Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Bjólfskviða

Upphitun fyrir fyrsta mót

Skrifað af þann 28. Aug 2022 in EkkiPókerHittingur, Fréttir | Engar athugasemdir

VIð ætlum að skella okkur í Reykjavík Escape, fyrstu 8 sem skrá sig fá frítt í boði Hobbitans 🙂 Skráning er á FB síðu klúbbins! Eftir leik fáum við okkur svo eitthvað að borða áður en við mætum á fyrsta mót tímabilsins hjá Iðnaðarmanninum.

read more

Árgjaldið

Skrifað af þann 27. Aug 2022 in Árgjald, Fréttir | 3 athugasemdir

Stjórnin passar uppá peningana Árgjaldið í ár er það sama og í fyrra eða 15.000 kr. Gjaldið greiðist inn á reikn. 0123-26-011634 á kt. 050584-2329 sem fyrst. Ef að menn hafa ekki greitt árgjaldið fyrir fyrsta mót þann 2. september þá reiknum við ekki með þeim í Bjólfi í ár. Þetta er einfaldlega gert til þess að Stjórnin geti séð hverjir ætla sér að vera með, t.d. hvað við þurfum að panta margar gjafir o.fl. fyrir bústað. Það var tekin ákvörðun um það í síðasta bústað að þeir sem verða ekki með á tímabilinu verða...

read more

Níundi í Bjólfi…vindar breytinga í bústaðnum 2022

Skrifað af þann 11. May 2022 in Bústaður, Fréttir, Mót, Myndir, Varningur | 1 ummæli

Bjólfsbræður í bústað 2022 Það var mikil spenna þegar Bjólfsbræður fóru að safnast saman í litlu bústöðunum á Apavatni. Fengum ekki stóra bústaðinn í ár en náðum tvemur litlum og eins og oft áður var smá spölur á milli þeirra…en allir sem þar gistu komust heilu á höldnu á milli þó þeir hafi þurft að “stika” sér leið í myrkrinu 😉 Vindar breytinga Það var búið að lýsa því yfir fyrir helgina að það yrðu breytingar á matarvali og því ljóst að margra ára hefð yrði brotin…en það var ekki það eina sem breyttist. Strax snemma...

read more

Hver verður Bústaðameistari 2025?

Skrifað af þann 6. May 2022 in Fréttir | Engar athugasemdir

Robocop tók Bústaðameistann 2013 Nú styttist í árlega bústaðinn og endapunktinn á fimmtánda tímabilinu okkar. Á síðunni Bústaðameistarar er hægt að sjá alla sem hafa tekið sigur í lokamótinu (bústaðnum) frá upphafi. Bótarinn og Hobbitinn eru þeir einu sem hafa unnið tvisvar sinnum en annars 11 mismunandi menn sem hafa landað sigri á lokamótinu í bústað og spurning hvort við fáum nýjan eða einhverjar taka sinn annan sigur eða þriðja? Nú styttist í árlega Bjólfbústaðinn – hápunkt tímabilsins og endapunkt fimmtánda tímabilsins okkar. Þegar...

read more

Æsispennandi staða í Bjólsfsmeistarakeppninni

Skrifað af þann 5. May 2022 in Fréttir | Engar athugasemdir

Það breyttist margt við síðasta mót og fyrri yfirlýsingar hér á síðunni um að Kapteinninn gæti verið næsti Bjólfsmeistari fuku út um gluggann þegar hann mætti ekki og skildi fyrrum meistarana eftir til að berjast um titilinn. Þrír jafnir Mikkalingurinn er sjóðheitur Bótarinn er til alls líklegur Lucky er alltaf til í góða keppni Það var ekki að spyrja að því að Mikkalingurinn gerði góða hluti á síðasta móti eins og áður og er á svakalegri siglingu…einu móti á eftir Bótaranum og Lucky en með jafn mörg stig. Fyrrum Bjólfsmeistararnir eru...

read more

Hver tekur Bjórinn í ár?

Skrifað af þann 4. May 2022 in Fréttir | Engar athugasemdir

Baráttan um Bjórmeistaratitilinn í ár er spennandi…þar er Kapteininn (og núverandi Bjórmeistarinn) með forystu með 5 stig og Lucky fylgir honum fast á eftir með 4 stig. Nágranninn með 2 og svo Bótarinn, Heimsi og Bennsi með 1 stig hver og þurfa að hala inn stigum ef þeir ætla að ná efstu mönnum. Bjórstigametið Bjórstigin byrjuðu 2014 og hafa oftar en ekki unnist á 3 stigum. Stigametið á Iðnaðarmaðurinn frá 2017 þegar hann landaði 6 stigum. Mikkalingurinn á einnig 6 stig frá 2020 en þá voru líka rafmót í gangi og nokkuð víst að mun...

read more

Hver vinnur 3ju mótaröðina

Skrifað af þann 4. May 2022 in Fréttir | Engar athugasemdir

Einn líklegur Þriðja og síðasta mótröðin klárast einnig í bústaðnum. Hver mótaröð samanstendur af 3 kvöldum og 500kr. af hverju buy-in safnast saman í mótaraðarpottinn sem skiptist milli 3ja efstu. Þessi regla var sett á fyrir löngu til að dreifa verðlaunum enn frekar til þeirra sem voru duglegir að mæta og oftar en ekki hafa menn fengið eitthvað úr þessum potti þrátt fyrir að hafa ekki fengið nein verðlaun á öðrum kvöldum…smá sárabót fyrir þá sem taka oft bubble sætið en ná slatta af stigum á þremur kvöldum. Fjórir eru efstir og...

read more

Áttundi í Bjólfi

Skrifað af þann 13. Apr 2022 in Fréttir, Mót | Engar athugasemdir

Fyrsta spilið í Þorlák hafið og allir komnir beint á lokaborðið Það voru nokkrir útvaldir sem mættu á fyrsta mótið í Þorlákshöfn (ekki Hveragerði eins og sumir héldu 😉 í nýju villuna hjá Heimsa. Ekki hægt að segja annað en vel hafi farið um menn…sumir mættu snemma og tóku pottnum áður en byrjað var að spila. Þegar að sest var við spilið byrjaði heimavöllurinn á að gefa vel fyrir gestgjafan og þónokkuð af chippum sem færðust yfir á hann ásamt eina bjórstigi kvöldsins. Röð þeirra sem duttu út Lucky ákvað að yfirgefa spilið fyrstur. Þrátt...

read more

Boðsmótið 2022

Skrifað af þann 5. Mar 2022 in Boðsmót, Fréttir | 1 ummæli

Þátttakendur á Boðsmótinu 2022 Það var föngulegur hópur af 27 gæðablóðum sem mættu á Boðsmót Bjólfs 2022 á Rauða Ljóninu í gærkvöldi og hituðu upp með mat og drykk fyrir spil. Spilið byrjaði aðeins seinna en áætlað var þar sem það þurfti að telja allt til og stilla öllu upp 🙂 Síðan byrjaði mótið og fyrsti maður út var Trommuþrællinn, hann var sigurvegarinn frá því hittumst síðast á Ljóninu 2020 en tók alveg hinn pólinn í hæðina. Svipuð saga með Gylfa sem var líklega fyrstur út á online boðsmótinu í fyrra en erum ekki með tölfræði og annað frá...

read more

Boðsmót Bjólfs 2022

Skrifað af þann 25. Feb 2022 in Boðsmót, Mót | 1 ummæli

Þá er loks komið að því aftur að við bjóðum gestum að spila með okkur. Við náðum mótinu 2020 saman (eins og myndin fyrir ofan ber vitni um) en í fyrra vorum við á netinu vegna Covid…en getum nú hist aftur miðað við núverandi reglur. Eins og alltaf verðum við á Ljóninu og fyrirkomulagið einfalt, 4þ kall inn, engin endurkaup. Hver spilari fær 2×15þ chippa og getur haldið eftir öðrum (15þ. kr. staflanum) og átt inni ef hinn klárast eða sótt hann hvenær sem er fyrsta klukkutímann…þá fá allir hann sem ekki hafa sótt og spilað þar...

read more
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…