Bjólfskviða
Hraðaaukning á heimasíðunni
Eftir að hafa legið yfir hraðamálum heimasíðunnar hefur hún nú verið flutt (af hýsingaraðila) yfir á annan netþjón. Síðan er nú ekki nema um 3 sekúndur að hlaða sér upp á Íslandi í staðin fyrir að hafa verið 10-15, þannig að allir ættu að geta unað vel við þessa lagfæringu og auðveldað okkur störfin hér 😉
read moreTímabilið 2012-2013
Mótafyrirkomulagið verður sem áður: 3 mótaraðir sem hvert fyrir sig gefur stjörnu (★). Fyrstu tvær mótaraðirnar eru 3 mót/föstudagskvöld en síðasta mótaröðin einu kvöldi lengra þegar tímabilinu verður slúttað í bústað. Einnig er keppst um Bjólfsmeistarann (♣) 2013 sem er samanlögð stig í öllu tímabilinu…svo ekki sé nú gleymt 7-2 keppninni þar sem menn safna prikum og fá ríkulega borgað í bjór fyrir að sigra á bjórhöndina….nánar um mótafyrirkomulagið. Dagsetningar eru komnar hér á síðuna þannig að allir geta tekið þessa...
read moreBjólfsmeistarinn 2012
Til að halda því vel til haga þá stóð Eiki Bót uppi sem öruggur Bjólfsmeistari eftir lokamótið og hér má sjá hvernig tímabilið 2011-2012 fór.
read moreLomminn kvaddur,
Póker er spennandi dægradvöl þar sem leikendur geta slakað á, skemmt sér og notið vinalegrar samkeppni. Enginn annar leikur býður upp á sambærilega vitsmunalega örvun, tækifæri á að læra, og jafn góðan félagskap eins og póker gerir. Þolinmæði, tölfræðivitund, kænska, sálfræði, ákvarðanataka og agi eru aðeins brot af þeirri lífsnauðsynlegu hæfni sem pókerspilari þróar með sér. En þrátt fyrir allt skemmtanagildið og gagnlegu eiginleika pókersins er einn ógeðfelldur þáttur, sem oft á tíðum skilur leikendur eftir í sárum, órjúfanlegur frá þessum...
read moreBJÓLFUR OG FRAMTÍÐIN
Takk fyrir gott heimboð, ég fékk allavega þær veitingar sem mig langaði í. Þetta var virkilega gaman. Maður náði að svala þorstanum bæði hvað varðar spilamennsku og að hitta félagana. Æ ok, svo var fínt að svala bjórþorstanum aðeins líka. mmmmmm (Homer style). Við ræddum lauslega framtíðina í gær þó að marga hafi vantað. Allavega var það ákveðið og allir eru sammála því að Lucky Logi verði formaður klúbbsins og að við munum halda áfram að efla klúbbinn og styrkja. Logi, hvenær hefurðu hugsað þér að starta season? Lok Ágúst? Ég legg allavega...
read moreNýr formaður
Ég hef tekið við Formannsembættinu í klúbbnum…þangað til að betri maður finnst eða ég gef upp öndina. Ef einhver hefur athugasemd við það verður það að koma fram hér á síðunni. Gleymið ekki að heimasíðan okkar á að innihalda allar upplýsingar þannig að menn geti flett öllu upp…en það er ávallt Formaðurinn sem að ræður!
read moreUppskerumót 2012 – FRESTAÐ
Föstudaginn 22. júní kl. 20:30 verður haldið Uppskerumót 2012 hjá Loga að Hjallabraut 35. Ekki gleyma að taka með kippu af bjór fyrir 72 uppgjörið eða koma kippunni til einhvers sem mætir. Mál sem þarf að byrja að ræða fyrir næsta tímabil: Uppgjör við Formanninn – kaupa nýja chipa hana honum Tölva & taska – þurfum að græja okkur upp Inntaka nýliða Fyrirkomulag næsta tímabils
read moreInntaka nýliða
Það er fyrirséð að 2 falla úr hópnum fyrir næsta tímabil. Ásinn er farinn til Eyja og Lomminn heldur austur. Við treystum á að hitta þá og ná jafnvel póker hjá þeim á þeirra nýju heimaslóðum. En þeim verður sárt saknað og erfitt að missa fastamenn (þó svo að Ásinn hafi nú ekki verið með mætingaverðaunin þá lét Lomminn sig aldrei vanta. Það er því spurning hvort & hvernig við stöndum að inntöku nýliða. Þeir sem hafa aðstöðu til að bjóða heim eru þegar komnir með eitt stig en önnur stig eru í höndum Bjólfsmanna. Þetta verður rætt hér á...
read moreTillögur að breytingum
Formaðurinn hefur aðeins verið að leika sér með breytingar. Á sínum tíma var aðaltilgangurinn með skráningareglunum að gestgjafi hverju sinni vissi hvað mætti búast við mörgum og hvort nægileg mæting næðist. Það hefur verið góður stöðuleiki í mætingu í vetur og því verður aðeins slakað á refsistigum vegna skráninga. Reglur yfir skráningar Þeir sem ætla að mæta þurfa að skrá sig fyrir miðnætti fyrir mótsdag. Þeir sem mæta en skrá sig ekki fyrir tilsettan tíma fá 1 refsistig (fá minnst 0 stig). Einnig hafa verið gerðar breytingar á...
read more
❤️😘