Maður gengur aldrei frá óstokkuðum stokk (Bjólfur XVI.6)

Á föstudaginn bauð Nágranninn heim í SunnyKEF, og endaði það með því að fjórir bílar lögðu af stað suður með sjó til að hittast í þriðja skiptið á heimavelli hans.
Þegar farið var að ræða að hittast og borða fyrir mótið tók Nágranninn ekkert annað í mál en að menn mættu snemma til sín. Hann setti fjall af beikoni í ofninn, kveikti á grillinu og afgreiddi borgara sem margir voru sammála um að væru langbestu borgarar sem hafa verið bornir fram í SunnyKEF — þó ýmsir góðir hafi áður verið nefndir í sömu andrá.
Stemningin var strax komin í gang, magar fullir og kvöldið fullkomlega undirbúið áður en stokkar voru stokkaðir og spil lögð á borð.
Djöfull er næs þegar maður mætir í póker og veit að Lomminn er
Bjór

Nágranninn steig fram með helgarfórn sína og blótaði ríkjandi bjórguð með reisn.
Timbrið, Kapteinninn og Lucky hlutu náð guðanna og söfnuðu bjórstigum kvöldsins.
Timbrið situr nú í hásætinu með 3 stig, Kapteinninn andar ofan í hálsmálið á honum með 2, en Robocop, Lucky, Massinn og Bóndinn halda allir í vonina með 1 stig hver.
Þrjú kvöld eru eftir.
Örlögin eru óskrifuð.
Bjórguðinn býður. 🍻⚔️



Spilið
Eftir dýrindis máltíð — og þegar síðasti bíllinn loksins skilaði sér í hús, þrátt fyrir að hafa lagt af stað seinna en hinir — var sest við borðið og stokkar blandaðir. Spilað var á tveimur borðum, enda gildir enn hin fornfræga “regla” fyrrverandi formanns um hámark átta á borði.
Ólsen Ólsen…breyti í Spaða
Annað borðið hóf kvöldið með öllu meiri „látum“ í innkaupum 😉 og peningarnir skiptust ört um hendur og menn voru duglegir að kaupa sig aftur inn. En eins og reyndir menn vita skipti það í raun engu hvað gerðist fyrir hlé — því eftir hlé byrjaði hið raunverulega mót. Þá fóru menn að detta út, og kvöldið tók á sig alvöru keppnisbrag.

Lomminn kom um langa leið alla leið frá Bjólfsfjallinu eina…en endaði fyrstur út eftir dýrkeyptar tvær hendur.
Nú tek ég niður gleraugun!
Timbrið var næstur og fagnaði því að vera amk ekki fyrstur út.
Maður gengur aldrei frá óstokkuðum stokk
Hr. Huginn kom síðastur í hús en endaði á að vera fyrstur í burtu eftir að vera þriðji maður út og með því var sameinað á lokaborðið.
Nú stoppum við þennan strák af…búinn að vinna alla pottana (báða)
Lucky fór ekki lengra og varð bara að lifa á því að hafa sótt sigur í SunnKef í fyrsta skiptið þegar spilað var þar…en nældi sér þó í bjórstig.
(Kallað milli borða) Lucky það þarf að skipta upp potti hérna megin
Nágranninn náði ekki að nýta heimavöllinn eins og síðast.
Þetta spil væri bara hálfnað ef hann væri edrú
Spaða Ásinn var í mesta basli með ásana…tapaði tvisvar með ásapar og kostaði hann að spila á þá hönd 😉
Ég folda alltaf ásapari…þá folda ég bara núna
Bótarinn var búinn að reyna að taka Hobbitann á þetta en varð að láta fimmta sætið duga.
Nei þú gafst upp…þú foldaðir ekkert!
Hobbitinn fór aðeins lengra en Bótarinn…en á svipuð tíma og tók búbblusætið.
Þegar hér var komið sögu voru allir ökumenn sem voru eftir í spilinu, skemmtileg tilviljun og kannski af því þeir voru ekki að drekka? En allir aðrir urðu bara að bíða rólegir eftir að fá far 😀
Hvað eru þið ennþá að spila eins og einhverjir vitleysingar
Kapteinninn hafði verið stórtækur en endaði á að taka fyrsta verðlaunasætið og skildi M&M eftir í lokarimmunni.
Ég ég vinn ekki í kvöld þá er ég hættur í þessum klúbb
Massinn endaði á að játa sig sigraðan og tók annað sætið.
Ég finn hvað maður spilar miklu betur ekki undir áhrifum…Er það?…Nei
Mikkalingurinn kom, sá og sigraði alla í SunnyKEF í þetta skiptið og nældi sér í toppstætið í mótaröðinni ,sem lauk einnig í kvöld, með öðrum sigrinum á síðustu þremur mótum.
Þetta áfengi fer rosa illa með ykkur…amk 5 til 12 febrúar



Staðan
Önnur mótaröðin kláraðist og Mikkalingurinn tók þessa auðveldlega með tvemur sigrum. Lucky tók annað sætið og Hobbitinn þriðja sætið.
Ég myndi skeina mér með 10þ köllum
Keppnin um Bjólfsmeistarann 2026 er ekki sú mest spennandi eftir að Iðnaðarmaðurinn ákvað að sleppa SunnyKEF og gefa Lucky lausan tauminn og situr hann nú 22 stigum á undan honum.
Jafn saklaus og Bósi
Enn eitt yndislegt kvöld með eðalmönnum á frábærum stað. Nú er aðeins síðasta mótaröðin eftir — og það styttist óðfluga í að tímabilinu ljúki. Spennan eykst, sögurnar safnast upp og lokaspretturinn blasir við…tvö heimamót eftir…jafnvel hjá Mikkalingnum næst og svo Spaða Ásnum…og svo er bara spurning hvernig hitað verður upp fyrir bústaðinn í maí?
❤️😘