Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Bjólfskviða

Tímabilslok :-( bústaður 2011 )

Skrifað af þann 14. May 2012 in Bústaður, Mót | 2 athugasemdir

Tímabilslok :-( bústaður 2011 )

Þá er pókerárinu 2011-2012 lokið með vel heppnaðri og geysiskemmtilegri bústaðarferð. Því miður vantaði einn meðlim í ferðina þar sem Gummi Magg sá sér ekki fært um að koma og kannski þess vegna var drykkjan hófleg “að meðaltali” þetta árið en menn gerðu þeim mun betur við sig í mat þar sem laugardagurinn var ein stór matar- og pókerveisla. Á meðan Iðnaðarmaðurinn eða “Iðni”, Heimir og Massinn sáu um matseldina sagði Bósi sögur frá fyrri tíð og hélt stuði í mannskapnum og það er ánægulegt að segja frá að menn eru strax...

read more

Gokart 2012 – úrslit

Skrifað af þann 10. May 2012 in Fréttir | 5 athugasemdir

Gokart 2012 – úrslit

Það voru 8 Bjólfsmenn sem að hittust og klæddu sig í hjálma og stigu um borð í keppnisbílana í kvöld. Sem betur fer hafði Logi prófað þetta um daginn og komist að því að ekki var boðið uppá keppnisgalla þannig að allir voru undirbúnir í “drullugöllunum”. Brautin var þétt setin og iðulega menn komnir út í kant búnir að taka aðeins of mikið á því 😉 Úrslit úr tímatökunni voru í eftirfarandi uppröðun og síðan voru bestu tímarnir í sviga skv. yfirlitinu sem við fengum…en það er reyndar hrópandi ósamræmi milli þeirra og...

read more

Stóra bústaðamótið

Skrifað af þann 7. May 2012 in Bústaður, Mót | 8 athugasemdir

Stóra bústaðamótið

Það hafa komið upp vangaveltur vegna mótsins í bústaðnum en eins og allir vita er það töluvert lengra en venjulega og því væri fúlt að detta út snemma og horfa á hina spila í 5 tíma. Ég tel að við ættum að leyfa re-buy í þessu móti og í fyrra leyfðum við 2 re-buy þar sem spilað er í 90 mínútur fram að hléi. Það er ekki inni í myndinni að hafa buy in 3.000 kr. og tvö re-buy sem gerðu spilurum kleift að kaupa sig inn fyrir 9.000kr. Tillaga formans er þessi: Mótið byrjar kl. 1600 á laugd. Buy in 2.000 kr. Tvö re-buy fram að hléi (2.000 kr....

read more

Aðalfundur

Skrifað af þann 3. May 2012 in Blog, Mót | 3 athugasemdir

Aðalfundur

Nú líður senn að lokamóti ársins og að vanda verður útkljáð um allar keppnir og hliðarkeppnir í bústað úti á landi. Þá er ekki úr vegi að líta yfir farinn veg og skoða hvað var vel gert og hvað má betur gera hvað varðar mótafyrirkomulagið. Ég held að meðlimir séu að mestu sáttir með flesta þætti en þessa þætti tel ég þó að við ættum að skoða nánar: Innkaupsupphæð. Á að leyfa rebuy og add on aftur? Refsistig Skoða mótafyrirkomulag og reglur yfir...

read more

Hvað gerist á síðasta móti ársins?

Skrifað af þann 29. Apr 2012 in Blog | 3 athugasemdir

Hvað gerist á síðasta móti ársins?

Logi & Eiki munu berjast um Bjólfsmeistarann (♣) og hefur Eiki góða 5 stiga forystu og nú þegar kominn með jafn mörg stig og meistari síðasta árs náði inn á öllu tímabilinu. Það verður gamana að sjá hvort að Eiki standist pressuna og tryggi sér meistaratitilinn. Baráttan um síðustu mótaröðsstjörnina (★) í ár er mun harðari eins og sést á stigatöflunni. Eiki er þar í forystu með eitt stig á Hobbitann eftir að sá síðarnefndi klikkaði á skráningunni á síðasta móti…þannig að það er hörð keppni milli þeirra um efsta sætið og ef að...

read more

Ljónsmót

Skrifað af þann 28. Apr 2012 in Mót, Myndir | 2 athugasemdir

Ljónsmót

Með Massann í casino í Berlín var enginn til að bjóða sig fram til að halda mótið og var því haldið á Rauða ljónið. Þó svo að skúrinn hjá Gísla sé alltaf góður er alltaf stemning að mæta á Ljónið í flotta aðstöðu en það hefur auðvitað svolítil áhrif á budduna að þurfa að versla á barnum og ekki sama umhyggja og gestrisni og þegar meðlimir eru sóttir heim (það má t.d. ekki vænta þess að breytt sé yfir þá sem komast ekki heim). Einn gestur mætti á mótið en það var Palli hennar Lilju systur og það er ekki að spyrja að því að hann vann okkur alla...

read more

Mót á Rauða Ljóninu

Skrifað af þann 26. Apr 2012 in Mót | 1 ummæli

Mót á Rauða Ljóninu

Mótið á morgun (föstudag) verður á Rauða Ljóninu kl. 20 Pizza og bjór kl. 19. Vinir og velunnarar velkomnir. 3.000 buy in.

read more

Mót á föstudaginn

Skrifað af þann 23. Apr 2012 in Mót | 4 athugasemdir

Mót á föstudaginn

Nú líður undir lok tímabilsins á þessu pókerári. Baráttan er hörð á öllum vígstöðvum en einungis munar 4 stigum á Eika og Loga í Bjólfsmeistaranum. Bósi og Eiki eru jafnir í M3 með 15 stig og Hobbitinn fylgir fast á eftir með 14 stig. Næst síðasta mót verður á föstudaginn og er síðasta tækifærið að bjóða heim fyrir bústaðinn. Allmargir fengu refsistig fyrir vankanta á skráningu á síðasta móti og ættu menn að passa betur upp á þetta þar sem hvert stig hefur gildi. Nú er komin smá reynsla af núverandi fyrirkomulagi og kannski er tímabært að...

read more

Go-Kart

Skrifað af þann 18. Apr 2012 in Blog | 5 athugasemdir

Go-Kart

Af frumkvæði Loga mæta 8 galvaskir meðlimir í Go-Kart 10. maí kl. 2020:30. Um er að ræða svo kallað lítið race en það lítur svona út: 10 mínútur í tímatöku Ökumönnum eru svo raðað uppá ráspól eftir bestu tímunum og svo er tekið 20 hringja race í lokin. Tekur um það bil 25-30 mínútur í heild sinni. Þeir sem ekki þorðu í kartið geta mætt á hliðarlínuna og séð um veðmálin og stuðninginn 😉 Þetta verður spennandi og gaman að gera e-ð svona. Flott framlag Logi. Go-Kartið er á Stórási 4-6 Garðabæ. Sjá kort af staðsetningu View Larger...

read more

Sérmerktar ölkrúsir

Skrifað af þann 18. Apr 2012 in Blog | 1 ummæli

Sérmerktar ölkrúsir

Löggð hefur verið inn pöntun fyrir merktum bjórkönnum fyrir alla meðlimi. Það er Bros sem sér um merkinguna og verða könnurnar afhentar í bústaðnum í maí. Það verður gríðarleg stemning þegar allir sitja saman við pókerboðið í bolunum með sérmerktar krúsir…(það er smá möguleiki að sumum þætti þetta nördalegt).

read more
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…