Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Bjólfskviða

Bjórguðinn sáttur… en ekki saddur 🍺👑

Skrifað af þann 3. May 2026 in Fréttir | Engar athugasemdir

Ljósmyndir af bjórgjöfum yfir tímabilið sem staðfestingar á uppgjöri 😉 Þegar líður að lokakafla Bjólfur XVI er ekki bara verið að gera upp stig og titla — heldur líka bjórgjafirnar sem hafa mjatlað inn yfir tímabilið. Félagar hafa stigið fram, lagt sitt af mörkum á tímabilinu og glatt Bjórguðinn (Kapteininn) með vel útfærðum fórnum. Sumir hafa mætt undirbúnir, aðrir reddað þessu á síðustu stundu — en sameiginlegt með þeim öllum er að þeir skildu hvað þurfti að gera… og kláruðu það. Þeir sem þegar hafa gert upp eru Timbrið, Robocop, Lucky,...

read more

Bjórstig í uppnámi – endurskoðun fyrir bústað 🍺

Skrifað af þann 1. May 2026 in Fréttir | Engar athugasemdir

Rétt staða í bjórstigunum fyrir bústaðinn! Rétt fyrir bústaðinn var ráðist í ítarlega endurskoðun á ljósmyndum og gögnum um bjórstig tímabilsins — og það kom fljótt í ljós að ekki var allt með felldu. Við nánari skoðun kom í ljós að á fyrsta móti tímabilsins fékk Bensi bjórstig… en það rataði óvart í bókhaldinu til Timbrsins. Enginn gerði athugasemd á þeim tímapunkti og því lifði sú skráning góðu lífi lengur en ella. Á móti tvö voru engin bjórstig gefin, en á þriðja móti fór fréttaflutningur að byggja á rangri stöðu — þar sem Timbrið var með...

read more

Tvær vikur… og bústaðurinn kallar 🏠🍺🃏

Skrifað af þann 24. Apr 2026 in Fréttir | Engar athugasemdir

Enn einn föstudagur er runninn upp og eftir aðeins tvær vikur verðum við flestir samankomnir í bústað í fimmtánda skiptið til að loka tímabilinu með stæl — þó við tölum ekki um árið 2020. Þetta er ekki bara enn eitt mótið, heldur sjálfur lokakafli Bjólfur XVI, þar sem sögur verða til, gamlar sögur endursagðar, jafnvel nýjar sögur sem menn segja frá eða krydda í nýjan búning. Spurningin sem brennur á vörum allra er einföld: hver verður bústaðameistarinn í ár? Verða það kunnugleg nöfn eins og Bótarinn, Hobbitinn eða Lomminn sem bæta þrija...

read more

Þrjár vikur í bústað…minna fyrir suma ;)

Skrifað af þann 17. Apr 2026 in Fréttir | Engar athugasemdir

Það styttist óðfluga í lokamótið í bústaðnum þegar lokakaflinn í Bjólfur XVI verður skrifaður og sextánda tímabilinu lokað með stæl, áður en farið er í sumarfrí og undirbúningur fyrir Bjólfur XVII hefst. Þó að formlega séu enn þrjár vikur í viðburðinn, þá vita allir hvernig þetta virkar í raun — fyrir suma er niðurtalningin löngu hafin og upphitunin þegar komin á fullt skrið. Fyrstu menn eru byrjaðir að hita upp, snöpp af bjór farin að detta inn og einhverjir komnir í þann gír að þetta sé meira ferðalag en eitt kvöld — jafnvel meira en ein...

read more

Að tapa er verra en besti sigur! (Bjólfur XVI.8)

Skrifað af þann 11. Apr 2026 in Fréttir, Mót, XVI | Engar athugasemdir

Það voru 12 eðalbræður sem mættu á síðasta heimamótið í Bjólfur XVI, þegar Spaða Ásinn opnaði heimili sitt og bauð snemma í veigar og fyrirpartý — sem margir nýttu sér til hins ýtrasta. Nóg var að bíta og brenna, glös fylltust reglulega (eða menn rötuðu í ísskápinn til að redda sér) og stemningin var eins og best verður á kosið. Menn skemmtu sér konunglega áður en stokkar fóru á loft og alvaran tók við. Athygli vakti þó að engar bjórgjafir voru veittar og það kannski orðið til þess að engin bjórstig komu í kvöld — en menn eiga eitt kvöld inni...

read more

Ég kom ekki til að vera áhorfandi (Bjólfur XVI.7)

Skrifað af þann 7. Mar 2026 in Fréttir, XVI | Engar athugasemdir

Þrátt fyrir leiðindaveður létu menn það ekki stoppa sig og 13 félagar lögðu leið sína í Vesturbæinn þar sem Mikkalingurinn( eða Veiðimaðurinn eins og hann er stundum kallaður) bauð heim í sjötta skiptið frá upphafi Bjólfs og er í fimmta sæti yfir þá sem oftast hafa boðið heim á þessum sextán árum. Bjór Bennsi gerði upp við Bjórguðinn og ekki leiddist mönnum að þar leyndust Lommsa bjórar sem skemmtu mönnum mikið með sláanlega líku nafni og okkar kæri Lommi…þannig að Kapteininn saup Lommann í kvöld ;)Gyðja gæfunnar var líka ferli í kvöld...

read more

Maður gengur aldrei frá óstokkuðum stokk (Bjólfur XVI.6)

Skrifað af þann 8. Feb 2026 in Fréttir, Mót, XVI | Engar athugasemdir

Á föstudaginn bauð Nágranninn heim í SunnyKEF, og endaði það með því að fjórir bílar lögðu af stað suður með sjó til að hittast í þriðja skiptið á heimavelli hans. Þegar farið var að ræða að hittast og borða fyrir mótið tók Nágranninn ekkert annað í mál en að menn mættu snemma til sín. Hann setti fjall af beikoni í ofninn, kveikti á grillinu og afgreiddi borgara sem margir voru sammála um að væru langbestu borgarar sem hafa verið bornir fram í SunnyKEF — þó ýmsir góðir hafi áður verið nefndir í sömu andrá. Stemningin var strax komin í gang,...

read more

Boðsmót Bjólfs 2026 (Bjólfur XVI.5)

Skrifað af þann 10. Jan 2026 in Boðsmót, Fréttir, XVI | Engar athugasemdir

Það var fámennt en góðmennt þegar Boðsmót 2026 fór fram í gær á Rauða Ljóninu. Sextán spilarar mættu til leiks, settust niður við tvö borð og nutu einstaklega notalegs utanumhalds þetta árið — kannski minna um hávaða, en þeim mun meira um stemningu. Góður hópur mætti snemma og hóf kvöldið með sameiginlegri máltíð. Þar var gætt sér á veigum og vistum Ljónsins, og eftir góða næringu var borðað upp, stokkar blandaðir og spilakvöldið sett formlega af stað. Það ríkti róleg en einbeitt stemning þegar fyrstu hendur voru spilaðar — enginn flýtti sér,...

read more

Nú er ég orðinn reiður (Bjólfur XVI.4)

Skrifað af þann 6. Dec 2025 in Fréttir, XVI | Engar athugasemdir

Þrettán Bjólfsbræður hittust hjá Lucky í Logabjór í gærkvöldi Upphitun Sumir voru snemma á ferðinni og tókst að plata gestgjafann heim fyrirvaralaust — beint í bjór með pottnum og smá saunu upphitun. Það er óneitanlega frábært að byrja kvöldið svona snemma og hita stemninguna upp… þó það hafi komið niður á veitingum og óáfengum drykkjum. Gestgjafinn fór nefnilega ekki í neina búðarferð heldur lagðist einfaldlega beint í bjórinn. 😉 Bjór Eftir nokkra þurrkutíð hjá Bjórguðinum var loksins bætt vel úr skák þegar þrjár fórnir mættu — hvert glas...

read more

Þegar Nágranninn kíkir í heimsókn (Bjólfur XVI.3)

Skrifað af þann 8. Nov 2025 in Fréttir, XVI | Engar athugasemdir

Kvöldið byrjaði á veisluferð hjá nokkrum á Fjörukránna og síðan mætti helmingur af klúbbnum í höfuðstöðvarnar hjá Massanum og þriðja kvöldið á sextánda tímabilinu. Spilað var á tvemur borðum og fór vel um alla í hliðarherberginu í höfuðstöðvunum. Nágranninn byrjaði af krafti og klárt að hann var mættur til að láta finna fyrir sér og gerði sér lítið fyrir og smellti í kongunglega litaröð bara til að sýna hvað væri í vændum. Robocop nældi sér svo í bjórstig, var í góðri stöðu með sjöu og tvist í borði líka og fór létt með að skella sér á...

read more
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…