Nýjustu fréttir
Hádegishittingur
Ég hitti Nágrannann um daginn í hádegismat og hann kom með frábæra hugmynd að við værum með hádegishitting. Þannig að það er komin skoðaðakönnun (hægra megin á síðunni) eða hérna fyrir neðan. Svarið hvað ykkur finnst svo hægt sé að ákveða framhaldið.
[poll id=19]
Lesa meiraSíðasta heimamótið á tímailinu
Þá er komið að því að við tökum síðasta heimamótið áður en haldið verður í bústaðinn í maí. Núna á föstudaginn er þriðja mótið í þriðju mótaröðinni…29. apríl, spil hefst kl. 20:30 eins og alltaf.
Að öllu óbreyttu verðum við aftur hjá Lucky nema að einhver bjóði fram húsnæði?
Skráning er opin, meldið ykkur.
Lesa meira(H)eldri mennirnir
8 Bjólfsmenn hittust á fötudaginn, leikar fóru þannig að Bótarinn tók Mikkalinginn undir lokin. Frekar upplýsingar er hægt að sjá á stöðusíðunni. Allir mættu uppstrílaðir í Bjólfsbolum eftir að búið var að tilkynna að ljósmyndari frá Séð&Heyrt myndi mæta… Lesa meira
Casa de Mass kvatt
Það er ekki nóg með að Lommaborðið sé ekki lengur á meðal vor heldur er nú einn (h)elsti staðurinn að hverfa. Casa de Mass þjónaði okkur vel á fyrstu árum klúbbsins og ósjaldan sem spilað var þar áður en að eigandinn fór að leigja hann út. Nú er komið að kveðjustund og fréttaritari Bjólfs skellti sér í heimsókn til Massans þar sem hann er að pakka saman úr höllinni.
Hérna sjáum við Massann taka sér stutt stopp frá störfum og þarna má einnig sjá glitta í peningaskápinn, veitir ekki af að geta geymt alla vinninga á góðum stað 😉
Lesa meiraNýr völlur 1. apríl
Verðum hjá mér eftir viku á nýjum stað og spurning hvernig sá heimavöllur mun reynast mér, en fátt sem er að stoppa mig í Bjólfsmeistarabaráttunni eftir að Nágranninn missti af síðasta móti.
En þetta er annað kvöldið af fjórum í lengstu mótaröðinni og allt getur gerst í keppninni um stærsta lokapottinn þar sem Lomminn er efstur og Heimsi þar á eftir.
Bjórstigin eru enn flest (3) hjá Lucky en Bótarinn og Timbrið eru báðir með 2 og Bóndinn og Killerinn sitt hvort og þrjú kvöld eftir til að ná toppsætinu.
Árgjaldið eiga nokkrir enn eftir að borga og væri nú vel séð að klára það fyrr en síðar. Einnig eiga margir eftir að gera upp bjórinn sinn (eða hluta af því)…enda uppgjörið mjög “flókið” í ár 😉
Skráning fyrir 1. apríl er opin og meldið ykkur þannig að ljóst er í tíma hvað þarf mikið af stólum/borðum.
Lesa meira
Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…