Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Nýjustu fréttir

Bjólfsmeistarar samir við sig

Birt af þann 14. Sep 2014 Í Fréttir, Mót | 1 ummæli

20142015byrjar

Það er alltaf gott að byrja tímabilið á á afmælismótinu hjá Iðnaðarmanninum að vanda. Við vorum nokkuð lengi í gang, enda tók tíma að ræsa allt og menn þurftu að ræða mikið…enda nokkrir mánuðir frá síðasta spili.

Bjóruppgjörið
bjorinnIðnaðarmaðurinn & Bótarinn gerðu upp og við höldum óbreyttu fyrirkomulagi með bjóruppgjörið. Engin bjórstig komu inn í kvöld, enda sátum við 11 við borðið og erfitt fyrir menn að gera mikið með svo marga í kringum sig.

Spilið
Það voru vissulega karlmannleg knús og spennandi póker sem fór fram. Allt fór nú nokkuð rólega af stað og ekki fyrr en undir lok innkaupatímabils (fyrsta klukkutímans) sem menn fóru að taka áhættur og endaði þannig að Hobbitinn náði stórum stafla af svörtum chippum fyrir hlé.

Í hléi var það Gestgjafinn sem bauð uppá humarsúpu sem var notið yfir góðu spjalli 😉

Ásinn yfirgaf borðið fyrstur stuttu eftir hlé. Síðan leið nokkur stund þar til Robocop og Iðanaðarmaðurinn fygldu og enn leið góð stund þangað til að næstu menn fór út.

Bubble
Þegar komið var í 10. lotu voru ekki 4 í spilinu og einhver þurfti að gefa upp að fá verðlaunasæti. Hobbitinn hafði misst stóra staflan af svörtu chippunum en endaði að taka bubble sætið en hafði þó náð Þúsaranum svona í smá sárabót.

Bóndinn féll næstur út og Lucky Luke stóð undir nafni og þegar Bótarinn var allur inn var hann séður með 33 hjá LL en með tvö hærri spil á hendi og þurfti bara að hitta eitthvað…fyrsta spil í borð var 3 og ekkert sem stoppaði heppnina hjá Lucky.

Komin er ný staða á töfluna fyrir tímabilið og er þetta svipað og var upp á teningnum fyrir ári síðan þegar Bjólfsmeistararnir tveir voru einnig efstir eftir fyrsta kvöld. Spurning hvort menn ætli að láta þá komast upp með að vera að berjast um tiltilinn aftur eða fari að láta til sín taka eftir 3 vikur.

2015m1k1

Það er ekki komin staðsetning á næsta/u mót þannig að bjóðið fram eins og hentar ykkur.

Lesa meira

Karlmannlegt knús og spennandi póker

Birt af þann 10. Sep 2014 Í Blog | Engin ummæli

Spennan fer stigmagnandi nú þegar aðeins 2 dagar eru í fyrsta mót fimmta tímabilsins….heyrst hefur að það verði mikið um karlmannleg knús og spennandi póker 😉

Á svona stundum er oft gott að minnast þeirra sem hafa horfið á braut og skála fyrir þeim.

Einnig er alltaf gott að renna yfir siðarelgurnar og þá sérstaklega 14. reglu sem kemur mönnum oftar en ekki um koll 😉

Svo er nóg af myndum sem hægt er að finna hér og þar á síðunni og til dæmis frá september 2010 sem er með fyrstu mynduðu heimildum um klúbbinn 😉

Yfirlit yfir fyrirkomulagið gefur fljóta mynd af helstu hlutum sem þarf að muna eftir.

Þetta verður án efa skemmtilegt tímabil eins og alltaf og ég hef á tilfinningunni að margir líklegir síðustu ára muni láta taka til sín í ár og keppnin um Bjólfsmeistarann verður spennandi sem aldrei fyrr =)

P.s. ekki gleyma að skrá sig.

Lesa meira

The Bjólfsmóbíl

Birt af þann 5. Sep 2014 Í Blog | Engin ummæli

Tímabilið hefst eftir viku og ekki seinna vænna að auka bíl undir pókerboðið. Formaðurinn hefur því fjárfest í þægilegra ökutæki þar sem betur mun fara um Lommaborðið =) Einnig er búið að merkja bílinn þannig að klárt er að þarna er Bjólfsmóbíllinn á ferðinni 😉

Skráning fyrir fyrsta mótið eru hafnar hérna hægra megin, þið þekki þetta 😉

Lesa meira

The Bjolfur vekur eftirtekt

Birt af þann 30. Aug 2014 Í Austurland, Fréttir | 1 ummæli

Nýji bolurinn hefur vakið mikla eftirtekt hér á Seyðisfirði og margir hafa spurt hvar svona bolur fáist 🙂

Við Jón Valur spókum okkur oft um götur bæjarins í honum og ég fór í honum á fund bæjarstjóra um daginn og alls staðar vekur hann eftirtekt.

Lesa meira

Fimmta tímabilið byrjar senn

Birt af þann 24. Aug 2014 Í Blog | Engin ummæli

Fínt að fá smá uppriftum á helstu atriðum fyrir komandi tímabil
bjolfur_2014-2015_infographics

Lesa meira
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…