Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Nýjust fréttir

Nýr völlur 1. apríl

Skrifað af þann 25. Mar 2016 in Fréttir | Engar athugasemdir

Verðum hjá mér eftir viku á nýjum stað og spurning hvernig sá heimavöllur mun reynast mér, en fátt sem er að stoppa mig í Bjólfsmeistarabaráttunni eftir að Nágranninn missti af síðasta móti.

En þetta er annað kvöldið af fjórum í lengstu mótaröðinni og allt getur gerst í keppninni um stærsta lokapottinn þar sem Lomminn er efstur og Heimsi þar á eftir.

Bjórstigin eru enn flest (3) hjá Lucky en Bótarinn og Timbrið eru báðir með 2 og Bóndinn og Killerinn sitt hvort og þrjú kvöld eftir til að ná toppsætinu.

Árgjaldið eiga nokkrir enn eftir að borga og væri nú vel séð að klára það fyrr en síðar. Einnig eiga margir eftir að gera upp bjórinn sinn (eða hluta af því)…enda uppgjörið mjög “flókið” í ár 😉

Skráning fyrir 1. apríl er opin og meldið ykkur þannig að ljóst er í tíma hvað þarf mikið af stólum/borðum.

Lesa meira

Hann kom til að sjá og sigra !

Skrifað af þann 5. Mar 2016 in Fréttir | Engar athugasemdir

Lomminn kom óvænt fullur eldmóðs afmælisdeginum á afmælismótið. Skemmtielgt að fá hann á móti og byrjuðum kvöldið á að taka rölt á Ljónið og nærast þar sem allir mættu (þó ekki væru nema 8 að spila).

Síðan var sest niður og fóru menn beint á Lokaboðið.

Það var líkt og síðast þear Lominn mætti að hann var í gírnum og skilaði sannfærandi sigri þó svo að maðurinn í öðru sæti hafi ekkert gefið honum eftir.

Það sem eru jafnvel stærri fréttir að Heimsi gerði harða atlögu að Lommanum og náði sér í annað sætið og þar með fyrstu verðlaunin sem að hann nælir sér í. Enda hefur hann verið sýna stórkostlegar framfarir í mætingu og búinn að margfalda mætinguna sína frá fyrri árum.

Eftir 6 ára spilamennsku er hann loksins kominn á blað. Góður afmælisdagur hjá klúbbinum og jafnvel enn betri hjá Heimsa og jafnvel ennþá betri hjá Lommanum 😉

Staðan & stig
Bótarinn náði sér í bjórstig og er nú kominn með 2 og staðan hefur verið uppfærð. Lucky er með yfirgnæfandi forystu og aðeins hann og Mikkalingurinn sem hafa mætt á öll mót tímabilsins þó svo að Mikkalingurinn hafi ekki byrjað vel og á langa vegferð að ná Lucky. Nágranninn mætti ekki í gær og saxaði því ekki á toppsætið.

Takk fyrir enn eitt gott kvöld, til hamingju með 6 ára afmæli, gaman að sjá Lommann og þökkum Binnu fyrir að fresta London fluginu hjá þeim um einn dag, enn og aftur hamingjuóskir til Heimsa að ná vinning og Mikkalingurinn fær þakkir fyrir heimboðið og að skipuleggja matinn fyrir spil =)

P.s. Iðnaðarmaðurinn ætlaði að setja upp Facebook grúppu, þanniga að kannski fer góð umræða í gang þar í framhaldinu.

Lesa meira

Nýr völlur vígður á föstudaginn

Skrifað af þann 2. Mar 2016 in Mót | 2 athugasemdir

Við munum fara á ókunnar slóðir á föstudaginn þegar að Mikkalingurinn býður heim í nýju höllina. Þar sem það er afmælismót sem hittir einmitt af afmælidaginn hjá klúbbnum og Stofnandanum þá er spurning hvort við hittumst ekki eitthvað fyrr og Timbrið kemur jafnvel með eitthvað í tilefni dagsins?

Lesa meira

Lucky stelur mótaröðinni

Skrifað af þann 7. Feb 2016 in Mót, Myndir | Engar athugasemdir

Nágranninn var með forystuna þegar 10 Bjólfsmenn hittust hjá Iðnanaðarmanninum á föstudaginn. Nokkrar sjöa-tvist hendur litu dagsins ljós og meðal annars sú hönd sem varð þess valdandi að Nágranninn datt annar út og gaf því frá sér möguleikann á að halda fyrsta sætinu.

Lesa meira

Annari mótaröðinni lýkur hjá Iðnaðarmanninum

Skrifað af þann 3. Feb 2016 in Mót | Engar athugasemdir

Önnur mótaröðin klárast á föstudaginn og hefur Iðnanðarmaðurinn boðið heim.

Það er spenna í mótaröðinni þar sem Gummi nágranni er með 3ja stiga forystu í efsta sæti á Lucky Luke og Robocop stigi á eftir honum. Síðan er Iðnaðarmaðurinn 4 stigum þar á eftir og síðan margir þar á eftir, þannig að það gæti orðið spennandi barátta um að ná í lokapotta fyrir mótaröðina (þó svo að sú upphæð sé lægri þar sem engir lokapottar voru á Bjólfur OPEN í ár).

Byrjum 20:30 að vanda.

Lesa meira
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…