ef hann hefði mætt oftar?
Mánuður í næsta mót…og það vantar gestgjafa þannig að þeir sem hafa tök á að halda endilega bjóðið heim, annars munum við líklega verða hjá mér í Hafnarfirðinum.
Myndir frá kvöldinu
Frábært mót sem endaði rétt uppúr eitt og var því næstum 5 tímar að lengd. Þökkum öllum sem tóku þátt og sjáumst aftur á næsta OPEN móti eftir ár 😉
Read MoreRobocop ætlaði sér sigur allan tímann
Það endaði í 2 borðum hjá Bótaranum þegar að 11 Bjólfsmenn mættu á svæðið í lokakvöldið í fyrstu mótaröðinni.
Read MoreTimbrið á ferðinni
Það var fámennasta Bjólfsmót frá upphafi í gær hjá Iðnaðarmanninum þegar að 6 félaga hittust og spiluðu.
Read MoreGestir stóðu sig vel á BJÓLFUR OPEN 2013
10 hittust í mat og endaði í 22 sem settust niður á Ljóninu í gærkvöld og spilað var á 3 borðum.
Read More
Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…