Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Nýjustu fréttir

Hann kom til að sjá og sigra !

Birt af þann 5. Mar 2016 Í Fréttir | Engin ummæli

Lomminn kom óvænt fullur eldmóðs afmælisdeginum á afmælismótið. Skemmtielgt að fá hann á móti og byrjuðum kvöldið á að taka rölt á Ljónið og nærast þar sem allir mættu (þó ekki væru nema 8 að spila).

Síðan var sest niður og fóru menn beint á Lokaboðið.

Það var líkt og síðast þear Lominn mætti að hann var í gírnum og skilaði sannfærandi sigri þó svo að maðurinn í öðru sæti hafi ekkert gefið honum eftir.

Það sem eru jafnvel stærri fréttir að Heimsi gerði harða atlögu að Lommanum og náði sér í annað sætið og þar með fyrstu verðlaunin sem að hann nælir sér í. Enda hefur hann verið sýna stórkostlegar framfarir í mætingu og búinn að margfalda mætinguna sína frá fyrri árum.

Eftir 6 ára spilamennsku er hann loksins kominn á blað. Góður afmælisdagur hjá klúbbinum og jafnvel enn betri hjá Heimsa og jafnvel ennþá betri hjá Lommanum 😉

Staðan & stig
Bótarinn náði sér í bjórstig og er nú kominn með 2 og staðan hefur verið uppfærð. Lucky er með yfirgnæfandi forystu og aðeins hann og Mikkalingurinn sem hafa mætt á öll mót tímabilsins þó svo að Mikkalingurinn hafi ekki byrjað vel og á langa vegferð að ná Lucky. Nágranninn mætti ekki í gær og saxaði því ekki á toppsætið.

Takk fyrir enn eitt gott kvöld, til hamingju með 6 ára afmæli, gaman að sjá Lommann og þökkum Binnu fyrir að fresta London fluginu hjá þeim um einn dag, enn og aftur hamingjuóskir til Heimsa að ná vinning og Mikkalingurinn fær þakkir fyrir heimboðið og að skipuleggja matinn fyrir spil =)

P.s. Iðnaðarmaðurinn ætlaði að setja upp Facebook grúppu, þanniga að kannski fer góð umræða í gang þar í framhaldinu.

Lesa meira

Nýr völlur vígður á föstudaginn

Birt af þann 2. Mar 2016 Í Mót | 2 Ummæli

Við munum fara á ókunnar slóðir á föstudaginn þegar að Mikkalingurinn býður heim í nýju höllina. Þar sem það er afmælismót sem hittir einmitt af afmælidaginn hjá klúbbnum og Stofnandanum þá er spurning hvort við hittumst ekki eitthvað fyrr og Timbrið kemur jafnvel með eitthvað í tilefni dagsins?

Lesa meira

Lucky stelur mótaröðinni

Birt af þann 7. Feb 2016 Í Mót, Myndir | Engin ummæli

Nágranninn var með forystuna þegar 10 Bjólfsmenn hittust hjá Iðnanaðarmanninum á föstudaginn. Nokkrar sjöa-tvist hendur litu dagsins ljós og meðal annars sú hönd sem varð þess valdandi að Nágranninn datt annar út og gaf því frá sér möguleikann á að halda fyrsta sætinu.

Lesa meira

Annari mótaröðinni lýkur hjá Iðnaðarmanninum

Birt af þann 3. Feb 2016 Í Mót | Engin ummæli

Önnur mótaröðin klárast á föstudaginn og hefur Iðnanðarmaðurinn boðið heim.

Það er spenna í mótaröðinni þar sem Gummi nágranni er með 3ja stiga forystu í efsta sæti á Lucky Luke og Robocop stigi á eftir honum. Síðan er Iðnaðarmaðurinn 4 stigum þar á eftir og síðan margir þar á eftir, þannig að það gæti orðið spennandi barátta um að ná í lokapotta fyrir mótaröðina (þó svo að sú upphæð sé lægri þar sem engir lokapottar voru á Bjólfur OPEN í ár).

Byrjum 20:30 að vanda.

Lesa meira

Opna mótið & söfnun gengu vel

Birt af þann 12. Jan 2016 Í Bjólfur OPEN, Mót | Engin ummæli

Screen Shot 2016-01-09 at 12.32.38
Það var flottur hópur sem mætti á Bjólfur OPEN 2016 hjá okkur á föstudaginn var. 15 Bjólfsmenn og 10 gestir (á myndina vantar Robocop sem skaust frá um stund) gerðu gott mót.

Heilarfé sem spilað var uppá voru um 120 þúsund og enduðu leikar þannig að það var gestur sem tók fyrsta sætið og Bjólfsmaður annað sætið. Efstu menn sem skiptu með sér verðlaunum: Pétur Blöndal, Gummi nágranni, Robocop, Gummi Guðjóns og Gulli. Blöndal þurfti lítið að hafa fyrir þessu og þrátt fyrir að vera í fyrsta skipti sem hann spilar þá var heppnin með honum frá upphafi til loka.

Söfnunin tóks vel og safnaðist 250 þúsund í styrktarsjóðinn sem við felum foreldrunum í minningarsjóð Jennýjar Lilju og sendum þeim jafnframt okkar bestu kveðjur.
Bjólfsmenn og gestir á opna mótinu fá sérstakar þakkir, þar á ferð voru margir sem lögðu sitt af mörkum og margir sem voru rausnarlegir.
Einnig hafa Bjólfsmenn lagt sérstaklega í sjóðinn fyrir utan sjóðinn sem er fallega gert.
Auk Bjólfsmanna og gesta á opna mótinu tóku Hvalaskoðun Reykjavíkur, Huginn ehf og Ísfélag Vestmannaeyja þátt í söfninni og þökkum við þeim einnig fyrir.

Gestir, Bjólfsmenn og aðrir velunarar þakka ykkur kærlega fyrir ykkar þátttöku.

Örfáar myndir frá mótinu:

Lesa meira
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…