Nýjust fréttir
Jón sigraði Jón
8 Bjólfsmenn mættu til leiks á síðasta heimamótið hjá Lukcy.
Bjór
Það var skemmtileg hönd þegar að Timbrið var með 7♥2♣ á hendi á móti Bótaranum með 7♠7♣ þegar að 7♦8♥4♥ komu í borð…allt leit út fyrir að þarna myndi ekki nást bjórstig þar sem sjöuþrennan var með þetta í hendi sér en 10♥ á turn og 2♥ á river gáfu Timbrinu litinn tryggðu honum eina bjórstig kvöldsins. Er hann því kominn með 3 stig eins og Lucky & Bótarinn og mikil spenna í Bjórkeppninni.
Jón & Jón
Eftir að menn duttu út einn af öðrum þá enduðu Jón og Jón tveir eftir. Eftir nokkur spil horfði Jón á K♦Q♦ og fór allur inn en var séður af Jóni með K♠Á♠…eitthvað sem Jón átti ekki von á að lenda á móti. Borðið endaði 5♠10♣8♠2♦9♥ og spaða ásinn dugði því Jóni til að landa sigri.
Jón er með afgerandi forystu í 3. mótaröðinni þegar að aðeins bústaðurinn er eftir, en ljóst að Lucky er nú þegar orðinn Bjólfsmeistarinn 2016 með 17 stiga forystu á Jón.
Takk fyrir gott kvöld…nú þarf að skipuleggja ýmsilegt fyrir bústaðinn eftir 3 vikur…meira um það fljótlega…
Lesa meiraHádegishittingur
Ég hitti Nágrannann um daginn í hádegismat og hann kom með frábæra hugmynd að við værum með hádegishitting. Þannig að það er komin skoðaðakönnun (hægra megin á síðunni) eða hérna fyrir neðan. Svarið hvað ykkur finnst svo hægt sé að ákveða framhaldið.
[poll id=19]
Lesa meiraSíðasta heimamótið á tímailinu
Þá er komið að því að við tökum síðasta heimamótið áður en haldið verður í bústaðinn í maí. Núna á föstudaginn er þriðja mótið í þriðju mótaröðinni…29. apríl, spil hefst kl. 20:30 eins og alltaf.
Að öllu óbreyttu verðum við aftur hjá Lucky nema að einhver bjóði fram húsnæði?
Skráning er opin, meldið ykkur.
Lesa meira(H)eldri mennirnir
8 Bjólfsmenn hittust á fötudaginn, leikar fóru þannig að Bótarinn tók Mikkalinginn undir lokin. Frekar upplýsingar er hægt að sjá á stöðusíðunni. Allir mættu uppstrílaðir í Bjólfsbolum eftir að búið var að tilkynna að ljósmyndari frá Séð&Heyrt myndi mæta… Lesa meira
Casa de Mass kvatt
Það er ekki nóg með að Lommaborðið sé ekki lengur á meðal vor heldur er nú einn (h)elsti staðurinn að hverfa. Casa de Mass þjónaði okkur vel á fyrstu árum klúbbsins og ósjaldan sem spilað var þar áður en að eigandinn fór að leigja hann út. Nú er komið að kveðjustund og fréttaritari Bjólfs skellti sér í heimsókn til Massans þar sem hann er að pakka saman úr höllinni.
Hérna sjáum við Massann taka sér stutt stopp frá störfum og þarna má einnig sjá glitta í peningaskápinn, veitir ekki af að geta geymt alla vinninga á góðum stað 😉
Lesa meira

❤️😘