Iðnaðarmaðurinn heitur á heimavellinum (Bjólfur XVI.1)

Það vour 15 Bjólfsbræður sem hittust á upphafsmótinu á Bjólfur XVI hjá Iðnaðarmanninum í gær. Líklega aldrei verið svona fjölmennt á fyrsta móti og munaði litlu að við værum á þremur borðum og ekki ólíklegt að það muni gerst miðað við góða byrjun í mætingunni.
Með þessu heimboði var Iðnaðarmaðurinn að bjóða heim í 30. skiptið og ekki að ástæðulausu að hann er oft líka kallaður Gestgjafinn…enda löngu búinn að tryggja sér þá nafnbót í gegnum árin þar sem hann ávallt greifi heim að sækja og allir fara sáttir…meira að segja þeir sem borða ekki bláber ;). En kom í ljós að ekki eru allir hrifnir af bláberjum í klúbbnum og kakan ekki jafn spennandi fyrir suma 😉
Er ekki að koma hlé? Ég er svo spenntur fyrir kökunni!
Bjór
Bjórguðinn fékk einhverjar gjafir sem og sérsmíðaða bjóröskju frá Lucky sem er heitur í smíðunum eftir húsasmíði sumarsins.

Það smitaðist beint í fyrsta spilið þar sem Kapteininn og núverandi bjórguð nældi sér í bjórstig í fyrsta spili og kemur ákveðinn inní baráttuna um bjórinn. Bensi nældi sér líka í stig og þeir tveir leiða því bjórinn með sitt hvoru stiginu.


Spilið
Bóndinn ákvað að taka á sig að vera fyrstur frá borði…enda kannski smá kaldur eftir að hafa sleppt síðasta móti? En fékk amk bolinn sinn og aðrar gjafir og fór því ekki tómhentur heim.
Góður meðlimur. Góður limur alla vegana!
Robocop var annar frá borði.
Heldurðu að þetta hafi verið áhugavert ef einhver annar hefði verið í þessu
Bósi er kominn aftur eftir langt hlé og hann virðist þurfa meiri tíma til að rifja aftur upp taktana…en eins og Bóndinn þá fékk hann gjafir til að taka með heim.
Sem betur fer höldum við með sama liði…annars værum við ekki vinir
Mikkalingurinn var ekki ánægður með að detta næstur út en lítið hægt þegar menn lenda á móti fjórum drottningum.
Það er hvergi tekið fram að megi ekki nota spil annara!
Timbrið var fimmti maður út.
Allir með…eða við fjórir
Húnninn náði ekki að byrja þetta tímabil af sama krafi og í fyrra og var næsti maður til að yfirgefa spilið.
Ég myndi fara með þetta fyrir nefnd
Bótarinn fylgdi…og amk einu stigi ofar en Húnninn í byrjun þessa tímabils 😉
Ég var einu sinni á bótum í tvær vikur. Ég er búinn að vera Bót allt mitt líf!

Hérna var sameinað á lokaborðið og tók sátu menn lengi þangað til að fyrstu menn fóru að detta út. Hérna hækkuðu blindir líka óþægilega hratt sem og að svörtu spilapeningarnir kláruðust í töskunni, þannig að það verður bætt við stóru rauðu í töskuna og blindralotur aðeins lagfærðar fyrir næsta mót.
Bensi var fyrstur til að standa upp frá lokaborðinu.
Maður er alltaf með…ef maður vinnur pott þá er maður meira með
Kapteinn þurfti að sætta sig við að fá bara bjórstig í kvöld en næstur út.
Ég hef aldrei séð þetta síróp virka
Það hafði hallað mikið á Hobbitann allt kvöldið þangað til hann komst á lokaborðið en varð að sætta sig við sjötta sætið.
Þú ert eins og Jaris…risastór
Spaða Ásinn leit vel út framan af og var heitur frá fyrsta spilin en eftir að hafa lent á móti þrennu hjá Lucky sem fór allur inn þá varð Ásinn eftir með hálfan stóra blindan og endaði á að taka búbbluna.
Nú býrðu með ljótum hálfvita og svo ferðu að hlusta á Ljóta Hálfvita!
Hr. Huginn fékk gjafa frá síðasta bústað og nældi sér í verðlaun þar sem við vorum það margir að 4. sætið gaf verðlaun.
Fín staðsetning, það er búð og kirkjugarður…mætti alveg vera ríki og hraðbanki
Kári Killer var sáttur við byrjunina á tímabilinu í 3ja sæti.
Ég get ekki bæði dottið út og gefið
Lucky var orðinn lítill á lokaborðinu en eftir að hafa fimmfaldað sig upp og svo tvöfaldað sig á móti Ásnum var hann orðinn erfiður viðureignar en Gestgjafinn tókst þó að stoppa hann á endanum.
Af hverju eru þið að færa pottinn frá mér
Iðnaðarmaðurinn byrjar vel á heimavellinum og eftir að hafa kallað á mikilvægt “timeout” (klósetthlé) þá gekk allt upp og hann kom tvíelfdur inní lokarimmuna og rúllaði upp fyrsta mótinu.
Ég er búinn að folda og get ekki verið að gefa líka

Sextánda tímabilið er þá formlega komið af stað eftir gott kvöld í góðra vina hóp. Upplýsingar um stöðuna má sjá á Bjólfsmeistarinn 2026 og örfáar myndir frá kvöldinu.
Can you be more specific about the content of your article? After reading it, I still have some doubts. Hope…