Bjólfskviða
Friday the 13th
Það var gríðargóð mæting á síðasta mót og vantaði aðeins Bóndann þar sem hann var upptekinn við að bjarga efnahag þjóðarinnar úti á ballarhafi. Við vorum því þrettán meðlimir á föstudaginn þrettánda og spiluðum þar með á tveimur borðum. Það voru ekki allir óheppnir á þessu móti þrátt fyrir dagsetninguna tók Bósi nokkra heppnispotta sem skiluðu honum í 2. sætið 😉 Það var smá “incident” þegar Mikkalingurinn sneri við þremur spilum, Hobbitinn var allur inn og Bósi hafði sett lítilræði í pottinn. Ég vill meina að það eigi að vera hægt...
read moreFyrsta mót ársins á föstudaginn
Eftir fjölskyldufrestun er komið að fyrsta móti almanaksársins föstudaginn 13. Að þessu sinni býður Massinn okkur í sinn rómaða skúr á nýjan leik og heyrst hefur að vegna ófærðar í sumarbústaðinn er Heimir að hugsa um að heiðra okkur með nærveru sinni. Það þarf að taka þann dreng ærlega í gegn og lesa honum pistilinn þar sem hann hefur ekki enn greitt árgjaldið né mætt á eitt einasta mót á þessu pókerári. Iðnaðarmaðurinn er búinn að skrá sig í mótið og lofar betrun í mætingu með betri forgangsröðun. Skráningar eru farnar að detta inn og...
read moreBjólfur styrkir Útvarp Seyðisfjörð
Á jólamótinu 2011, Bjólfur OPEN, gaf Pókerklúbburinn Bjólfur 500 kr. af hverju þátttökugjaldi mótsspilara og söfnuðust 17.000 kr. sem runnu til Útvarps Seyðisfjarðar. Formaður Bjólfs kom færandi hendi á gamlársdag upp í útvarpshús Seyðfirðinga og tók þakklátur Örvar Jóhannsson við peningagjöfinni. Með mótinu og styrknum vill Bjólfur leggja menningar- og félagslífi Seyðfirðinga lið. Góðar stundir
read moreÚRSLIT – Bjólfur OPEN 2011
Alls tóku 36 spilarar þátt í Bjólfur OPEN á Öldunni þetta árið og var góð stemning á mönnum en í ár tók engin kvennmaður þátt, sem fyrr var haft á orði að þær þyrftu að vera til staðar til að gefa og bauð einn bæjarbúi sína snót til verksins á næsta ári. Adólf Guðmundsson var sá eftirsótti (bounty) og stóð sig með stakri prýði þrátt fyrir örlitla hnökra en þetta rifjaðist upp fyrir honum eftir sem leið á mótið. Manna tókst þó á endanum að slá Adda út og hreppti fyrir það 10 KÍLÓ af fiski. Allir spilarar styrktu Útvarp Seyðisfjörð með þátttöku...
read moreJólakveðja Bjólfs
Pókerklúbburinn bJÓLfur óskar öllum meðlimum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar hátíðar og þakkar fyrir samveruna á árinu. Konur og kærestur fá sérstakar þakkir fyrir skilning og umburðarlindi auk þess þökkum við gestum fyrir þátttökuna. Eins og undanfarin ár kveður klúbburinn árið með jólamóti á Seyðisfirði en það væri gaman að halda hefðbundið Bjólfsmót í okkar heimabæ einn daginn.
read moreBók mánaðarins
Það fer að verða frekar vandræðalegt hversu auðvelt er að vinna ykkur og því hef ég valið bók mánaðarins í samræmi við það. Reynið nú að taka ykkur á og lesa einu sinni bók mánaðarins… 😉 Ná í bókina
read moreBjólfur OPEN – Seyðisfirði
Senn líður að hinu árlega jólamóti Bjólfs á Seyðisfirði en það verður 30. desember og verður fyrirkomulagið svipað og síðastliðin ár. Það hefur verið góð stemning á þessum mótum undanfarin ár en þátttökugjaldið er 3.000 kr. og verður fjöldi spilara miðaður við 35. Sú nýbreytni verður í ár að spilurum gefst tækifæri á add on í hléi. Þá er spilurum heimilt að kaupa 5.000 chippa fyrir 1.000 kr. Í ár verður Addi Guðmunds sá eftirsótti og fæst fiskiaskja fyrir að slá hann út, ekkert slor það! Pókerklúbburinn vill leggja sitt af mörkum til bæjarins...
read more33 afmælispóker 9Q
Bjólfsmeistarinn 2011 býður til afmælisveislu í tilefni góðs pókersaldurs 3♥3♦ með pizzu og póker þann 9♣Q♠ næstkomadi. Mætingu uppúr 19, byrjum á mat þannig að við getum byrjað að spila uppúr 20. Hérna fyrir neðan ætti að vera hægt að skrá sig (nafn og hvað þið viljið á pizzu) en skrifið annars bara athugasemd um að þið mætið ef skráningin er eitthvað að vefjast fyrir...
read moreBjólfur invitational
Þá er jólahlaðborði Bjólfs lokið með fínnri þátttöku og góðri stemningu. Eftir að hafa skolað pizzum og borgurum niður með jólabjór var gefið í spil og fengu Bjólfsmenn ekki eins slæma útreið og á mótinu í fyrra á Rauða ljóninu en þó voru tveir boðsspilarar sem stóðu sig aðeins of vel. Staða efstu manna var eftirfarandi: Jón Valur Palli hennar Lilju systur Hobbitinn Nonni Bras Logi fékk þússarann fyrir að slá Magga tóka út. Staðan hefur verið uppfærð en ég er sérstaklega ánægður með hvað verðlaunaféð dreifist vel milli meðlima. Myndir frá...
read moreBók mánaðarins
Bók mánaðarins er eins og sniðin fyrir Bjólfsmenn. Hún er um lággjaldapóker en þó ekki fyrir neina byrjendur 😉 Small Stakes Hold´em eftir Ed Miller, David Sklansky og Mason Malmuth er um hvernig eigi að bæta sig í póker án þess að leggja háar fjárhæðir undir. Ná í bók
read more
❤️😘