Bjólfskviða
Hamingjuóskir til Spaða Ássins & vika í mót
Spaða Ásinn fagnaði stórafmæli í gær og þessi mynd af “Bjólfi á góðum degi” er tileinkuðu honum (vonandi var dagurinn sérstaklega góður 😉 Nú er vika í næsta mót, að öllu óbreyttu munum við hittast hjá mér nema að einhver annar bjóði sig fram? Skráningin er opin og erum við að tala um síðasta kvöldið fyrir bústað þannig að það er heldur betur farið að styttast í lok 2014-2015 mótaraðarinnar þar sem Bjólfsmeistarakeppnin er spennandi sem aldrei fyrr og hægt að glöggva sig nánar á því og fleiru í...
read moreLomminn mættur aftur
Það voru 10 Bjólfsmenn sem settst að spilum hjá Iðnaðarmanninum á öðru kvöldi í síðustu mótaröðinni. Með 10 leikmenn eru aðeins borguð út 2 sæti en það var áætlað að við yrðum 11. BjórLomminn & Ásinn náðu sér báðir í fyrsta bjórstigið sitt og ljóst er að það getur allt gerst í bjórkeppninni þó svo að Timbrið haldi enn eins bjórstigs forystu á Bótarann þá eru nú 8 spilarar með eitt bjórstig og þurfa aðeins 2 til að ná að jafna efsta mann. LomminnÞað fór ekki framhjá neinum að Lomminn var mættur og byrjaði hann fyrsta spil á að tvöfalda sig...
read moreVika í næsta mót
Það eru væntanlega allir tilbúnir í kvöld nr. 2 í þriðju mótaröðinni sem er eftir viku. Ekki er kominn neinn gestgjafi þannig að óbreyttu verðum við hjá mér í Hafnarfirðinum UPPFÆRT: verðum hjá Iðnaðarmanninum. Baráttan er svakaleg eins og sést á stigatöflunni og allt stefnir í spennandi keppni í Bjólfsmeistarakeppninni fram að bústað sem er handan við hornið…og bjórkeppnin er líka í fullum gangi eftir að bjórstigin fóru að hrynja inn á síðsta kvöldi. Það er stutt á milli móta og aðeins 3 vikur á milli núna fram að bústaðnum. Skráningin...
read moreEr Bótarinn bestur?
5 ára afmælinu var fagnað hjá Bósa í gær og var splæst í veislumat sem borinn var fram á fínasta stelli og allir í sínu fínasta pússi. Massinn þótti einn af þeim sem tóku sig vel út í fínu fötunum, enda ekki annað hægt þegar menn klæðast sérsniðnum fötum sem eru þar að auki merkt honum, það er klassi á honum sem verður ekki af honum tekinn. Er borðið farið að halla? Killerinn þegar hann var farinn að safna chippum í upphafi kvölds Þrátt fyrir góðan klæðaburð var það ekki að hjá Massanum og stóð hann fyrstur upp frá borðinu. Iðnaðarmaðurinn...
read moreFínn klæðnaður á 5 ára afmælismóti
Í lok vikunnar munum við hittast og halda uppá 5 ára afmæli klúbbsins á afmælismótinu hjá Bósa. Fyrirhugað er að hittast snemma og ná góðu spjalli yfir mat & drykk og í tilefni hálfs tugar afmælis klúbbsins er óskað eftir því að menn mæti fínir til fara. Einnig eru menn hvattir til að gera upp árgjaldið og vonandi þarf ekki að minnast á það aftur. Einnig eiga þónokkrir eftir að gera upp bjórinn sinn. Smá upprifjun af góðu afmælismóti fyrir 4 árum. Ekki gleyma að skrá þig...
read more“Nýja” handhæga Bjólfsborðið
Þar sem ég er orðinn hálf þreyttur á að drösla borðinu mínu út um allt (og Lommaborðið er enn í geymslu hjá Heimsa fyrir næsta bústað 😉 þá ákvað ég að gera eitthvað í þessu… Upphaflega átti Logaborðið að verða tilraun til að búa til handhægara borð en þar sem það var með álramma undir nennti ég ekki að standa í því… Þannig að í gær skelltum við Sindri okkur í smá bílferð og náðum okkur í pókerborð. Fórum svo í Byko og sóttum skrúfur og fleira sem þurfti til að breyta því í table-top. Notaði gömul handföng af íþróttatösku til að...
read moreBótarinn bítur frá sér
10 Bjólfsmenn settur niður við spil í hæstu hæðum hjá Bóndanum á föstudaginn og var spilað á tvemur borðum þar sem Formaðurinn harðneitar að setja 10 manns við eitt borð…þá nást bara of fáar hendur fyrir hlé 😉 Mikkalingurinn var með forystu í mótaröðunni og kom ákveðinn í að taka áhættur og ná þannig góðum stafla í upphafi…það endaði nú ekki betur en að hann keytpi sig tvisvar inn en náði að sitja eftir með einn chip fyrir hlé til að geta fyllt upp. Lucky tók fyrsta pott kvöldsins og síðan var lítið að frétta og skellti hann sér...
read moreBóndinn býður heim á föstudaginn
Það er komið heimboð til Bóndans á næsta föstudag þar sem úrslitin í annari mótaröðinni á tímabilinu munu ráðast. Mikkalingurinn er efstur með 16 stig og Timbrið í öðru sæti með 15 stig. Hobbitinn og Killerinn eru svo saman í þriðja sæti með 12 stig…aðrir koma svo í halarófu á eftir. Hægt að sjá það með að skoða stigatöfluna og raða eftir “Mótaröð 2” (Smellið efst á dálkinn “Mótaröð 2” til að raða eftir honum). Spurning hvort einhverjar 7-2 skila sér í hús og menn líka minntir á að gera upp bjórinn &...
read moreMeistarakeppnin 2015 hálfnuð
Þó svo að Lukku Láki hafi byrjað af krafti er klárt hver er að vinna jafnt og þétt á og hefur það skilað Timbrinu í efsta sæti. Bjólfskeppnin 2015 |Create infographics Hægt er að fara með músina yfir línurnar til að sjá hver á hvaða línu og staðan er á hringjunum.
read more
❤️😘