Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Tvær vikur… og bústaðurinn kallar 🏠🍺🃏

Enn einn föstudagur er runninn upp og eftir aðeins tvær vikur verðum við flestir samankomnir í bústað í fimmtánda skiptið til að loka tímabilinu með stæl — þó við tölum ekki um árið 2020. Þetta er ekki bara enn eitt mótið, heldur sjálfur lokakafli Bjólfur XVI, þar sem sögur verða til, gamlar sögur endursagðar, jafnvel nýjar sögur sem menn segja frá eða krydda í nýjan búning.

Spurningin sem brennur á vörum allra er einföld: hver verður bústaðameistarinn í ár? Verða það kunnugleg nöfn eins og Bótarinn, Hobbitinn eða Lomminn sem bæta þrija bústaðasigrinum við safnið sitt, eða stígur nýr maður fram og skrifar sig inn í sögubækurnar? Sagan hefur sín svör, en hún segir okkur líka að ekkert er gefið.

Á sama tíma kraumar spennan í síðustu mótaröðinni þar sem Heimsi og Lucky sitja jafnir á toppnum. Nú er þetta ekki lengur spurning um form heldur taugar — og hvorugur þeirra virðist tilbúinn að gefa tommu eftir þegar allt er undir. Hobbitinn er síðan bara 2 stigum á eftir og Timbrið lúrir 2 stigum á eftir honum…allt opið enn.

Ef við lítum aðeins til baka má sjá hversu langt við erum komnir. Fyrir tíu árum var verið að telja niður í sjötta bústaðinn. Nú erum við að fara í þann fimmtánda (af því 2020 var ekki bústaður) og mótin orðin 149 talsins þegar allt er tekið með — heimamót, bústaðir, boðsmót og rafmót. Það er því ljóst að hefðin er orðin sterkari með hverju árinu.

Sumt breytist þó aldrei. Enn er beðið eftir hinum goðsagnakenndu hreindýraborgurum hjá Bennsa sem hafa verið nefndir oftar en þeir hafa sést. Spurningin er hvort þetta verði árið sem þeir loksins mæta á svæðið — eða hvort þeir lifa áfram sem eitt af þessum klassísku loforðum sem halda áfram að fylgja klúbbnum…en það eru nú líka mjög íhaldssamar og háværar raddir sem fussa og sveija þegar suede vide, hreindýrarborgar eða eitthvað nýmóðins er nefnt…þannig að kannski verður þetta bara klassískt 😉

Það sem við vitum hins vegar með vissu er að upphitunin er þegar hafin. Snöpp af bjór eru farin að fljúga, skipulagið er í gangi — eða eitthvað sem líkist því — og veðmálasíður eru farnar að taka á móti veðmálum um ýmis málefni sem enginn veit enn hvernig fara…eins og hvað verður á bolnum í ár, hvaða gjafir verða, hversu oft verður hlegið yfir sexhjólamyndbandinu o.s.f.v…

Þegar allt er tekið saman er þetta þó meira en bara mót. Þetta er lokasprettur tímabilsins, uppgjör og ferðalag sem einhvern veginn gengur alltaf upp. Allir ætla að mæta, flestir mæta og einhver mætir seint — en það er einmitt hluti af upplifuninni.

Spurningin er því ekki lengur hvort þú mætir…heldur í hvaða ástandi 😏🍺🃏

Skila eftir athugasemd

  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…